Sport

LeBron James enn í ham

Nýstirnið LeBron James heldur áfram að heilla körfuboltaunnendur um allan heim. Hann skoraði 30 stig fyrir Cleveland Cavaliers sem skellti Orlando Magic 101-92 í NBA-deildinni í nótt. Miami sigraði Chicago Bulls 108-97 og þar skoraði Shaquille O´Neal 26 stig fyrir Miami og hirti 10 fráköst en Dwayne Eade skoraði 25. Phoenix sigraði New York Knicks 114-106, Steve Nash skoraði 26 stig og hirti 14 fráköst. Vince Carter skoraði 41 stig fyrir New Jersey Nets sem unnu meistara Detroit Pistons 107-85.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×