Lífið
1 2 3 4 5 6 7 8 … 334 ›
Hraustustu hjón Garðabæjar selja glæsihýsi Heilsukokkurinn Kristjana Steingrímsdóttir, betur þekkt sem Jana, og eiginmaður hennar Sigþór Júlíusson framkvæmdastjóri Leiknis og fyrrverandi knattspyrnumaður, hafa sett fallegt raðhús við Byggakur í Garðabæ á sölu. Ásett verð er 225 milljónir. Lífið 5.6.2025 09:35
Kveða orðróminn í kútinn: „Það eru engar deilur“ Aimee Lou Wood og Walton Goggins, sem léku hjónin Chelsea og Rick í þriðju seríunni um Hvíta lótusinn, neita því bæði að kastast hafi í kekki milli þeirra eftir að tökum lauk. Orðrómur þess efnis fór af stað eftir að Goggins hætti að fylgja Wood á samfélagsmiðlum. Lífið 4.6.2025 21:29
Endurfrumsýning Brúðubílsins: „Lilli er eiginlega bróðir minn“ Fall er fararheill - en Brúðubíllinn neyddist til að aflýsa endurfrumsýningu sinni í gær eftir að hafa legið í dvala til lengri tíma. Því var frumsýnt í dag í blíðviðri í Guðmundarlundi. Fréttastofa fylgdist með endurkomu eins frægasta apa landsins. Lífið 4.6.2025 19:01
Opinberar nákvæmar upplýsingar um brjóstaaðgerðina Athafnakonan og raunveruleikastjarnan Kylie Jenner vakti nýverið mikla athygli þegar hún opinberaði nákvæmar upplýsingar um brjóstaaðgerð sem hún hafði gengist undir. Hún ráðleggur konum að bíða með slíkar aðgerðir þar til eftir barneignir. Lífið 4.6.2025 16:29
Geðbrigði ríður á vaðið í tónleikaröð á Dillon Jón Bjarni Steinsson eigandi Dillon hyggst efna til tónleikaraðar í sumar. Lífið 4.6.2025 16:06
Í sjokki að sonurinn hafi verið á typpinu Leikarinn og vaxtaræktargoðsögnin Arnold Schwarzenegger fékk vægt áfall við að sjá Patrick son sinn nakinn á skjánum. Patrick fór með stórt hlutverk í nýjustu seríu af hinum gríðarlega vinsælu þáttum White Lotus. Lífið 4.6.2025 14:00
Vanvirkar fjölskyldur og hlutverkin sem skilja eftir sár Margir taka ómeðvitað að sér ákveðin hlutverk í vanvirkum fjölskyldum, hlutverk sem ekki aðeins hafa áhrif langt fram á fullorðinsár, heldur geta jafnvel gengið í erfðir. Valdimar Þór Svavarsson, meðferðaraðili og annar eigandi ráðgjafastofunnar Fyrsta skrefið, ræðir þessi hlutverk í nýjasta þætti Íslands í dag. Lífið 4.6.2025 13:56
Morten Harket greinist með Parkinson Hinn norski Morten Harket, söngvari sveitarinnar A-ha, hefur greinst með Parkinson-sjúkdóminn. Lífið 4.6.2025 12:22
Heillandi heimili Sigríðar hjá Birtingi í hjarta Hafnarfjarðar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri og eigandi Birtíngs, og eiginmaður hennar, Karl Daði Lúðvíksson verkefnastjóri, hafa sett fallega og hlýlega íbúð við Reykjavíkurveg í Hafnarfirði á sölu. Ásett verð er 96,5 milljónir. Lífið 4.6.2025 11:34
Ekki bara tónleikar heldur alhliða þungarokkshátíð Þungarokkshátíðin Sátan verður haldin öðru sinni í Stykkishólmi um helgina og er stemningin gríðarlega góð að sögn skipuleggjenda. Herlegheitin hefjast á fimmtudaginn og er undirbúningur á lokametrunum. Lífið 4.6.2025 10:02
