Innlent

Vilja algert reykingabann

Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, og þrír aðrir þingmenn hafa lagt fram frumvarp um algert reykingabann á veitinga- og skemmtistöðum. Það sama á við þjónustusvæði utanhúss, séu þau undir föstu eða færanlegu þaki. Meðflutningsmenn Sivjar eru Jónína Bjartmarz úr sama flokki,  Ásta R. Jóhannesdóttir Samfylkingunni og Þuríður Backman úr Vinstri grænum. Engin úr Frjálslynda flokknum eða Sjálfstæðisflokknum stendur að frumvarpinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×