Útgjöld vegna gjaldþrota aukast 10. október 2004 00:01
Útgjöld ábyrgðasjóðs launa vegna gjaldþrota fyrirtækja hafa aukist verulega undanfarin þrjú ár. Til að bregðast við þessu þarf sjóðurinn stórauknar fjárheimildir frá ríkissjóði. Í frumvarpi fjármálaráðherra til fjáraukalaga fyrir árið í ár er farið fram á þrjú hundruð milljóna króna viðbótarheimild fyrir Ábyrgðarsjóð launa þar sem greiðslur úr sjóðnum eru umtalsvert hærri en gert var ráð fyrir í fjárlögum. Fjárlög gerðu ráð fyrir að útgjöld yrðu 527 milljónir króna þannig að um er að ræða 44 prósenta aukningu. Nú er gert ráð fyrir að heildargreiðslur úr sjóðnum muni nema allt að 850 milljónum. Ábyrgðasjóðurinn tryggir í raun hag launþega þegar bú gjaldþrota vinnuveitenda hrökkva ekki upp í viðurkenndar forgangskröfur. Á árunum 1993-2001 voru heildargreiðslur aldrei hærri en 360 milljónir króna en árið 2002 tóku greiðslur úr sjóðnum kipp og meira en tvöfölduðust. Það hefur svo ekki gengið til baka. Stjórn sjóðsins er að sögn aðstoðarmanns félagsmálaráðherra að láta vinna sjálfsstæða úttekt á því hvers vegna útgjöldin hafa aukist svo, og segir hann menn að sjálfsögðu hafa af þessu miklar áhyggjur. Og hvaða fyrirtæki falla helst fyrir gjaldþrotsdjöflinum? Ja, ef við tökum mið af síðasta ári þá voru langhæstu greiðslurnar vegna þrotabúa í sérhæfðri þjónustu, útgáfustarfsemi og í byggingariðnaði. Fyrirtæki í sérhæfðri þjónustu eru að stærstum hluta tölvu- og upplýsingatæknifyrirtæki.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Hundruðum sagt upp í maí Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Sjá meira