Viðskipti innlent

Segir Viðskiptaráð haldið þráhyggju
Formaður Bandalags Háskólamanna gefur lítið fyrir nýja úttekt Viðskiptaráðs Íslands á kjörum opinberra starfsmanna. Viðskiptaráð segir opinbera starfsmenn njóta að jafnaði nítján prósent betri kjara en starfsmenn á almennum markaði.

Helgi segir mennina ýmist ekkert eða lítið hafa unnið hjá Sling
Helgi Hermannsson, áður stærsti hluthafi og framkvæmdastjóri nýsköpunarfyrirtækisins Sling, hefur verið dæmdur til að greiða fyrrverandi starfsmönnum fyrirtækisins 67 milljónir króna í Landsrétti. Hann er ósáttur við dóminn og segir mennina ekki hafa unnið hjá Sling eða aðeins um skamman tíma.

Helgi þarf að greiða starfsmönnunum milljónirnar 67
Helgi Hermannsson, áður stærsti hluthafi og framkvæmdastjóri nýsköpunarfyrirtækisins Sling, hefur verið dæmdur til að greiða fyrrverandi starfsmönnum fyrirtækisins 67 milljónir króna í Landsrétti. Starfsmennirnir stefndu Helga sem þeir töldu hafa svikið sig um gerða samninga þegar Sling var selt fyrir fleiri milljarða króna. Fyrirtæki sem þeir höfðu tekið þátt í að byggja upp og átt kauprétt í.

Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Samorku
Nýsköpunarverðlaun Samorku verða afhent í fjórða sinn á opnum fundi í Grósku klukkan 15. Hægt verður að fylgjast með útsendingunni í beinu streymi.

Ari og Ágúst til Reita
Reitir fasteignafélag hefur ráðið tvo sérfræðinga til starfa, Ágúst Hilmarsson sem sérfræðing í greiningum á fjárfestingareignum og Ara Þorleifsson sem verkefnastjóra framkvæmda.

Ásdís Eir, Arnheiður og Ólöf Helga nýir forstöðumenn hjá Lyfju
Ásdís Eir Símonardóttir hefur verið ráðin forstöðumaður mannauðs og menningar hjá Lyfju og kemur ný inn í hóp lykilstjórnenda félagsins ásamt Arnheiði Leifsdóttur og Ólöfu Helgu Gunnarsdóttur sem eru nýir forstöðumenn á sínum sviðum.

Tilnefningar til bestu íslensku vörumerkjanna
Búið er að tilnefna bestu íslensku vörumerkin fimmta árið í röð. Í tilkynningu kemur fram að viðurkenning verði veitt í fjórum flokkum í ár. Þeir eru fyrirtækjamarkaður, einstaklingsmarkaður, 50 eða fleiri starfsmenn, einstaklingsmarkaður, 49 eða færri starfsmenn og síðast vörumerki vinnustaðar.

Opinberir starfsmenn séu með nítján prósent betri kjör
Í úttekt Viðskiptaráðs Íslands eru aukin réttindi opinberra starfsmanna talin jafngilda 19 prósent kauphækkun miðað við einkageirann. Sérréttindin sem þar eru undir eru styttri vinnuvika, ríkari veikindaréttur, aukið starfsöryggi og lengra orlof.

Hefur styrkt KR um 300 milljónir
Róbert Wessman stofnandi og forstjóri lyfjafyrirtækisins Alvotech hefur á síðustu árum styrkt íþróttastarf KR í gegnum fyrirtæki sín um tæplega 300 milljónir króna.

Kaup Símans á Noona gengin í gegn
Síminn hefur klárað kaup á öllu hlutafé í Noona Iceland ehf., sem sér um innlendan rekstur Noona Labs ehf en fyrirtækið heldur uppi samnefndu bókunarforriti.

Breytir gömlu heilsugæslunni í sex íbúðir
Hekla fasteignir hefur keypt fasteign að Drápuhlíð 14 til 16 þar sem áður var heilsugæsla. Félagið er í eigu forstjóra Heklu, Friðberts Friðbertssonar. Heilsugæslan flutti í Skógarhlíð sumarið 2023. Eignina keypti Friðbert af Reykjavíkurborg og ríkissjóði á um 341 milljón.

KEA hefur innreið á íbúðaleigumarkað á Akureyri
Ívera íbúðafélag, áður Heimstaden, hefur gengið frá samningum við dótturfélag KEA um kaup hins síðarnefnda á um 120 íbúðum Íveru á Akureyri. Kaupverð eignanna er rúmir 5 milljarðar króna.

Hætta við skerðingar norðan- og austantil
Landsvirkjun hefur tilkynnt stórnotendum á norður- og austurhluta landsins að ekki muni koma til þeirra skerðinga á afhendingu raforku um áramótin sem reiknað hafði verið með.

Bein útsending: Sameiginleg fjárfestakynning Marel og JBT
Sérstök fjárfestakynning fer fram með stjórnendum Marel og JBT í höfuðstöðvum Marel á Íslandi í dag. Kynningin hófst klukkan 13 en hægt er að fylgjast með í beinu streymi í spilaranum að neðan.

Stefnu Samskipa gegn Eimskipi vísað frá dómi
Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði stefnu Samskipa á hendur Eimskipi frá í dag. Samskip stefndi Eimskipi vegna tjóns sem fyrirtækið taldi sig hafa orðið fyrir vegna sáttar Eimskips við Samkeppniseftirlitið.

Wok to Walk opnar á Smáratorgi
Alþjóðlega veitingakeðjan Wok to Walk opnaði fyrsta veitingastað sinn á Íslandi á Smáratorgi í dag. Tveir staðir til viðbótar verða opnaðir innan tíðar.

