Kennsl borin á tvo tilræðismenn 25. júlí 2005 00:01
Vitað er hverjir tveir hryðjuverkamannanna eru sem gerðu tilraun til árásar í London í síðustu viku. Lundúnalögreglan handtók í dag tvo menn en tilræðismannanna er leitað og óttast að þeir leggi á ráðin um fleiri tilræði. Lögreglan leggur allt í sölurnar að hafa uppi á tilræðismönnunum og því er sem mestum upplýsingum komið til almennings í von um að ábendingar berist. Annar mannanna, hinn 24 ára gamli Yasin Hassan Omar, er sagður hafa reynt að sprengja sprengju í Victoriu-lestinni á milli neðanjarðarstöðvanna við Oxford Circus og Warren Street. Skömmu síðar sást hann án bakpokans við Warren Street stöðina. Maðurinn sem reyndi að koma sprengingunni af stað í strætisvagninum heitr Muktar Said Ibrahim. Einnig er vitað að sprengjurnar voru í plastílátum sem kaupa má í næstu matvöruverslun. Önnur ástæða þessa kapps er að dreifa athyglinni frá því þegar lögreglumenn skutu Brasilíumann á þrítugsaldri til bana eftir eltingarleik. Í dag var greint frá því að maðurinn hefði verið skotinn átta sinnum í höfuðið. Hann reyndist ekkert hafa með hryðjuverk að gera og krefjast ættingjar hans skaðabóta. Lögreglan og yfirvöld standa hins vegar við þá stefnu að skjóta grunsamlegt fólk til bana þar sem helsærður hryðjuverkamaður getur kveikt á sprengju. Að sama skapi er viðurkennt að þetta geti leitt til þess að fleiri óbreyttir borgarar verði drepnir. Lögreglan réðst í morgun inn í íbúð í norðurhluta Lundúna en enginn var handtekinn. Þrír menn eru í haldi lögreglunnar vegna málsins en enginn þeirra mun vera tilræðismaður.
Erlent Fréttir Hryðjuverk í London Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira