Bráðum geta allir knúsað kisu 12. apríl 2005 00:01
Gæludýr eru næstalgengasti ofnæmisvaldurinn á Bretlandi og helmingur astmaveikra barna hefur ofnæmi fyrir köttum. Breskir vísindamenn hafa fundið aðferð til að minnka þessi ofnæmisviðbrögð með því að örva framleiðslu ákveðinna fruma í ónæmiskerfinu. Þessi aðferð getur að öllum líkindum komið að gagni í baráttunni gegn fleiri ofnæmissjúkdómum og þá ekki síst sjálfsofnæmi eins og MS. Ofnæmisvaldurinn, prótein sem eru til staðar í kattahárum, er afar smáar eindir sem berast auðveldlega í öndunarveginn. Þátttakendur í rannsókninni voru sprautaðir með svipuðum próteinum sem í vantaði helsta ofnæmisvaldinn en gerðu það samt að verkum að ónæmiskerfið tók við sér og niðurstaðan var að ofnæmisviðbrögð minnkuðu töluvert. Læknarnir sem standa að tilrauninni vonast til þess að bóluefni gegn slíku ofnæmi verði komið innan fimm ára og jafnvel lyf í töfluformi. Í síðasta mánuði tilkynntu vísindamenn við Kaliforníuháskóla að þeir hefðu fundið aðferð til að hindra kattaofnæmi í músum með því að sprauta þær með blöndu af mannapróteini og ofnæmisvaldi úr ketti.
Heilsa Mest lesið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Lífið Svona voru afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Lífið Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Lífið „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Lífið Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur Lífið Fréttatía vikunnar: Eiður Smári, Harry og frelsissvipting Lífið Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið Lífið Bautista hleypur í skarðið Bíó og sjónvarp Missti allan mátt fyrir neðan bringu: Dreymir um að geta spilað golf á ný Lífið Etur kappi við Obama og Reynolds Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira