Viðskipti

Matvara hækkar með rykk eftir tveggja mánaða lækkun
Eftir tveggja mánaða lækkun á verðlagi matvöru hækkar það nú með nokkrum rykk. Hækkunin milli september og október nemur einni prósentu, að mestu leyti vegna hækkunar á kjötvöru.

Bein útsending: Markaðsmál í brennidepli á nýsköpunarþingi
Íslandsstofa, Hugverkastofan, Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins og Rannís bjóða til Nýsköpunarþings 2024 í Grósku 22. október kl. 14:00-15:30. Streymt verður frá þinginu á Vísi.

Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins – Atvinnulífið leiðir
„Atvinnulífið leiðir“ er yfirskrift Umhverfisdags atvinnulífsins 2024 sem haldinn er á Hilton Nordica í dag.

Oculis rauk upp eftir tilkynningu
Gengi hlutabréfa augnlyfjafyrirtækisins Oculis rauk upp um tæplega tíu prósent í dag. Í morgun tilkynnti félagið að innritunum þátttakenda í rannsóknum á lyfinu OCS-01 hefði verið flýtt verulega.

Á Hrafnistu vinna öll að sama markmiði
Hrafnista er önnur stærsta heilbrigðisstofnun landsins sem rekur átta heimili í fimm sveitarfélögum. Stofnunin býr því að sterkum hópi starfsfólks og stjórnenda sem búa yfir gríðarlegri þekkingu og reynslu.

Nýr framkvæmdastjóri á Oche
Davíð Lúther Sigurðarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri veitinga- og afþreyingastaðarins Oche Reykjavík í Kringlunni. Davíð Lúther er einnig einn af eigendum staðarins.

Skilríki afhent í Hagkaupum í Skeifunni
Frá og með deginum í dag verður hægt að sækja vegabréf og nafnskírteini í verslun Hagkaupa í Skeifunni, allan sólahringinn, alla daga vikunnar.

Eitraður starfsmaður og góð ráð
Það er stundum talað um eitraða vinnustaðamenningu. Eða eitraða stjórnarhætti. En hvað með stöðuna þegar stjórnandi er með eitraðan starfsmann?

Frestun sölu Íslandsbanka jákvæð fyrir markaðinn
Ákveðið var í gær að slá sölu á útistandandi hlutum ríkisins í Íslandsbanka á frest. Greinandi segir þessa ákvörðun hafa jákvæð áhrif á markaðinn.

„Enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað“
Jóhann Már Helgason, forstöðumaður fyrirtækjasviðs Wolt á Íslandi og meðstjórnandi í hlaðvarpinu Dr. Football, er þessi hefðbundna B-týpa sem hefur verið gert að aðlaga sig að samfélagslegum þörfum A-týpunnar.

Sölunni slegið á frest
Ákveðið hefur verið að fresta sölu á útistandandi hlutum ríkisins í Íslandsbanka vegna markaðsaðstæðna og þess að skammt er til alþingiskosninga. 42,5 prósenta hlutur ríkisins er um 92 milljarða virði.

Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu
Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar verður innan tíðar opnuð í sögufrægu húsi við Laugaveg 29, sem áður hýsti verslunina Brynju. Húsið hefur verið tekið algjörlega í gegn á síðustu mánuðum.

Play í frjálsu falli
Hlutabréfaverð flugfélagsins Play er í frjálsu falli eftir tilkynningu um breytingu á rekstrarformi félagsins í vikunni. Einn af fjórum stærstu hluthöfum félagsins seldi 71 milljón hluta í morgun á genginu ein króna á hlut. Dagslokagengið á miðvikudag var 1,92 krónur.

Ekki trompast við fólk í vinnu eða á fundum
Við eigum okkur öll góða daga. Og ekki eins góða daga. Enginn getur sagt að þær stundir komi ekki upp, þar sem þráðurinn í okkur er jafnvel styttri en venjulega.

Semja við flugfélög í Færeyjum og á Grænlandi
Icelandair skrifaði undir tvo samstarfssamninga um sammerkt flug á Hringborði Norðurslóða í dag, við Air Greenland og færeyska flugfélagið Atlantic Airways. Með þessum samningum geta félögin boðið öflugar tengingar milli Grænlands og Færeyja annars vegar og Norður-Ameríku og Evrópu hins vegar, í einum flugmiða í gegnum Ísland.

Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla
Hagkaup hefur hætt sölu á Sodastream í kjölfar mótmælaaðgerða en síðustu mánuði hafa aðgerðasinnar fest límmiða á vörurnar og hvatt neytendur til að sniðganga vörur frá Ísrael vegna átaka Ísraelska hersins í Palestínu.

Frigus fór fýluferð í Landsrétt
Landsréttur hefur staðfest sýknudóm í máli Frigusar II ehf. á hendur Lindarhvoli og íslenska ríkinu. Frigus krafðist rúmlega 650 milljóna króna vegna þess að félagið fékk ekki að kaupa eignarhaldsfélagið Klakka, áður Exista, af Lindarhvoli.

Óljóst hvort breytingarnar bjargi rekstri Play
Sérfræðingur með áratuga reynslu úr flugmálaheiminum segir erfitt að segja til um hvort að umfangsmiklar breytingar á rekstri flugfélagsins Play muni koma til með að bjarga rekstri félagsins og tekur fram að vendingarnar komi honum ekki á óvart. Tíminn muni leiða í ljós hvort að Play neyðist til að ráðast í uppsagnir. Gengi bréfa í félaginu hefur fallið um tuttugu prósent í dag.

Úlfur Þór til Firma lögmanna
Úlfur Þór Andrason, lögmaður, hefur hafið störf hjá Firma lögmönnum.

Eins og AirBnb og Uber en fyrir tónlistarkennslu
Fjárfestingasjóðurinn Frumtak, ásamt hópi fjárfesta, hefur fjárfest fyrir 330 milljónir í íslenska nýsköpunarfyrirtækinu Moombix. Í tilkynningu segir að Moombix sé ætlað að umbylta tónlistarkennslu á netinu með því að tengja saman nemendur og kennara um allan heim.

„Síðan kemur í ljós að við erum í gjörólíkum störfum“
„Ég heyri það oft þegar ég ræði við til dæmis gamla skólafélaga eða aðra, að það er misskilningur á því í hverju starf verkefnastjóra felst. Ég segi kannski að ég starfi sem verkefnastjóri og þá segir fólk: Já er það? Ég líka! Síðan kemur í ljós að við erum í gjörólíkum störfum,“ segir Halla Margrét Hinriksdóttir, verkefnastjóri hjá Orku náttúrunnar.

Tvískiptur fasteignamarkaður og hækkandi vaxtabyrði
Fasteignamarkaðurinn er í dag tvískiptur; mikil eftirspurn er eftir ódýrum íbúðum, sem seljast hratt, en verulega hefur dregið úr eftirspurn eftir dýrari íbúðum. Greiðslubyrði verðtryggðra lána hefur ekki verið jafnmikil síðan í hruninu árið 2008.

„Play verður áfram íslenskt“
Flugfélagið Play mun ráðast í umfangsmiklar breytingar og dregur úr verulega úr tengiflugi milli Evrópu og Norður-Ameríku. Á sama tíma verður aukin áhersla sett á sólarlandaferðir. Vélum og starfsfólki á Íslandi mun fækka, og sótt um flugrekstrarleyfi erlendis.

Sækja um leyfi á Möltu
Flugfélagið Play hefur sótt um flugrekstrarleyfi á Möltu og ætlar að draga verulega úr umsvifum tengiflugs á milli Norður-Ameríku og Evrópu. Meiri fókus verði settur á sólarlandaáfangastaði frá Íslandi. Eftir breytingarnar verða um sex til sjö vélar staðsettar á Íslandi á íslenska flugrekstrarleyfinu og þrjár til fjórar erlendis.

Herdís hefði frekar viljað halda vöxtum óbreyttum
Allir nefndarmenn peningastefnunefndar Seðlabankans vildu lækka stýrivexti um 0,25 prósentur eins og var gert fyrir tveimur vikum. Herdís Steingrímsdóttir hefði þó fremur kosið að halda vöxtum óbreyttum.

Hér og nú fjölgar starfsmönnum
Tryggvi Gunnarsson, Rakel Mist Einarsdóttir og Kristján Valur Gíslason hafa verið ráðin til starfa hjá auglýsingastofunni Hér og nú.

Samið um 800 íbúðir á Ásbrú
Alls verða byggðar 800 íbúðir á Ásbrú auk uppbyggingar samfélagslegra innviða, almenningsrýmis og nýrra bygginga undir þjónustu fyrir íbúa. Samningur þess efnis milli Kadeco, Reykjanesbæjar og ríkisins um uppbyggingu á Ásbrú var undirritaður í dag.

Sex milljarðar í tekjur af nikótíni á næsta ári
Gert er ráð fyrir sex milljarða tekjum á næsta ári vegna gjaldtöku á nikótínvörur. Að auki má búast við því að hliðaráhrif vegna virðisaukaskatts gætu unið 1,5 milljörðum króna. Þetta kemur fram í mati á áhrifum frumvarps til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld.

Allsherjarinnköllun á krabbameinsvaldandi leikföngum
Allsherjarinnköllun stendur nú yfir á Rubbabu leikföngum, sem eru úr mjúku gúmmíi með flauelsmjúku yfirborði, en mest hefur selst af boltum og litlum farartækjum á hjólum. Leikföngin innihalda of mikið af efni sem getur verið krabbameinsvaldandi.

Slepptu biðröðinni og bókaðu dekkjaskiptin á nesdekk.is
Fyrstu snjókornin eru fallin þennan veturinn og því kominn tími á að panta dekkjaskipti og losna um leið við biðröðina þegar vetur konungur mætir af fullum þunga. Það er einfalt að bóka tíma á nesdekk.is og velja um leið réttu dekkin í leiðinni.