Meint bókhaldsbrot vega þyngst 16. ágúst 2005 00:01
Þau atriði ákærunnar í Baugsmálinu sem talin eru hvað alvarlegust hvað varðar þyngd refsingarinnar, snúa einkum að þremur greinum hegningarlaganna. Fyrst þeirri grein hegningarlaganna sem fjallar um fjárdrátt, þá um umboðssvik og síðast grein um brot gegn lögum um bókhald og lög um ársreikninga. Hámarksrefsing fyrir brot gegn þessum þremur greinum hegningarlaganna er sex ára fangelsivist fyrir hverja grein. Þegar litið er til þess hvaða atriði ákærunnar geta reynst hvað þyngst fyrir þá ákærðu má telja að einkum séu það atriði sem varða þrjá þætti málsins enda þótt erfitt sé að sjá hver framvinda málsins verður þegar það verður dómtekið en einnig má búast við að fleiri gögn málsins verði lögð fram þegar málflutningur hefst. Í sjötta og áttunda kafla ákærunnar er einkum ákært fyrir ýmis atriði sem varða bókhald og reikningslega meðferð innan Baugs. Þar er ákærðu gefið að sök að hafa átt við reikninga félagsins þannig að bókhald og í mörgum tilfellum uppgjör félagsins liti öðruvísi og hagstæðara út en raunverulega var. Í þeim þáttum ákærunnar eru auk forsvarsmanna Baugs endurskoðendur félagsins ákærðir. Í athugasemdum forsvarsmanna Baugs við þessum köflum er vísað til ýmissa raka fyrir reikningslegri meðferð. Fjöldi mála hafa risið vegna brota á lögum um bókhald og hefur legið þung refsing við brotum af þessu tagi. Hafa ber í huga að ekki forsvarsmenn Baugs verða ekki aðeins ákærðir fyrir þessa þætti ákærunnar heldur er hlutur endurskoðenda talinn geta vegið mjög þungt hvað þessa þætti varðar. Í ákærunum varða fjöldi ákæruatriða viðskipti milli Baugs hf. og Gaums hf. Baugur var á þeim tíma almenningshlutafélag en Gaumur er fjárfestingafyrirtæki í eigu Jóhannesar Jónssonar og barna hans. Í fjórða kafla ákærunnar er sakborningunum gefinn að sök fjárdráttur, umboðssvik og brot gegn lögum um hlutafélög. Í flestum töluliðum kaflans er ákært fyrir viðskipti milli Gaums og Baugs. Þannig á sér stað yfirfærsla fjármuna frá Gaumi til Baugs þar sem ákæruvaldið telur að um sé að ræða ólögmæta lánveitingu og fjárdrátt. Ákærðu hafa alfarið hafnað því og í athugasemdum sínum benda þeir á að um hafi verið að ræða viðskiptalán sem hafi verið endurgreidd áður en til húsleitar Ríkislögreglustjóra kom og slík lán hafi verið fyllilega heimil samkvæmt lögum um hlutafélög. . Feðgarnir Jón Ásgeir Jóhannesson og Jóhannes Jónsson hafa neitað því að skemmtisnekkjan Thee Viking hafi verið eign þeirra. Þeir hafa bent á að í ákærunni komi fram að snekkjan sé eign Jóns Geralds Sullenberger. Í fyrsta tölulið ákærunnar er fjallað um hvort Baugur hf. hafi eftir fyrirmælum feðganna auk Kristínar Jóhannesdóttur, framkvæmdastjóra Gaums, greitt afborganir af lánum og annan rekstrarkostnað vegna snekkjunnar. Samtals nema greiðslurnar rúmlega fjörutíu milljónum króna Ákæruvaldið telur að Jón Ásgeir og Tryggvi Jónsson, þáverandi aðstoðarforstjóri Baugs, hafi dregið sér fé með því að láta Baug greiða fyrir snekkjuna og hafi því fært fjármuni frá Baugi yfir á eign feðganna Jóns Ásgeirs og Jóhannesar. Ef svo hefur verið, er þeim gefið að sök að hafa dregið sér og öðrum fé samkvæmt 247. grein hegningarlaganna. Baugsmálið mun einkum snúast um þessa þætti þess. Það er ekki svo að málið sé einfalt en það er minna í sér en ástæða þykir til að ætla miðað við fjölda ákæruliða. Málið snýst um sönnunarbyrði og mat á þeim ákæruliðum sem fram koma í ákæru Ríkislögreglustjóra.
Baugsmálið Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Erlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Erlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Innlent Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent Fleiri fréttir „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Sjá meira