Sport

Rudy T að hætta hjá Lakers?

Fregnir herma að Rudy Tomjanovich, þjálfari Los Angeles Lakers í NBA-körfuboltanum, ætli að hætta að þjálfa liðið vegna hrakandi heilsufars. Samkvæmt talsmanni Lakers hefur ekkert verið ákveðið að svo stöddu en þjálfarinn athugar nú vandlega þá kosti sem eru í boði. Þó nokkrir þjálfararar hafa nú þegar verið orðaðir við Lakers, t.d. Mike Krzyzewski, þjálfari Duke-háskólans og Jim Calhoun hjá Connecticut.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×