Krafa upp á 650 milljónir varði ekki verulega hagsmuni
Hæstiréttur hefur hafnað beiðni Frigusar II um áfrýjunarleyfi í máli félagsins á hendur Lindarhvoli og íslenska ríkinu. Frigus krafðist rúmlega 650 milljóna króna vegna þess að félagið fékk ekki að kaupa eignarhaldsfélagið Klakka, áður Exista, af Lindarhvoli. Hæstiréttur telur málið ekki varða sérstaklega mikilvæga hagsmuni Frigusar.

Samskip fá áheyrn Hæstaréttar í samkeppnismálinu
Hæstiréttur hefur samþykkt beiðni Samskipa um áfrýjunarleyfi í máli þeirra á hendur Samkeppniseftirlitinu. Landsréttur taldi Samskip ekki geta skotið sátt sem Eimskip gerði við eftirlitið til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Sáttin gerir það að verkum að Eimskip og Samskip mega ekki eiga viðskipti við sömu fyrirtæki í flutningsþjónustu.

Margrét tekur við nýju hlutverki hjá Advania
Margrét Gunnlaugsdóttir hefur tekið við nýrri stöðu framkvæmdastjóra vaxtar og viðskiptaþróunar hjá Advania á Íslandi.

Innlendir framleiðendur stundi samkeppnishindranir
Innlendir framleiðendur stunda samkeppnishindranir með landbúnaðarvörur að mati Félags atvinnurekenda. Framleiðendur bjóði hæst í tollkvóta á búvörum til að halda uppi verði á eigin vörum. Dótturfélög sjái oftast um viðskiptin. Framkvæmdastjóri segir brýnt að stjórnvöld skerist í leikinn

Fjölmiðlar á landsbyggðinni fá rúma milljón hver
Ellefu einkareknir, sstaðbundnir fjölmiðlar utan höfuðborgarsvæðisins fá úthlutað styrkjum frá menningar- og viðskiptaráðuneytinu og innviðaráðuneytinu. Alls voru til úthlutunar 12,5 milljónir sem skiptast jafnt á milli allra miðla sem sóttu um og fær hver þeirra 1.136.363 krónur í sinn hlut.

Kapp kaupir bandarískt félag
Kapp ehf. hefur keypt meirihlutann í bandaríska félaginu Kami Tech Inc. í Seattle. Kami Tech framleiðir vélar og búnað úr ryðfrýju stáli og áli fyrir sjávarútvegsfyrirtæki og matvælafyrirtæki á svæðinu og þjónustar fyrirtæki á borð við American Seafoods, Trident Seafoods og Golden Alaska Seafoods sem eru allt sameiginlegir viðskiptavinir með Kapp.

Sesselja nýr forstjóri Genis
Sesselja Ómarsdóttir hefur tekið við stöðu forstjóra hjá Genis hf. Hún tekur við starfinu af Sigurgeiri Guðlaugssyni, sem hefur stýrt fyrirtækinu frá ársbyrjun 2022.

Álfrún leiðir almannatengslin hjá Íslandsstofu
Álfrún Pálsdóttir hefur tekið við starfi fagstjóra almannatengsla á markaðssamskiptasviði Íslandsstofu. Álfrún mun leiða almannatengsl Íslandsstofu með áherslu á að efla og styrkja ímynd Íslands og íslenskra útflutningsgreina á erlendum mörkuðum í samstarfi við fjölbreyttan hóp hagaðila.

Spá óbreyttri verðbólgu næstu tvo mánuði
Greingardeild Íslandsbanka spáir því að verðbólga haldist í 4,8 prósentum næstu tvo mánuði. Hún muni þó hjaðna nokkuð hratt eftir það og ná efri mörkum verðbólgumarkmiðs í mars.

Súkkulaðið verði dýrara hjá öllum um páskana
Pétur Thor Gunnarsson, framkvæmdastjóri Freyju og Atli Einarsson, viðskiptastjóri Góu-Lindu, segja von á svipuðum verðhækkunum hjá þeim og hjá Nóa Síríus. Neytendur muni finna fyrir þeim um til dæmis páskana. Þeir fóru yfir alls kyns súkkulaðitengt í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Aðstoðarmaður Katrínar til Aton
Bergþóra Benediktsdóttir hefur hafið störf sem ráðgjafi hjá samskipta- og hönnunarstofunni Aton. Hún var aðstoðarmaður Katrínar Jakobsdóttur alla forsætisráðherratíð hennar.

Lánakvótar svarið við háum vöxtum húsnæðislána
Hagfræðingur leggur til að stjórnvöld geri Seðlabanka Íslands kleift að nota lánakvóta til að ná niður verðbólgu og vaxtastigi. Mikilvægt sé að bankinn geti náð markmiðum sínum með öðrum hætti en tíðum og miklum stýrivaxtabreytingum. Þannig væri auðveldara að halda lánsvöxtum bæði lægri og stöðugri.

Spánverjar sólgnir í íslenskar gellur
Samherji sendir nú ferskar gellur með flugi til Spánar, enda eykst eftirspurn eftir gellum þar í landi gríðarlega á aðventunni.

Brotajárnsfyrirtæki metið á milljarða í kaupum Styrkáss
Í dag var undirritað samkomulag um helstu skilmála kaupsamnings milli Styrkáss, TF II slhf. og Hópsnes ehf. um kaup Styrkáss á öllu hlutafé í Hringrás ehf.. Hringrás er leiðandi í vinnslu brotajárns hér á landi og Styrkáss er að verða öflugt þjónustufyrirtæki við atvinnulífið í meirihlutaeigu Skeljar fjárfestingarfélags.