
Heimsmarkmiðin

Forsætisráðherra fer fyrir sendinefnd Íslands á fundi kvennanefndar SÞ
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og aðrir norrænir ráðherrar jafnréttismála á Norðurlöndunum afhentu Phumzile Mlambo-Ngcuka framkvæmdastjóra UN Women viljayfirlýsingu um að leggja áherslu á árangur í jafnréttismálum við innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Viljayfirlýsingin var afhent við upphaf 63. fundar kvennanefndarinnar SÞ í New York í gær.

Fánar í hálfa stöng hjá stofnunum Sameinuðu þjóðanna
Að minnsta kosti 22 starfsmenn Sameinuðu þjóðanna voru í Boeing þotunni sem fórst í Eþíópíu í gær. Flugleiðin á milli Addis Ababa í Eþíópíu og Næróbí í Kenía er mikið notuð af starfsfólki Sameinuðu þjóðanna og starfsfólki alþjóðlegra samtaka sem sinna mannúðar- og þróunarmálum.

Nánast óbreytt atvinnuþátttaka kvenna og karla síðustu þrjá áratugi
Hlutfall atvinnuþátttöku karla og kvenna í heiminum hefur nánast staðið í stað síðustu þrjá áratugi, samkvæmt nýrri skýrslu Alþjóða vinnumálastofnunarinnar. Á síðasta ári voru 45% kvenna eldri en fimmtán ára í launuðu starfi samanborið við 71% karla.

„Ég var svo spennt þegar ég fékk fyrstu launagreiðsluna!"
Aleeza Hafeez hlaut starfsþjálfun hjá UN Women í Pakistan á vegum verkefnis sem miðar að því að styrkja stöðu kvenna sem starfa í fataverksmiðjum. Í dag hefur hún umsjón með tveimur deildum innan verksmiðjunnar og notar tekjurnar til að sjá fyrir fjölskyldu sinni ásamt föður sínum.

Ráðherra stýrði árlegum samráðsfundi NB8 ríkjanna með forseta Alþjóðabankans
Jarðhiti, málefni hafsins, jafnréttismál og mannréttindi voru til umræðu á tvíhliða fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og Kristalina Georgieva, starfandi forseta Alþjóðabankans í gær. Einnig var rætt um fyrirhugaða stjórnarsetu Íslands í bankanum fyrir hönd kjördæmis Norðurlanda og Eystrasaltsríkja til næstu tveggja ára.

Verðandi forseti Alþjóðabankans á fundi með ráðherrum Norðurlanda og Eystrasaltsríkja
Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, fundaði með David Malpass, aðstoðarfjármálaráðherra Bandaríkjanna í gær. Fundinn sátu einnig ráðherrar Norðurlanda og Eystrasaltsríkja í kjördæmi Alþjóðabankans.

Fulltrúar einkafyrirtækja í sendiför til Gana
Halldór Gíslason, starfsmaður Íslandsbanka og Árdís Björk Jónsdóttir, starfsmaður Sýnar, héldu til Gana um nýliðna helgi. Sendiferðin er hluti af metnaðarfullu verkefni Rauða krossins „Brúun hins stafræna bils“ sem snýr að uppbyggingu upplýsinga- og samskiptatæknigetu afrískra landsfélaga, Rauða krossins og Rauða hálfmánans, svo þau geti sinnt hjálparstarfi á skilvirkari og árangursríkari hátt.

Íslendingur opnar brugghús í Úganda
Páll Kvaran, Íslendingur búsettur í Úganda, vinnur nú að því að opna brugghús þar í landi ásamt kanadískum samstarfsmanni. Páll hefur búið í Úganda í um sjö ár og unnið að beinni þróunarsamvinnu með frjálsum félagasamtökum og alþjóðastofnunum í nærri tíu ár, fyrst sem starfsnemi í íslenska sendiráðinu í Kampala.

