Sport

O´Neal með á ný eftir meiðsli

Shaquille O´Neal lék á ný með Miami Heat gegn New Jersey Nets á útivelli í NBA-körfuboltanum í nótt. O´Neal meiddist á hné á dögunum en gekk ágætlega í leiknum þar sem Heat hafði betur, 106-90. O´Neal skoraði 20 stig og tók 13 fráköst en Dwyane Wade var stigahæstur í liði gestanna með 27 stig. Alonzo Mourning lék sinn fyrsta leik með Heat í 4 ár og mátti þola baul af hálfu sinna gömlu stuðningsmanna í New Jersey. "Ég er ekki sá sem að þeir ættu að baula á heldur frekar sá sem varð til þess að liðið molnaði í sundur," sagði Mourning.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×