Veður

Lægð nálgast og bætir í vind í kvöld
Vindur er nú að ganga niður fyrir austan og fyrri part dags verður tiltölulega rólegt veður víðast hvar, stöku él og frost á bilinu núll til átta stig.

Fremur hæg breytileg átt en hvessir víða í kvöld
Það verður fremur hæg breytileg átt framan af degi og stöku él, en það fer að snjóa austanlands þegar líður á morguninn.

Dregur úr vindi og hiti um frostmark
Miðja lægðarinnar sem olli óveðri á landinu í gær er nú stödd um fjögur hundruð kílómetra austur af Dalatanga. Lægðin er á austurleið og fjarlægist landið svo það dregur úr vindi og úrkoman af hennar völdum norðan- og austanlands er einnig á undanhaldi.

Gulum viðvörunum fjölgar
Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular veðurviðvaranir fyrir Faxaflóa, Suðurland og Miðhálendið. Þegar höfðu verið gefnar út viðvaranir fyrir Suðausturland og Austfirði vegna lægðar.

Enn ein lægðin nálgast landið
Ört dýpkandi lægð nálgast landið úr suðvestri. Spár gera ráð fyrir að miðja lægðarinnar verði yfir Þorlákshöfn upp úr hádegi, en fari síðan í aust-norð-austur til Austfjarða. Gul viðvörun hefur verið gefin út fyrir Suðausturland og Austfirði.

Hæglætisveður framan af en lægð á morgun
Fremur hægri breytilegri átt og bjartviðri er spáð í dag víðast hvar en lítilsháttar éli á norðanverðu landinu fram yfir hádegi. Þó má gera ráð fyrir vaxandi suðaustanátt sunnan- og vestanlands síðdegis, tíu til fimmtán metrum á sekúndu undir kvöld með snjókomu eða slyddu af og til. Á morgun er gert ráð fyrir því að lægðarmiðja gangi yfir hluta landsins.

Vestlæg eða breytileg átt og dálítil él
Reikna má með vestlægri eða breytilegri átt í dag, fimm til þrettán metra á sekúndu. Þá er gert ráð fyrir dálitlum éljum norðan- og síðar vestanlands, en léttskýjuðu suðaustantil.

Vestlæg átt og hvassast austast á landinu
Veðurstofan gerir ráð fyrir vestlægri átt í dag, fimm til þrettán metrum á sekúndu, en heldur hvassara austast á landinu.

Éljagangur en léttskýjað norðaustanlands
Veðurstofan gerir ráð fyrir suðlægri átt í dag, yfirleitt á bilinu átta til þrettán metrum á sekúndu, og má reikna með éljagangi en léttskýjuðu norðaustanlands.

Vestanátt, skúrir og síðar él en bjart norðaustantil
Eftir hlýja og blauta sunnanátt gærdagsins verður vindur heldur vestanstæðari í dag og yfirleitt á bilinu átta til þrettán metrar á sekúndu.

Sunnan hvassviðri eða stormur og gular viðvaranir
Landsmenn mega reikna með sunnan hvassviðri eða stormi í dag Rigning verður um sunnan- og vestanvert landið en yfirleitt þurrt norðan- og austanlands.

Allhvöss sunnanátt, rigning og má reikna með vatnselg á götum
Veðurstofan spáir allhvassri sunnanátt með rigningu eða slyddu um sunnan- og vestanvert landið í dag, en slyddu eða snjókomu fyrir norðan fram eftir degi.

Hlánun í fyrramálið og talsvert um vatnselgi
Snemma í fyrramálið mun hlána nokkuð hratt með rigningu og þá mun nýr snjór bráðna auðveldlega. Snjóa á víðast hvar um landið í nótt og mun nýi snjórinn bráðna auðveldlega.

Útlit fyrir skaplegt verður eftir hádegi en hvessir í kvöld
Veðurstofan gerir ráð fyrir að það dragi úr vindi og úrkomu með morgninum og að útlit sé fyrir skaplegasta veður á landinu um og eftir hádegi. Vindur verði ekki nema suðvestan fimm til þrettán metrar á sekúndu seinni partinn, þurrt um allt land og hiti um eða undir frostmarki.

Víða éljagangur og hvasst suðvestantil
Veðurstofan gerir ráð fyrir suðvestan fimm til þrettán metrum á sekúndu í dag en heldur hvassara við suður- og suðvesturströndina.

