Sport

Stærsta endurkoma í sögu Toronto

Liðsmenn Toronto Raptors skrifuðu nýjan kafla í sögu félagsins í nótt er þeir komu til baka eftir að hafa verið 22 stigum undir gegn Washington Wizards og unnu, 103-100. Kaflaskil urðu í leiknum þegar bakvörður Wizards, Gilbert Arenas, var útilokaður frá leiknum í þriðja leikhluta, en hann var þá búinn að skora 21 stig. Jalen Rose var stigahæstur í liði Raptors með 26 stig en leikstjórnandinn Rafer Alston setti 16. Hjá Wizards var Antawn Jamison að vanda öflugur, skoraði 30 stig og tók 11 fráköst. Úrslit í leikjum næturinnar í NBAIndiana Pacers - Dallas Mavericks 95-94Toronto Raptors - Washington Wizards 103-100Philadelphia 76ers - Atlanta Hawks 103-85Boston Celtics - Orlando Magic 112-100Milwaukee Bucks - L.A. Clippers 92-90Sacramento Kings - New York Knicks 116-115Minnesota Timberwolves - Houston Rockets 113-119 (framl.)Golden State Warriors - New Orleans Hornets 90-82Portland TrailBlazers - Charlotte Bobcats 101-89



Fleiri fréttir

Sjá meira


×