Skeljungur og Esso lækka 3. desember 2004 00:01
Olíuverð heldur áfram að lækka hratt á heimsmarkaði og náði lækkunin til íslenskra neytenda í morgun. Skeljungur lækkaði bensínverðið um eina krónu í morgun og dísillítrann um 1,50 krónur. Þá tilkynnti Esso um lækkun á tólfta tímanum og gagnstætt venju er lækkunin þar meiri en hjá Skeljungi. Olíuverð hefur lækkað um 12% á tveimur sólarhringum í Bandaríkjunum og kostar tunnan þar rúma 43 dollara. Þetta er lækkun um sex dollara. Þar hefur olíuverð ekki verið lægra síðan í september en þetta er jafnframt mesta lækkun á tveimur sólarhringum sem um getur frá því að loknu Flóastríðinuárið 1991. Meginástæða lækkunarinnar er sögð sú að ekki er lengur óttast að skortur verði á olíu til kyndingar í vetur. Norðursjávarolía lækkaði líka um rúma tvo dollara í gær og er komin niður í rétt rúma 40 dollara. Olíufélagið Skeljungur lækkaði bensínverðið um eina krónu í morgun og dísillítrann um 1,50 krónur. Þá tilkynnti Esso um lækkun á tólfta tímanum og gagnstætt venju er lækkunin þar meiri en hjá Skeljungi, eða 1,40 kr. á bensínlítrann og 1,50 á dísillítrann eins og hjá Skeljungi. Ekki hefur enn heyrst um lækkun hjá Olís. Stóru félögin þrjú hækkuðu bensín á mánudaginn var en lækkuðu hins vegar verðið á sjálfsafgreiðslustöðvum sínum í fyrradag.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið „Ásta mín, ef þú segir nei við þessu tilboði þá rek ég þig“ Atvinnulíf Sjónvarpskóngur allur Viðskipti erlent Slippurinn allur að sumri loknu Viðskipti innlent Kaffispjallið '24: Þar sem jafnvel dýpstu leyndarmálin eru afhjúpuð... Atvinnulíf Bölvað basl á Bond Viðskipti erlent Sektuð fyrir að auglýsa lénið á auglýsingaskilti Neytendur Sektuð fyrir að segjast vera best Neytendur Einföld leið til að nýta hugmyndavinnu oftar Atvinnulíf Að kúpla okkur frá vinnu um jólin Atvinnulíf Flugeldar Landsbjargar lítið hækkað á milli ára Neytendur Fleiri fréttir Slippurinn allur að sumri loknu „Langstærsta“ vikan í sögu Ölgerðarinnar Nefna fimm veitingastaði að baki „gervikjarasamningi“ Raforka til gagnavera snarminnkað Þekktir netþrjótar réðust á kerfi Wise Discover hefur flug milli München og Íslands Hærri barnabætur og ný gjöld á nikótínvörur á nýju ári Hluthafarnir samþykkja samruna Marels við JBT Sekta þau sem ekki greiða rétt fargjald um fimmtán þúsund krónur Elma Sif til Stika Solutions Baldvin sagði upp 99 manns sem mættu ekki á morgunfund Standa vörð um bílastæði viðskiptavina Kringlunnar Vonar að allir pakkar berist til þeirra fyrir jól Kortleggja tómar íbúðir í samstarfi við sveitarfélög Jóna Björk tekur við Garðheimum Segja son og tengdadóttur Reynis ekki koma nálægt Mannlífskaupum EastJet flýgur til Basel og Lyon Margrét áfram rektor á Bifröst Ingibjörg Þórdís til Elko Fimm mætt í Kauphöllina RÚV sker sér stærri sneið af auglýsingakökunni Ársverðbólga óbreytt á milli mánaða Tómar íbúðir á landinu nú um 10 þúsund Keppinautar eigi ekki að opna bækur sínar hver gagnvart öðrum Segir kaupverðið á Mannlífi ekki hátt Hætta í stjórn vegna yfirvofandi kaupa á Mannlífi Heimkaup undir hatt Samkaupa Leggja nýjan jarðstreng til Súðavíkur Heimildin að ganga frá kaupum á Mannlífi Lykilstjórnendur fá skell vegna tugmilljóna hagnaðar Sjá meira