Sport

Luque ekki til Newcastle

Graeme Souness, knattspyrnustjóri Newcastle hefur viðurkennt að félaginu hafi enn á ný mistekist að klófesta sterkan sóknarmann og sá nýjasti er Alberto Luque hjá Deportivo la Corunia á Spáni. "Við höfum verið að gera dauðaleit að framherja undanfarið, en finnum engan ennþá. Ég vil ekki fá einhvern miðlungsframherja til Newcastle, heldur koma aðeins toppmenn til greina," sagði Souness, sem er farinn að verða stressaður, því aðeins 12 dagar eru þangað til að félagaskiptaglugginn í enska boltanum lokast.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×