Viðskipti innlent

Íslendingar eyði ekki um efni fram

Krítarkortaeyðsla Íslendinga í útlöndum hefur aukist um 33 prósent á einu ári. Ingólfur Bender, sérfræðingur hjá Íslandsbanka, telur Íslendinga ekki vera eyða langt um efni fram. Ingólfur Bender, forstöðumaður greiningardeildar Íslandsbanka, telur að aukna eyðslu Íslendinga erlendis megi rekja til sterkrar stöðu krónunnar og þess að eyslan hafi færst frá innanlandsmarkaði til útlanda. Íslendingar nýti sér það að þeir geti keypt meira erlendis fyrir minna fé og það sjáist mjög vel í krítarkortaveltutölum. Ingólfur segir kaupmáttinn í landinu hafa aukist mikð þar sem laun hafi almennt hækkað mikið en kaupmátturinn aukist líka samhliða því að krónan styrkist. Fólk sé því farið að færa neysluútgjöld sín af innlendum markaði til útlanda. Ingólfur telur að vöruskiptahallinn, sem stefnir í að ná sögulegu hámarki á þessu ári, muni ekki réttast af fyrr en gengi krónunnar lækkar. Hann býst ekki við að krónan muni verða eins sterk og hún er í dag mjög lengi. Hann bendir á að það stefni í að viðskiptahallinn muni nema tæpum 120 milljörðum króna, eða 12 prósentum af landsframleiðslu. Þetta sé mjög mikið, ekki bara í sögulegu samhengi heldur líka alþjóðlegum samanburði. Innan OECD verði ekkert ríki með viðlíka halla í ár og það bendi til þess að það sé að myndast talsvert ójafnvægi í hagkerfinu. Það veki áhyggjur af því að staða krónunnar kunni að vera völt og hún gæti lækkað áður en framkvæmdatímabili í stjóriðju lýkur árið 2007.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×