Erlent
319 320 321 322 323 324 325 326 327 … 334 ›
Áætlun Biden felur í sér stærstu fjárfestingu í loftslagsaðgerðum í sögu Bandaríkjanna Frumvarp sem Hvíta húsið kynnti í gær felur í sér stærstu fjárfestingu í endurnýjanlegum orkugjöfum í sögu Bandaríkjanna. Enn liggur þó ekki fyrir hvort að samstaða náist innan Demókrataflokkinn um frumvarpið. Erlent 29.10.2021 11:56
Lögmönnum fjölskyldna þeirra sem fórust með MH17 ógnað Lögfræðingar fjölskyldna fólks sem dó þegar flugvélin MH17 var skotin niður yfir Úkraínu hafa orðið fyrir ógnunum. Yfirvöld Hollands telja rússneska útsendarar á bakvið þær en réttarhöld standa nú yfir í Hollandi gegn mönnum frá Rússlandi og Úkraínu sem grunaðir eru um að bera ábyrgð á ódæðinu. Erlent 29.10.2021 11:05
Olíurisar sakaðir um lygar líkt og tóbaksforstjórarnir Forsvarsmenn stærstu olíufyrirtækja Bandaríkjanna neituðu því að fyrirtæki þeirra dreifðu upplýsingafalsi um loftslagsbreytingar þegar þeir báru eiðsvarnir vitni fyrir bandarískri þingnefnd í gær. Þingmenn sökuðu þá um að ljúga líkt og forstjórar tóbaksfyrirtækja lugu um skaðsemi reykinga á sínum tíma. Erlent 29.10.2021 09:17
Skýr tengsl milli afstöðu karla til kvenna og kynferðisofbeldis gegn konum Í rannsókn sem náði til 554 karlkyns háskólanema játuðu 63 að hafa nauðgað eða beitt aðra kynferðisofbeldi eða öðru ofbeldi gegn vilja þeirra. Einstaklingarnir 63 játuðu alls 251 atvik og þá leiddi rannsóknin í ljós skýr tengsl á milli ofbeldisins og afstöðu karlanna til kvenna. Erlent 29.10.2021 08:39
Biden sækir G20-fund og hittir páfann fyrir loftslagsráðstefnuna Joe Biden Bandaríkjaforseti er kominn til Evrópu þar sem hann verður viðstaddur tvo fundi á næstu dögum. Forsetinn byrjar í Róm þar sem G20 ríkin hittast til að ræða skattamál og þá mun hann hitta Frans Páfa í Vatíkaninu en Biden er aðeins annar kaþólikkinn í sögu Bandaríkjanna sem sest á forsetastól. Erlent 29.10.2021 07:01
Strangar sóttvarnaaðgerðir í Moskvu vegna stöðu faraldursins Skólum, verslunum og veitingastöðum í Moskvu hefur verið lokað vegna kórónuveirufaraldursins. Aðeins matvöruverslanir og lyfjaverslanir fá að hafa opið og veitingastaðir mega bjóða viðskiptavinum sínum upp á að sækja mat. Erlent 29.10.2021 06:52
Skalf og kastaði upp í aftöku í Oklahoma Hinn sextíu ára gamli John Marion Grant var tekinn af lífi í Oklahoma í Bandaríkjunum fyrr í dag. Grant hlaut dauðadóminn fyrir að hafa stungið starfsmann mötuneytis í fangelsi árið 1998. Áður hafði hann verið dæmdur í 130 ára fangelsi fyrir rán. Erlent 28.10.2021 23:39
Mágur þingmanns til rannsóknar í tengslum við innherjasvik Mágur öldungadeildarþingmanns Bandaríkjanna Richard Burr er nú til rannsóknar vegna mögulegra tengsla við innherjasvik. Mágur Burr, Gerald Fauth, seldi hlutabréf á bilinu 97 upp í allt að 280 þúsund dollara í kjölfar símtals við þingmanninn. Erlent 28.10.2021 18:36
Frakkar kyrrsetja breskt fiskveiðiskip vegna deilu um veiðiheimildir Spennan milli Bretlands og Frakklands jókst í dag þegar Frakkar kyrrsettu breskan bát sem var við veiðar í franskri lögsögu. Bretland hefur nú varað Frakkland við frekari aðgerðum en deilur milli ríkjanna vegna veiðiheimilda fara síversnandi. Erlent 28.10.2021 15:42
