Sport

Larry Brown til New York Knicks?

Larry Brown lætur sér greinilega fátt um finnast að vera þjálfari núverandi NBA-meistara, Detroit Pistons. Brown lét hafa eftir sér í viðtali á dögunum að hann hafi oft dreymt um að þjálfa New York Knicks. Ummælin hafa vakið furðu manna vestan hafs og eru menn í Detroit ekki á eitt sáttir við ummæli kappans. "Mitt eina áhyggjuefni er Detroit Pistons og hvað sé liðinu okkar fyrir bestu," sagði Joe Dumars, framkvæmdastjóri Pistons, og vildi lítið tjá sig um ummæli Browns.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×