Sport

George Karl þjálfar Denver Nuggets

George Karl hefur verið ráðinn þjálfari Denver Nuggets í NBA deildarinni í körfubolta. Karl hefur stýrt liðinu til sigurs í tveimur fyrstu leikjum sínum, en gengi þess hefur valdið miklum vonbrigðum það sem af er tímabili. George Karl hafði verið að vinna sem þulur á sjónvarpsstöð um skeið eftir að taka sér frí frá þjálfun, en hann þjálfaði m.a. lið Seattle sem lék til úrslita í NBA gegn Chicago árið 1996 og er einn af sigursælustu þjálfurum í sögu deildarinnar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×