Innlent

Mótmæli við Alþingishúsið

Ungir jafnaðarmenn og ungliðahreyfingar úr öllum flokkum hafa boðað til mótmæla við Alþingishúsið klukkan 17.45 í dag. Ástæðan er ákvörðun forseta þingsins að hleypa ekki í gegnum þingið frumvarpi um afnám fyrningarfrests í kynferðisafbrotum gegn börnum. Í fréttatilkynningu frá ungum jafnaðarmönnum segir að þrýst hafi verið á þingmenn stjórnarmeirihlutans að hleypa málinu úr allsherjarnefnd og að það hafi skilað árangri. Þá komi forseti Alþingis og stoppi málið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×