Sé ekki að Keflavík tapi 16. mars 2005 00:01
Keflavík og Grindavík eigast við í fyrstu umferð úrslitakeppni Intersportdeildarinnar í körfuknattleik á heimavelli Keflvíkinga í kvöld. Einar Bollaspon spáir í spilin fyrir Vísi. Tveir leikir eru afstaðnir og hefur hvort liðið um sig haft einn sigur. Þetta er því hrein úrslitaviðureign og liðið sem stendur uppi sem sigurvegari í kvöld tryggir sér sæti í undanúrslitum. Keflavík vann fyrsta leikinn örugglega, 101-80, en Grindavík náði að knýja fram oddaleik með því að vinna í Grindavík, 87-76. Þar vakti sterk vörn heimamanna athygli og fengu Grindvíkingar byr undir báða vængi fyrir komandi átök. "Fyrir fólk sem sá leikinn í Keflavík, hvort sem það var á staðnum eða heima í stofu, þá er það alveg með ólíkindum að Grindavík skuli hafa unnið leikinn í Grindavík," sagði Einar Bollason, fyrrum landsliðsmaður og þjálfari. "Manni dettur helst í hug að Keflvíkingar hafi haldið að þeir þyrftu ekkert að mæta." Grindvíkingar hafa átt í töluverðu basli í vetur og tveir erlendir leikmenn þurft frá að hverfa. Þá varð liðið fyrir áfalli þegar Guðlaugur Eyjólfsson ákvað að hætta að leika með liðinu í mótmælaskyni við stefnu stjórnarinnar hvað varðar erlenda leikmenn. "Auðvitað samgleðst maður Grindvíkingum af því að þetta er búið að vera mjög erfiður vetur hjá þeim. Það sást vel í leiknum hvað Helgi Jónas Guðfinnsson er mikilvægur liðinu. Grindavíkurliðið er til alls líklegt og ef Grindvíkingar bera gæfu til að nota þennan trukk sem Taylor er í miðjunni og spara skotin fyrir utan geta þeir gert ýmislegt. Ég sé nú ekki í spilunum að Keflavíkurhraðlestin tapi þessum leik. Ég held að Keflvíkingar klári þetta. Liðið missti af báðum bikartitlunum, náði að vísu deildarmeistaratitlinum, en ég held að heimamenn vinni," sagði Einar Bollason.
Körfubolti Mest lesið Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Uppgjörið: Fjölnir - Afturelding 0-0 | Afturelding fer aftur á Laugardalsvöll Íslenski boltinn Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Stig tekin af liði Ásdísar og félagið gæti hætt Fótbolti Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Enski boltinn Viðar Ari fjórbrotinn Fótbolti Fleiri fréttir Grátleg niðurstaða Birnis og Gísla „Við Mosfellingar erum öðruvísi, við erum sérstakir“ Í beinni: Valur - Stjarnan | Mikið undir í Evrópubaráttu Í beinni: Breiðablik - ÍA | Truflar ÍA titilbaráttuna? Fertugasti leikur Glódísar og félaga í röð án taps Viktor aftur heim í Stjörnuna Tímabilið búið hjá Rodri? Bara tvær fljótari en Sveindís Fyrirliðinn framlengir og tekur slaginn í Bestu deildinni Uppgjörið: Fjölnir - Afturelding 0-0 | Afturelding fer aftur á Laugardalsvöll Bandaríkjamenn að eignast Everton Leiðrétting löngu eftir EM: Þetta hefði átt að vera víti Stig tekin af liði Ásdísar og félagið gæti hætt Öruggir sigrar í tveimur einvígum á netskákmótinu Haaland ekki refsað Viðar Ari fjórbrotinn Búið spil hjá fyrirliðanum en Barcelona má fá nýjan mann Mætti tárvotur í viðtal og óviss um framhaldið Valkyrjur og Venus ósigraðar á toppnum BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Clark slegin í augað í frumraun Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Glæsimörk Mundu eftir tveggja ára bið Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Dagskráin í dag: Blikar geta komist á toppinn Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Refsing fyrir að blóta gæti flýtt fyrir því að Verstappen hætti Sjá meira