Deilt um sekt efnafræðingsins 17. júlí 2005 00:01
Deilt er um hvort maðurinn sem handtekinn var í Kaíró í gær sé einn skipuleggjenda hryðjuverkanna í London. Lögreglan í Bretlandi telur að svo sé en innanríkisráðherra Egyptalands segir það af og frá. Egypski efnafræðingurinn sem handtekinn var í Kaíró í gær í tengslum við árásirnar í London í síðustu viku tengdist ekki hryðjuverkasamtökunum Al-Qaida og átti ekki þátt í skipulagningu hryðjuverkaárásanna í London í síðustu viku. Þetta segir innanríkisráðherra Egyptalands í samtali við egypskt dagblað í dag. Maðurinn kenndi efnafræði við háskólann í Leeds þar til viku fyrir árásirnar að hann sneri heim til Egyptalands. Hann var síðan handtekinn fyrir fimm dögum í Kaíró eftir að breskir embættismenn gáfu egypskum yfirvöldum upp nafn hans. Maðurinn neitar að hafa átt þátt í árásunum. Ekki er ljóst hvort maðurinn verði framseldur til Bretlands en nágrannar mannsins þar í landi segja óhugsandi að hann hefði getað framkvæmt verknaðinn, hann hefði verið ekkert annað en viðkunnalegur og þægilegur sem alla líkaði við. Bresk yfirvöld segja að heima hjá honum hafi fundist efni sem auðveldlega væri hægt að breyta í öflug sprengiefni. Lögreglan hefur gert að minnsta kosti sex húsleitir í Leeds í vikunni vegna málsins. Fjöldi þeirra sem látist hafa vegna árásanna í Lundúnum þann 7. júlí síðastliðinn er nú kominn upp í 55 eftir að enn eitt fórnarlamb árásanna lést á sjúkrahúsi í nótt. Ekki hefur verið gefið upp hver hinna fjögurra sprenginga varð viðkomandi að bana, né heldur aðrar upplýsingar um hinn látna.
Erlent Fréttir Hryðjuverk í London Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira