Sport

Spurs með besta vinningshlutfallið

San Antonio Spurs er komið með besta vinningshlutfallið á nýjan leik í NBA-deildinni í körfuknattleik eftir góðan sigur á Seattle, 103-84, í gærkvöldi. Manu Ginobili skoraði 23 stig og Tim Duncan 21 fyrir Spurs. San Antonio hefur unnið 37 leiki en aðeins tapað tíu en keppinautarnir í  Phoenix léku ekki í gær. Kyle Korver skoraði sigurkörfu Philadelphia 76ers þegar sex sekúndur voru eftir af leiknum gegn Indiana Pacers, lokatölur 89-88. Allen Iverson skoraði 27 stig fyrir Philadelphia. Atlanta vann óvæntan sigur á Orlando Magic, 80-79, og Houston lagði Boston að velli 97-94. Þá bar Memphis sigurorð af New Orleans Hornets, 98-91, og Los Angeles Clippers vann New York Knicks 96-89.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×