Fjórum íslenskum útgáfum fagnað í tónlistarveislu í Iðnó Á fimmtudag verður blásið til tónlistarveislu í Iðnó til að fagna fjórum nýjum íslenskum útgáfum. Á tónleikunum koma fram Pan Thorarensen og flytur nýtt verk sitt Ljóstillífun, hljómsveitin Hekla sem flytur nýja breiðskífu sína Turnar, Jóhannes Pálmason sem flytur plötu sína Í formi Úlfs. Síðast en ekki seint eru það Unfiled sem er samstarf Atla Bollasonar og Guðmundar Úlfarssonar. Lífið 3.6.2025 21:03
Aron segist hættur í ClubDub Tónlistarmaðurinn Aron Kristinn Jónasson, sem hingað til hefur verið annar helmingur raftónlistartvíeykisins ClubDub, segist hættur í sveitinni. Lífið 3.6.2025 16:48
Ragga nagli í hlutverk fjallkonu í Danmörku Ragnhildur Þórðardóttir, sálfræðingur og einkaþjálfari, betur þekkt sem Ragga Nagli, flytur ávarp fjallkonu á Þjóðhátíð Íslendingafélagsins í Kaupmannahöfn sem fer fram á Amager Strand þann 14. júní næstkomandi. Lífið 3.6.2025 15:55
Dregur til baka hluta ásakana á hendur Baldoni Leikkonan Blake Lively hyggst draga til baka hluta ásakana gegn leikstjóranum og leikaranum Justin Baldoni. Undanfarið ár hafa þau staðið í stappi vegna ásakana hennar um kynferðisáreiti en bæði saka þau hvort annað um ófrægigingarherferð gagnvart sér. Lífið 3.6.2025 14:21
Aron Kristinn og Lára keyptu nýstárlega miðbæjarperlu Tónlistarmaðurinn Aron Kristinn Jónasson og viðskiptafræðingurinn Lára Portal hafa fest kaup á glæsilegri íbúð við Vesturgötu í Reykjavík. Um er að ræða mikið endurnýjaða 103,3 fermetra íbúð í húsi sem var byggt árið 1956. Kaupverðið nam 96,1 milljón króna. Lífið 3.6.2025 13:36
Módernískur retró-stíll í hjarta miðborgarinnar Í glæsilegu hornhúsi við Hverfisgötu í hjarta miðborgarinnar er nú til sölu björt og mikið endurnýjuð íbúð á annarri hæð í húsi sem var reist var árið 1906. Ásett verð er 139,9 milljónir króna. Lífið 3.6.2025 10:08
Tíu af fyndnustu dýralífsmyndunum Ljósmyndasamkeppnin Nikon Comedy wildlife photography awards 2025 er hafin. Um árlega keppni er að ræða þar sem fólk um allan heim sendir inn þúsundir fyndnar ljósmyndir sem það fangar í náttúrunni. Lífið 3.6.2025 08:40
Er með gervigreindarþjálfara „Ég er mjög heppin að hafa haft tækifæri til að gera mikið á öllum mínum lífstímabilum. Að ferðast um allan heim er ofarlega á listanum, að fylla bæði Hörpu og Laugardalshöll og gefa út bók. En ég held að stofnun á Collagenx í New York toppi listann eins og er,“ segir Alda Karen Hjaltalín Lopez, athafnakona og fyrirlesari, þegar hún er spurð um hennar stærsta afrek í lífinu. Lífið 3.6.2025 07:01
Væbaramanía og múgæsingur er nýtt átak var kynnt Hálfgerður múgæsingur myndaðist á Thorsplani þegar að foreldraráð Hafnarfjarðarbæjar með hjálp VÆB-bræðra kynntu nýtt framtak sem boðar símalaust sumar fyrir grunnskólanemendur. Krakkar í banastuði sögðu það ekki koma til greina að vera í símanum. Lífið 2.6.2025 20:31
