Viðskipti innlent

Kaupa fimm vélar í viðbót

Stjórn Flugleiða, eða FL GROUP, samþykkti á fundi sínum í dag að undirrita samning við Boeing-flugvélaverksmiðjurnar í Bandaríkjunum um kaup á fimm Boeing 737-800 flugvélum til viðbótar við þær 10 sem samið var um í febrúar. Félagið fékk kauprétt á þessum fimm flugvélum sem hluta af samningnum sem undirritaður var í febrúar og hefur nú ákveðið að nýta þennan rétt. Heildarverðmæti þessara flugvéla er samkvæmt verðskrá um 20 milljarðar króna. Markmið FL GROUP er að byggja upp flugvélaleigu og félagið samdi við Boeing á grundvelli mjög hagstæðs kaupverðs um 10 flugvélar í febrúar. Samningar um útleigu fyrstu fimm flugvélanna sem koma til félagsins á árinu 2006 eru á lokastigi.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×