Skoðun

Að kasta á­byrgðinni á aðra

Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar

Eftir langa bið kynnti ríkisstjórnin á sérstökum blaðamannafundi aðgerðir sínar til að leggja sitt af mörkum til þess að stemma stigu við verðbólgu í landinu. Sannast sagna hefði verið best að senda út stutta tilkynningu á stjórnarráðsvefnum í staðinn fyrir þetta leikhús.

Skoðun

Tíu ára at­vinnu­stefna, tíu árum of seint: Regn­hlíf gegn flóð­bylgju

Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Við lifum á tímum þar sem tækniþróun mælist ekki lengur í áratugum, eða jafnvel árum, heldur mánuðum. Þegar ríkisstjórnin kynnti nýlega heildstæða atvinnustefnu sína, „Vaxtarplan til 2035“, mætti halda að stjórnvöld væru að búa okkur undir framtíðina. Raunin er því miður allt önnur.

Skoðun

Landskjör­stjórn gerir at­huga­semd við spurninguna

Erna Bjarnadóttir skrifar

Í grein eftir undirritaða sem birtist 31. mars á Vísi, „Á Landskjörstjórn að gera athugasemdir við spurninguna?“, var bent á að orðalagið „halda áfram viðræðum“ gæfi í skyn ákveðna stöðu sem væri ekki sjálfgefin — og að slíkt orðalag gæti haft áhrif á það hvernig kjósendur skilja spurninguna.

Skoðun

Börnin í Hvera­gerði

Þorsteinn Hjartarson og Birgitta Ragnarsdóttir skrifa

Skólastefna Hveragerðisbæjar er frá árinu 2022 og því komin til ára sinna. Það verður eitt af forgangsmálum S-listans í bæjarstjórn að setja af stað stefnumótunarvinnu í málefnum barna og ungmenna.

Skoðun

Afvegaleiðing um­ræðu um ESB

Sigurður Kristinn Pálsson skrifar

Prófessor í íslenskri málfræði segir “íslensk málfræði felst í því að vera á verði gagnvart því sem sjórnvöld og önnur valdamikil öfl misbeiti tungumálinu í blekkingarskyni”.

Skoðun

Er ein­mana­leiki nýja tóbakið?

Sigurður Árni Reynisson skrifar

Einmanaleiki er hljóðlátt ákall sálarinnar eftir samfélagi, merki þess að okkur skorti þann samhljóm sem gerir lífið ríkt og merkingarbært.

Skoðun

Hafa af þér full­veldið, Ei­ríkur??

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Málflutningur hérlendra Evrópusambandssinna verður sífellt áhugaverðari. Frá hótun Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra í Heimildinni á dögunum um að það hefði „afdrifaríkar afleiðingar“ fyrir þjóðina, ef ekki yrði samþykkt í fyrirhuguðu þjóðaratkvæði í lok ágúst að hefja umsóknarferli að Evrópusambandinu, yfir í vefsíðu Vilhjálms Þorsteinssonar, kaupsýslumanns og fyrrverandi gjaldkera Samfylkingarinnar, þar sem stuðst er við gervigreind, reyndar fleiri en eitt slíkt forrit, sem tjáði honum meðal annars ranglega nýverið að Írland hefði alls engan her.

Skoðun

Röddin - Ís­lensku hljóð­varps- og hlaðvarpsverðlaunin

Gunnar Salvarsson skrifar

Röddin – Íslensku hljóðvarps- og hlaðvarpsverðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í gærkvöldi. Þetta var lágstemmd athöfn án alls íburðar, en sviðsmyndin tengd hundrað ára sögu útvarps á Íslandi. Fyrsta formlega útvarpssendingin fór fram í mars 1926.

Skoðun

Tryggjum fæðu- og elds­neytisöryggi með upp­byggingu á Dys­nesi

Pétur Ólafsson skrifar

Öryggi og sjálfbærni samfélags eru meðal mikilvægustu verkefna hvers ríkis. Fyrir eyþjóð eins og Ísland, sem byggir afkomu sína að verulegu leyti á innflutningi á eldsneyti og matvælum, er sérstaklega mikilvægt að huga að því hvernig birgðahald er skipulagt og tryggt.

