Sport

Damon Stoudamire með 54 stig

Damon Stoudamire setti nýtt persónulegt met, og nýtt met hjá Portland Trail Blazers, þegar hann skoraði 54 stig í leik gegn New Orleans Hornets. Það dugði þó ekki til því Blazers tapaði leknum, 112-106. "Ég vildi óska þess að við værum með góðan skorara inn í teignum, þá hefðum við getað unnið leikinn," sagði Stoudamire eftir leikinn. Stoudamire jafnaði met Nick Van Exel hjá Blazers, sem Exel setti fjórum dögum áður gegn Philadelphia 76ers, þegar hann skoraði 8 þriggja stiga körfur. Blazers var með 16 þriggja stiga körfur alls. Dan Dickau var stigahæstur Hornets með 25 stig sem er persónulegt met. Gamla kempan Maurice Cheeks, þjálfari Portland, sagðist bera mikla virðingu fyrir Hornets. "Liðið vann Sacramento nýlega og New York á útivelli. Margir af ykkur fjölmiðlamönnum hugsa: "Hvað er Hornets?" en það gerum við ekki. Þetta er hörkulið," sagði Cheeks.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×