Sport

Íslendingarnir í ensku 1.deildinni

Jóhannes Karl Guðjónsson skoraði jöfnunarmark Leicester sem gerði 2-2 jafntefli við Crewe í ensku 1. deildinni í fótbolta í dag. Mark Jóhannesar kom úr vítaspyrnu á 60. mínútu en hann lék allan leikinn. Gylfi Einarsson lék allan leikinn í liði Leeds sem sigraði Wolves 2-0 en hann leysti af hólmi Eirik Bakke sem er meiddur. Þá lék Ívar Ingimarsson að venju allan leikinn með Reading sem burstaði Millwall 5-0 en Brynjar Björn Gunnarsson er ennþá meiddur og var því ekki í leikmannahóp Reading. Þórður Guðjónsson sat á varamannabekk Stoke sem vann Luton 2-1 en hann kom ekkert við sögu í leiknum. Bróðir hans, Bjarni, kom inn á sem varamaður í liði Plymouth sem tapaði 1-0 á útivelli fyrir Crystal Palace.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×