Starfandi forseti Alþjóðabankans ræðir stöðu kvenna á vinnumarkaði á málstofu í Reykjavík
Kristina Georgieva, starfandi forseti Alþjóðabankans, tekur þátt í málstofu á vegum utanríkisráðuneytisins og Alþjóðabankans um stöðu kvenna á vinnumarkaði næstkomandi mánudag. Niðurstöður nýrrar skýrslu bankans benda til þess að ríki veiti konum að meðaltali 75% af réttindum karla á vinnumarkaði.

Ný samstarfsverkefni í þróunarsamvinnu í Sierra Leone og Líberíu
Skrifað var undir samstarfssamninga við Sierra Leóne og Líberíu um ný þróunarsamvinnuverkefni fyrr í mánuðinum. Verkefnin styðja sérstaklega við heimsmarkmið nr. 14 um sjálfbæra nýtingu sjávarauðlinda og verndun hafsins.

Viðkvæmt ástand hjá SOS í Venesúela en allir heilir
Öll börn og starfsfólk í SOS barnaþorpunum í Venesúela og handan landamæranna eru heil á húfi. Öryggið er þó ekki tryggt og starfsfólk er í viðbragðsstöðu ef bregðast þarf við hættuástandi.

Verkefni Rauða krossins og utanríkisráðuneytisins bjarga mannslífum í Sierra Leóne
Rauði krossinn á Íslandi hefur sett af stað verkefni sem veitir lífsbjargandi aðstoð í Sierra Leóne og bætir velferð þúsunda, með stuðningi Mannvina Rauða krossins og utanríkisráðuneytisins.

Aukin framlög Íslands til bágstaddra í Jemen
Guðlaugur Þór utanríkisráðherra tók í morgun þátt í sérstakri framlagaráðstefnu um Jemen sem Sameinuðu þjóðirnar og ríkisstjórnir Svíþjóðar og Sviss stóðu fyrir. Þar hét hann 30 milljóna króna viðbótarframlagi íslenskra stjórnvalda til mannúðaraðstoðar í landinu.

Tæplega þúsund börn féllu í Afganistan á síðasta ári
Vopnuð átak í Afganistan kostuðu 3800 mannslíf óbreyttra borgara á síðasta ári, segir í nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna. Af þessum fjölda féllu 927 börn.

Sendifulltrúi Rauða krossins til Nígeríu
Baldur Steinn Helgason, sendifulltrúi Rauða krossins á Íslandi, stýrir birgðastjórnun fyrir skrifstofu Alþjóðasambands Rauða krossins í Abuja í Nígeríu. Verkefnið tengist neyðarviðbrögðum vegna flóða sem urðu í mið- og suðurhluta Nígeríu á síðasta ári.

Ungmenni eru kyndilberar heimsmarkmiðanna
Þátttaka ungs fólk í ákvarðanatöku hvað varðar sjálfbæra þróun er nauðsynleg ef við ætlum að ná heimsmarkmiðunum fyrir 2030. Ungmenni á aldrinum 15 til 24 ára eru um 16% mannkyns.

Íslendingar í lið með FAO gegn ólöglegum fiskveiðum
"Samstarfið lagar sig einkar vel að pólitískri stefnu Íslands í alþjóðamálum með ríkum áherslum á málefni hafsins," segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra um nýjan samstarfssamning ráðuneytisins við Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna, FAO.

Tæplega helmingur tungumála í útrýmingarhættu
43% tungumála heimsins eru í útrýmingarhættu. "Á tveggja vikna fresti deyr tungumál út og með því hverfur menningarleg og vitsmunaleg arfleifð,“ segir á vef Upplýsingaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna. Alþjóðadagur móðurmálsins er á morgun.

Nýtt verkefni SOS Barnaþorpanna um fjölskyldueflingu
Utanríkisráðuneytið hefur veitt SOS Barnaþorpunum á Íslandi rúmlega 45 milljóna króna styrk til að fjármagna fjölskyldueflingu á Filippseyjum.