„Seinasta sem við viljum er að vera úlfur, úlfur týpan“
Von er á vonskuveðri og almannavarnir hafa lýst yfir óvissustigi á landinu öllu í fyrramálið. Appelsínugular viðvaranir verða í gildi alls staðar nema á Vestfjörðum í fyrramálið. Fólk er hvatt til þess að fylgjast vel með og reyna eftir fremsta megni að fresta ferðum sínum á meðan veðrið gengur yfir.

Appelsínugular viðvaranir gefnar út fyrir nær allt land
Veðurstofan hefur gefið út appelsínugular viðvaranir vegna sunnan eða suðvestan storms sem skellur á landið í fyrramálið.

Suðvestanátt með éljum í dag og hvessir á morgun
Reikna má með suðvestanátt með éljum í dag en björtu með köflum á norðaustanverðu landinu. Það mælist enn allt að tíu stiga hiti á Austfjörðum nú í morgunsárið en hitastig fer lækkandi í dag og verður í kringum frostmark seinnipartinn.

Guli liturinn tekur yfir landið á þriðjudag
Gul veðurviðvörun verður í gildi á öllu landinu á þriðjudaginn milli klukkan sjö um morgun og sex að kvöldi til.

Gular viðvaranir enn og aftur á morgun
Gular viðvaranir verða í gildi alls staðar á landinu á morgun nema á Suðausturlandi og suðvesturhorninu. Búist er við talsverðri rigningu á Breiðafirði í nótt og á morgun.

Aldrei jafn kalt í janúar á þessari öld
Janúarmánuðurinn sem var að líða er sá kaldasti á Íslandi á 21. öldinni. Þá hafa ekki verið færri sólskinsstundir í Reykjavík síðan árið 1977. Aðeins 2,5 sólskinsstundir mældust á Akureyri í janúar.

Reikna með hviðum að 45 metrum undir Eyjafjöllum og Kjalarnesi
Gert er ráð fyrir snörpum hviðum allt að 40 til 45 metra á sekúndu í suðaustanátt undir Eyjafjöllum og á utanverðu Kjalarnesi nærri hádegi í dag.

Gengur í hvassviðri eða storm
Þó að það sé tiltölulega rólegt veður á landinu nú morgunsárið þá varir það ekki lengi. Það mun ganga í suðaustan og sunnan hvassviðri eða storm þegar líður á daginn. Órólegt veður er í kortunum.

Von á stormi á morgun og fleiri gular viðvaranir gefnar út
Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir fyrir landið allt á morgun vegna suðaustan hvassviðris eða storms. Gular viðvaranir eru nú í gildi eða hafa verið gefnar út fyrir landið allt.

Hvassviðri, gular viðvaranir og önnur lægð á leiðinni
Útlit er fyrir austan og suðaustan hvassviðri eða storm á landinu í dag. Það verður úrkoma um allt land og víða á formi slyddu eða snjókomu og hiti verður kringum frostmark. Gular viðvaranir hafa þegar tekið eða munu taka gildi á næstu klukkustundum um nær allt land og eru þær í gildi fram á kvöld eða nótt. Einungis höfuðborgarsvæðið er undanskilið hvað viðvaranir Veðurstofu varðar.

Gefa út gular viðvaranir fyrir nær allt landið
Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir fyrir nær allt landið á morgun vegna hvassviðris eða storms og hríðar. Fyrstu viðvaranirnar taka gildi snemma í fyrramálið og gilda einhverjar fram á kvöld.

Hvessir í kvöld og má búast við stormi til fjalla á morgun
Útlit er fyrir norðaustan fimm til tíu metra á sekúndu og él á Norður- og Austurlandi í dag. Reikna má með hægari vindi og nokkuð björtu veðri sunnan heiða. Frost verður á bilinu núll til sjö stig.

Reikna með hviðum að 55 metrum á sekúndu
Veður fer hratt versnandi á Suðurlandi upp úr hádegi. Í Mýrdal og undir Eyjafjöllum verður ofsaveður og má reikna með hviðum, 40 til 55 metrum á sekúndu, milli klukkan 14 og 18 í dag og litlu síðar í Öræfum.

Djúp lægð skellur á landið eftir hádegið
Ört dýpkandi lægð nálgast nú landið úr suðvestri og má því reikna með vaxandi austanátt, 18 til 25 metrum á sekúndu síðdegis og víða snjókoma. Hvassara verður syðst á landinu fram á kvöld með talsverðri ofankomu.

Tólf veðurviðvaranir næstu tvo daga
Appelsínugular og gular veðurviðvörunum ráða ríkjum á morgun og hinn á meirihluta landsins. Búist er við snjókomu sums staðar ásamt stormi og lélegu skyggni víða.