Viðskipti innlent

Síminn: 7-8 milljarðar komnir

MYND/Vísir
Þúsundir einstaklinga hafa skráð sig fyrir 7-8 milljörðum króna til kaupa á hlutabréfum í Símanum hjá tveimur hópum. Ingvar Guðmundsson, forsvarsmaður söfnunarinnar á bókhaldssíðunni logiledger, segir vel koma til greina að sameinast hópi Agnesar Bragadóttur þegar fram líða stundir. Agnes fundar nú með samstarfsmönnum sínum, Orra Vigfússyni og Jafet Ólafssyni, en Jafet sagði viðbrögð almennings hafa verið gríðarleg.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×