Squid game búningar bannaðir í grunnskólum í New York Þrír grunnskólar í New York fylki í Bandaríkjunum hafa bannað nemendum að klæðast búningum úr vinsælu sjónvarpsþáttunum Squid Game. Stjórnendur skólanna hræðast að með búningunum sé verið að upphefja ofbeldi. Erlent 28.10.2021 15:14
Olíuforkólfar svara fyrir upplýsingafals um loftslagsbreytingar Æðstu stjórnendur Exxon Mobil og annarra olíurisa koma fyrir bandaríska þingnefnd til að svara spurningum um hvernig olíufyrirtækin gerðu lítið úr viðvörunum um loftslagsbreytingar og dreifðu upplýsingafalsi um áratugaskeið. Forstjóri Exxon neitaði því að fyrirtæki hans hefði dreift falsi um loftslagsmál. Erlent 28.10.2021 15:07
Grunur um að herinn hafi hylmt yfir morð breskra hermanna Hershöfðinginn Mark Carleton-Smith segist blöskra ásakanir þess efnis að breskir hermann kunni að hafa átt þátt í morðinu á konu í Kenía árið 2012. Segist hann munu vinna með yfirvöldum að því að upplýsa málið. Erlent 28.10.2021 10:37
Kjarnorkusamningaviðræður hefjist aftur fyrir nóvemberlok Samningaviðræður um endurlífgun kjarnorkusamnings frá árinu 2015 milli Íran og sex annarra stórvelda munu hefjast aftur fyrir nóvemberlok. Þetta sagði helsti samningarmaður Íran í gær. Erlent 28.10.2021 10:29
Telja sig hafa fundið fyrstu reikistjörnuna utan Vetrarbrautarinnar Stjarnvísindamenn telja sig hafa fundið merki um reikistjörnu á braut um stjörnu utan Vetrarbrautarinnar okkar í fyrsta skipti. Allar þær þúsundir fjarreikistjarna sem menn hafa fundið til þessa eru í Vetrarbrautinni. Erlent 28.10.2021 09:06
Halls viðurkennir að hafa ekki skoðað byssuna nógu vandlega Dave Halls, aðstoðarleikstjóri kvikmyndarinnar Rust, hefur sagt við lögreglu að hann hefði átt að tryggja að ekkert skot væri í byssunni sem hann rétti leikaranum Alec Baldwin, rétt áður en skot úr sömu byssu varð tökustjóranum Halynu Hutchins að bana. Erlent 28.10.2021 08:02
Bensínstöðvar í Kína farnar að skammta eldsneyti Bensínstöðvar í Kína hafa margar hverjar tekið upp á því að skammta dísilolíu til viðskiptavina sinna í ljósi hækkandi verðs og minnkandi framboðs. Skömmtunin nær jafnt til almennings sem og til atvinnubílstjóra. Erlent 28.10.2021 07:06
Stefnir í þingrof í Portúgal Útlit er fyrir þingrof og kosningar í Portúgal eftir að þingið hafnaði fjárlagafrumvarpi sitjandi minnihlutastjórnar fyrir næsta ár. Erlent 28.10.2021 00:07
Alþjóðabankinn stöðvar fjárhagsaðstoð til Súdan Alþjóðabankinn og hefur nú stöðvað fjárhagsaðstoð til Súdan eftir að herinn framdi þar valdarán á mánudag og handtók nokkra ráðherra landsins. Erlent 27.10.2021 16:39
Dómsmál gegn Macchiarini þingfest í Svíþjóð á morgun Mál sænska ákæruvaldsins gegn ítalska skurðlækninum Paolo Macchiarini verður þingfest í héraðsdómstólnum í Solna á morgun. Macchiarini er ákærður í plastbarkamálinu svokallaða en hann er ákærður fyrir gróft ofbeldi. Erlent 27.10.2021 16:13
Rannsóknir samhljóða um ábyrgð manna á hlýnun Yfir 99,9% allra ritrýndra loftslagsvísindarannsókna sem hafa verið birtar frá 2012 telja menn ábyrga fyrir hnattrænni hlýnun sem á sér stað á jörðinni. Það er enn hærra hlutfall en í þekktri rannsókn sem vitnað hefur verið til um vísindalega vissu fyrir orsökum loftslagsbreytinga. Erlent 27.10.2021 15:32