Skoðun

Ef þetta er sam­særi, þá er ég greini­lega að gera þetta vit­laust

Haukur Logi Jóhannsson skrifar

Ég verð að viðurkenna eitt. Ef loftslagsmálin eru samsæri, þá hef ég greinilega valið mér ranga stöðu í því. Samkvæmt sumum ætti ég að vera hluti af alþjóðlegu neti sem græðir á því að búa til reglur, flækja líf almennings og ýta undir einhvers konar græna valdbeitingu.

Skoðun

Nýtt Álfta­nes á einu kjör­tíma­bili

Hreiðar Þór Jónsson skrifar

Á síðustu árum hefur íbúum Garðabæjar fjölgað hratt. Hér er ekki verið að vísa til sameiningarinnar við Álftanes árið 2013, heldur þeirrar uppbyggingar sem hefur átt sér stað síðan þá. Frá 2013 hefur íbúafjöldi aukist um rúmlega 50% og í byrjun árs voru íbúar orðnir tæplega 21 þúsund.

Skoðun

Evrópa fyrir ís­lendinga

Ásgeir Þorgeirsson skrifar

Umræðan um tengsl Íslands við Evrópusambandið verður gjarnan óskýr vegna þess að hún snýst meira um kerfi en fólk. Fyrir hvern einstakling skiptir meira máli hvað það kostar að búa hér og hversu fyrirsjáanlegt það er að reka hér heimili.

Skoðun

Hættum beit í bænum

Davíð Arnar Stefánsson skrifar

Í Hafnarfirði eru tvö beitarhólf – annars vegar á Krýsuvíkurheiði sunnan Suðurstrandarvegar, liðlega12 km2, og hins vegar á sveitarfélagamörkum Hafnarfjarðar og Grindavíkur sunnarlega í Sveifluhálsi, um þrisvar sinnum stærra eða liðlega 35 km2.

Skoðun

Gagn­sæi í á­kvarðana­töku

Heiðrún Kristmundsdóttir skrifar

Í smærri samfélögum vill það oft vera þannig að allir þekkja alla, eða kunna deili hver á öðrum. Hverra manna þú ert, eða hvaðan þú kemur. Þetta getur verið ákveðið auðkenni og fylgt samfélaginu þrátt fyrir vöxt þess. Það fylgir þessu öryggi.

Skoðun

Ný­sköpun í breyttri heims­mynd

Erna Björnsdóttir skrifar

Þegar rætt er um útflutningsgreinar Íslands beinist athyglin oft að hinum hefðbundnu stoðum hagkerfisins. Heimurinn er hins vegar að taka hröðum breytingum og það sama á við um tækifæri og vöxt í útflutningi Íslands.

Skoðun

Þau sem borga ekki

Silja Sóley Birgisdóttir skrifar

Það grasserar óréttlæti í íslenska skattkerfinu. Bilið milli hinna ríku og almennings breikkar ár eftir ár. Höfuðástæðan er sú að síðustu 30 ár hefur skattkerfið mótast af hagsmunum þeirra sem eiga mestu peningana í íslensku samfélagi.

Skoðun

Spjaldtölvur í námi nem­enda - verk­færi djöfulsins?

Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar

Ég kynntist fyrst notkun spjaldtölva í námi nemenda sem kennari í innleiðingu spjaldtölva í Kópavogi árið 2015. Á þeim tíma kenndi ég stærðfræði á unglingastigi og sá fljótt þau miklu tækifæri sem opnuðust þegar allir nemendur fengu aðgang að eigin spjaldtölvu.

Skoðun

Rúllum út rauða dreglinum

Pétur Marteinsson skrifar

„Kerfið er of þungt.“ Þessi setning hefur fylgt mér úr mörgum samtölum sem ég hef átt við borgarbúa, fólk í atvinnulífinu og starfsfólk í framlínunni síðustu vikur.

Skoðun

Ég, glæpa­maður

Daníel Hjörvar Guðmundsson skrifar

Í gær eftir langa bið var réttlætinu loksins fullnægt. Eftir ítarlega rannsókn lögreglu, sem fól í sér ótal vettvangsathuganir að því er virðist, afskipti af Wolt-sendlum, og vörutalningu???

Skoðun