Bergþór Másson selur slotið á ný Hlaðvarpsstjórnandinn Bergþór Másson hefur sett íbúð sína við Hverfsigötu á sölu. Er þetta í annað sinn sem íbúðin er sett á sölu. Lífið 2.6.2025 20:19
Kaffibarinn til sölu í smækkaðri mynd Kaffibarinn á Bergstaðastræti er ein elsta og þekktasta stærð næturlífsflórunnar í Reykjavík. Hann er nú til sölu, sem fuglahús. Lífið 2.6.2025 13:03
Troðfylltu Laugardalshöll á umtöluðum tónleikum FM95Blö Um tíu þúsund gestir voru á Fermingarveisla aldarinnar í Laugardalshöll á laugardagskvöld þegar þríeykið Auðunn Blöndal, Steinþór Hróar Steinþórsson og Egill Einarsson úr FM95Blö fögnuðu fjórtán ára afmæli útvarpsþáttarins. Gríðarleg stemmning var á tónleikunum sem voru þó ekki nægilega vel skipulagðir með tilliti til öryggis tónleikagesta. Lífið 2.6.2025 12:31
Söknuðurinn bar Skoppu og Skrítlu ofurliði Skoppa og Skrítla snúa aftur eftir nokkurra ára hlé og efna til tónleikasýningar á aðventunni. Skoppa segir ýmislegt skemmtilegt á teikniborðinu og að söknuðurinn eftir sviðinu og krökkunum hafi borið þær ofurliði. Lífið 2.6.2025 11:25
Stjörnulífið: Sumarlegar skvísur og stórtónleikar Liðin vika var afar viðburðarrík hjá stjörnum landsins. Sumarteiti, utanlandsferðir, tónleikar og sólríkar samverustundir bar þar hæst. Lífið 2.6.2025 10:16
Hvar eru þau nú? Ráðherrar fráfarandi ríkisstjórnar hafa stofnað fyrirtæki, fengið mynd af sér með Boris Johnson og einn gengur nú Jakobsveginn. Aðrir hyggja á háskólanám, dúndra út Facebook-færslum eða lyfta níðþungum lóðum. Einn er orðinn forseti, þó ekki forseti Íslands. Já, það er líf eftir ráðherratíð. Lífið 2.6.2025 08:00
Myndaveisla: Á bólakafi að skoða fiska á Sjómannadaginn Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur víða um land í dag. Gestir hátíðarinnar á Granda í Reykjavík skemmtu sér konunglega við að skoða hina ýmsu furðufiska, boðið var upp á andlitsmálningu, koddaslag, siglingu með varðskipinu Freyju og margt fleira. Lífið 1.6.2025 21:58
Birta Líf og Gunnar Patrik gáfu dótturinni nafn Birta Líf Ólafsdóttir hlaðvarpsstjórnandi og Gunnar Patrik Sigurðsson fasteignasali gáfu þriggja mánaða dóttur sinni nafn. Hún fékk nafnið Elísabet Eva. Lífið 1.6.2025 21:02
Sirkushundur skemmtir ferðamönnum á Höfn í sumar Tíkin Panda hefur meira en nóg að gera í sumar á Höfn í Hornafirði því hún er sirkus hundur og verður með fjölmargar sýningar með eiganda sínum í allt sumar fyrir farþega á skemmtiferðaskipum, sem koma á Höfn. Lífið 1.6.2025 20:05
Race Across the World-keppandi látinn eftir bílveltu Bretinn Sam Gardiner, sem þekktur er fyrir að hafa verið meðal keppanda í raunveruleikaþáttunum Race Across the World, er látinn eftir bílveltu á hraðbraut nærri Manchester í Englandi. Hann varð 24 ára gamall. Lífið 1.6.2025 17:50
Valerie Mahaffey er látin Bandaríska leikkonan Valerie Mahaffey, sem er einna þekktust fyrir leik sinn í Seinfeld og Aðþrengdum eiginkonum, er látin 71 árs að aldri. Hún lést í Los Angeles föstudaginn 30. maí eftir baráttu við krabbamein. Lífið 1.6.2025 10:47