Rúmlega hálf milljón ungbarna látist í stríðsátökum á fimm árum
Áætlað er að í það minnsta 550 þúsund ungbörn hafi látið lífið vegna stríðsátaka á árabilinu 2013 og 2017 í þeim tíu löndum sem hvað mest átök hafa geisað samkvæmt greiningu Barnaheilla – Save the Children.

Sjö manna fjölskylda í tíu fermetra íbúð
Hans Steinar Bjarnason, upplýsingafulltrúi SOS á Íslandi, heimsótti fjölskyldu í smábænum Iteye í Eþípíu en hún er ein af 566 fjölskyldum í fjölskyldueflingu sem SOS Barnaþorpin á Íslandi fjármagna og hjálpa með því yfir 1600 börnum.

„Vonum að þrátt fyrir tilhlökkunina fjölgi ekki fæðingum"
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra opnaði glæsilega fæðingardeild í Mangochi bænum í Malaví á dögunum. Íslendingar hafa stutt við héraðsyfirvöld á síðustu árum í alþjóðlegri þróunarsamvinnu.

Nemendur frá þrettán löndum við nám í Jafnréttisskólanum
Jafnréttisskóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna tók á móti nemendum frá þróunarlöndum og átakasvæðum í tólfta sinn um miðjan janúar. Þetta árið eru nemendurnir 23 talsins, 7 karlar og 16 konur, og koma frá 13 löndum.

Á annað hundrað börn leyst undan hermennsku í Suður-Súdan í dag
Í dag, á alþjóðadegi gegn barnahermennsku, voru 119 börn leyst undan hermennsku í Yambio, Suður-Súdan, þar á meðal 48 stúlkur. Yngsta barnið var 10 ára.

Mikill árangur á skömmum tíma
Fjölskyldueflingarverkefni sem SOS Barnaþorpin á Íslandi fjármagna í Eþíópíu gengur vel. Ragnar Schram, framkvæmdastjóri SOS á Íslandi og Hans Steinar Bjarnason, upplýsingafulltrúi gerðu úttekt á þróun verkefnisins sem styrkt er af utanríkisráðuneytinu og SOS-fjölskylduvinum hér á landi.

Mikil upplifun og ánægjulegt að sjá árangurinn
Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, er nýkominn heim úr vinnuferð til Malaví en á þessu ári eru þrjátíu ár liðin frá því samstarf um þróunarsamvinnu hófst milli landanna tveggja.

Utanríkisráðherra kynnir sér verkefni Rauða krossins í Malaví
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra heimsótti höfuðstöðvar Rauða krossins í Malaví í vikunni sem leið og kynnti sér langtímaþróunarsamstarf félagsins sem íslensk stjórnvöld og Rauði krossinn á Íslandi hafa stutt frá árinu 2012.

„Einstakt traust sem okkur er sýnt af Íslands hálfu"
Móses Chimphepo héraðsstjóri í Mangochi fór lofsamlegum orðum um stuðning íslenskra stjórnvalda við íbúa héraðsins á undanförnum árum á fundi með Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra þegar hann heimsótti verkefnasvæði Íslands í Malaví í síðustu viku.

Herferð gegn limlestingum á kynfærum kvenna
Alþjóðlegur dagur gegn limlestingum á kynfærum kvenna er í dag. Af því tilefni hefur Mannfjöldasjóður Sameinuðu þjóðanna, UNFPA, hrint af stað herferð þar sem vakin er athygli á skaðsemi þeirra.

Fiskistofnar ná sér á strik í Úganda
Fleiri fiskverkunarstöðvar eru nú starfræktar í Úganda en mörg undanfarin ár og er ástand fiskistofna mun betra eftir að stjórnvöld gripu til aðgerða gegn ólöglegum veiðarfærum. Íslendingar byggðu upp fiskgæðakerfi með Fiskimálastofnuninni í Úganda svo mögulegt varð að gefa út gæðavottorð sem höfðu gildi á Evrópumarkaði.