Sport

Heil umferð í Intersport deildinni

15. umferð Intersport deildarinnar í körfubolta karla verður leikin í kvöld en þá fara fram 6 leikir. Topplið Keflavíkur með 22 stig, sem reyndar á einn leik til góða gegn Haukum á önnur lið í deildnni, heimsækir ÍR í kvöld en Breiðhyltingar eru í 6. sæti með 18 stig. Á meðan tekur Snæfell, sem er jafnt toppliðinu stigum, á móti Skallagrími í Stykkishólmi og Njarðvík í 3. sætinu heimsækir Hamar/Selfoss. Fjölnir í 4. sæti heimsækir Grindvíkinga, botnlið KFÍ tekur á móti Haukum á Ísafirði og KR í 7. sæti tekur á móti Tindastól sem situr í ellefta og næst neðsta sæti með 8 stig. Allir leikirnir hefjast kl. 19.15. Að auki er á dagskrá einn leikur í 1. deild karla í körfunni en kl 16:00  mætast Valur og Höttur. Í 1.deild kvenna verður einn leikur kl. 19:15 þegar Haukar og Njarðvík eigast við.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×