Telja hefðbundna kúlu hafa verið í byssunni Fógeti Santa Fe-sýslu í Nýju Mexíkó og héraðssaksóknari sýslunnar héldu í dag blaðamannafund um rannsókn þeirra á dauða Halynu Hutchins, kvikmyndatökustjóra, sem dó við gerð kvikmyndarinnar Rust. Þar kom í ljós að talið er að hefðbundið byssuskot hefði verið í byssunni sem leikarinn Alec Baldwin skaut Hutchins með. Erlent 27.10.2021 15:30
Kanna leiðir til að draga úr áhrifum geimferða Fjórum geimförum verður skotið út í geim á sunnudagsmorgun. Þau munu verja næstu mánuðum við störf og rannsóknir í Alþjóðlegu geimstöðinni. Geimförunum verður skotið út í geim um borð í Crew Dragon geimfari SpaceX. Erlent 27.10.2021 13:55
Líkti tilraunum Kínverja við geimskot Spútnik á árum áður Formaður herforingjaráðs Bandaríkjanna segir fregnir af tilraunum Kínverja með sérstakar eldflaugar vera mikið áhyggjuefni. Líkti hann tilraununum við það þegar Sovétríkin skutu gervihnettinum Spútnik á loft. Erlent 27.10.2021 13:01
Líf Assange í húfi og loforð Bandaríkjastjórnar innantóm Dómstóll í Lundúnum tekur nú fyrir áfrýjunarbeiðni Bandaríkjastjórnar vegna framsals Julians Assange en framsalsbeiðninni var hafnað í upphafi árs. Ritstjóri WikiLeaks segir heilsu Assange vera í húfi og gefur lítið fyrir fullyrðingar Bandaríkjamanna um að Assange verði í öruggum höndum þar í landi. Erlent 27.10.2021 12:30
Hömlulaus glæpagengi krefjast afsagnar forsætisráðherra Haítí Götur Haítí eru nánast tómar þessa dagana og fjölda fyrirtækja hefur verið lokað. Þá er óttast að loka þurfi sjúkrahúsum á næstu dögum en þau eru oftar en ekki knúin af ljósavélum vegna skorts á raforku. Erlent 27.10.2021 10:44
Assange gæti afplánað dóm í Ástralíu Bandarísk stjórnvöld segja að Julian Assange, stofnandi Wikileaks, gæti fengið að afplána mögulegan fangelsisdóm í heimalandi sínu Ástralíu verði hann framseldur til Bandaríkjanna og sakfelldur þar. Áfrýjun vegna framsalskröfunnar er tekin fyrir í Bretlandi í dag. Erlent 27.10.2021 10:38
Aðstoðarkona Clinton segir þingmann hafa ráðist á sig Huma Abedin, einn nánasti ráðgjafi Hillary Clinton, lýsir því hvernig öldungadeildarþingmaður réðst á hana kynferðislega í endurminningum sínum. Atvikið hafi átt sér stað þegar Clinton var í öldungadeildinni á fyrsta áratug þessarar aldar. Erlent 27.10.2021 09:15
Geimklósettið til vandræða í geimfari SpaceX Allt leit út fyrir að geimskot SpaceX í september, þar sem fjórir geimfarar fóru hringinn í kringum jörðina í Crew Dragon geimfarinu, hafi gengið hnökralaust fyrir sig. Annað kom á daginn þegar heim var komið. Gat hafði komið á pípulagnir geimklósettsins um borð. Erlent 27.10.2021 08:58
Stefna áströlskum stjórnvöldum vegna aðgerðaleysis í loftslagsmálum Frumbyggjar á tveimur afskekktum eyjum hafa stefnt áströlsku ríkisstjórninni fyrir að hafa látið hjá liggja að vernda þá fyrir loftslagsbreytingum sem ógna nú heimkynum þeirra. Erlent 27.10.2021 08:42
Skotvopnið var „alvöru“ og ákærur ekki útilokaðar Mary Carmack-Altwies, yfirsaksóknari í Santa Fe-sýslu, segir ekki útilokað að ákærur verði gefnar út í tengslum við andlát tökustjórans Halyna Hutchins. Þá segir hún ekki rétt að tala um skotvopnið sem varð Hutchins að bana sem leikmun (e. prop), þar sem um raunverulegt antík skotvopn sé að ræða. Erlent 27.10.2021 08:20