Viðskipti innlent

Útrásin er ekki flótti!

Jón Steindór Valdimarsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, telur að útrás fyrirtækjanna sé ekki flótti frá íslenskum vinnumarkaði eða velferðarkerfi. Fyrirtækin séu í harðri samkeppni og flytji framleiðsluna utan til að standast hana. "Þetta getur verið spurning um líf eða dauða þegar fyrirtækin reyna að framleiða vöruna hér með þeim kostnaði sem hér er í samkeppni við vöru sem er framleidd með miklu minni tilkostnaði erlendis," segir hann.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×