Erlent
202 203 204 205 206 207 208 209 210 … 334 ›
Fundu brak úr Challenger fyrir tilviljun Bandaríska geimvísindastofnunin NASA hefur staðfest að brak sem heimildarmyndargerðarmenn fundu fyrir tilviljun í sjónum undan ströndum Flórída sé úr Challenger-geimskutlunni sem fórst fyrir rúmum 36 árum. Ekki hefur verið ákveðið hvort hróflað verður við því. Erlent 11.11.2022 14:02
Eftirlýstur flóttamaður þóttist vera írskur munaðarleysingi Sannað hefur verið fyrir skoskum dómstólum að karlmaður sem kvaðst vera írskur munaðarleysingi er í raun Bandaríkjamaður á flótta undan réttvísinni. Dómstóll í Edinborg komst að þessari niðurstöðu í vikunni. Erlent 11.11.2022 13:39
Flóðbylgjuviðvörun á Tonga eftir öflugan skjálfta Flóðbylgjuviðvörun hefur verið gefin út í Tonga eyjaklasanum í Kyrrahafi eftir að 7,3 stiga jarðskjálfti greindist á svæðinu. Upptök skjálftans mældust rúmlega tvö hundruð kílómetra frá eyjaklasanum en flóðbylgjuviðvörun hefur einnig verið gefin út í Amerísku Samóa. Erlent 11.11.2022 11:49
Ætla að hafa upp á metanstórlosendum með gervihnöttum Net gervihnatta á braut um jörðu verður notað til að finna uppsprettur metanlosunar með nýju kerfi sem Sameinuðu þjóðirnar ætla að taka í notkun á næsta ári. Rannsóknir benda til þess að metanlosun í heiminum sé mun meiri en ríki gefa upp í losunarbókhaldi sínu. Erlent 11.11.2022 11:35
Pútín firrir sig ábyrgð á undanhaldinu Varnarmálaráðuneyti Rússlands segir allar hersveitir Rússa hafa hörfað frá vesturbakka Dniproár í Kherson-héraði í suðurhluta Úkraínu. Á undanhaldinu felldu Rússar brúnna yfir Dnipro. Vladimír Pútín, forseti Rússlands, firrir sig allri ábyrgð á undanhaldinu. Erlent 11.11.2022 10:48
Demókratar bæta við forskotið í keppni um lykilþingsæti í Arizona Geimfarinn Mark Kelly er nú með ríflega fimm prósentustiga forskot á keppinaut sinn Blake Masters í keppninni um eitt af þremur öldungadeildarþingsætum sem gæti ráðið því hvort demókratar eða repúblikanar fara með völd í deildinni. Enn eru þó of mörg atkvæði ótalin til að hægt sé að lýsa annan þeirra sigurvegara. Erlent 11.11.2022 07:45
Trump liggur undir feldi og íhugar næstu skref Innsti hringur stuðningsmanna Donald Trump er sagður klofinn þegar kemur að því hvort forsetinn fyrrverandi ætti að tilkynna um forsetaframboð 2024 í næstu viku, eins og hann hefur gefið í skyn að hann hyggist gera. Erlent 11.11.2022 07:11
Vona að þögnin þýði að Rússarnir séu farnir Úkraínskir embættismenn telja að það muni taka rússneskt herlið minnst eina viku að hörfa frá vesturbakka Dnipro-ár og Kherson-borg í suðurhluta landsins. Úkraínski herinn hefur frelsað 41 byggð á svæðinu að sögn forseta Úkraínu. Íbúar á svæðinu fögnuðu fyrstu nótt þagnar frá því að stríðið hófst og vona að það þýði að Rússarnir séu farnir fyrir fullt og allt. Erlent 10.11.2022 23:31
Enn bætist í skuldasúpu Jones vegna samsæriskenninga Það syrtir enn í álinn fyrir bandaríska samsæriskenningasmiðinn Alex Jones. Dómari í Connecticut-ríki hefur dæmt hann til að 473 milljónir dollara til viðbótar við þann tæpa eina milljarð sem hann hafði áður verið dæmdur til að greiða. Erlent 10.11.2022 21:40
Biðjast afsökunar á auglýsingu tengdri Kristalsnóttinni Skyndibitakeðjan KFC hefur beðist afsökunar á auglýsingaherferð sinni í Þýskalandi. Þar var fólk hvatt til þess að fagna því með ostum og kjúklingi frá KFC að 84 ár væru liðin frá Kristalsnóttinni. Erlent 10.11.2022 17:05
Slæmt gengi kemur niður á draumum McCarthy Kevin McCarthy, leiðtogi Repúblikana í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, vill verða forseti þingsins. Hann hefur ekki farið leynt með það en slæmt gengi flokksins í þingkosningunum á þriðjudaginn mun líklegast koma niður á vonum hans. Erlent 10.11.2022 15:40
Afhjúpuðu nýja mynd af stjörnuverksmiðju í tilefni afmælisins Sjö ljósára langur stöpull Keiluþokunnar er viðfangsefnið á nýrri mynd sem Evrópska stjörnustöðin á suðurhveli (ESO) afhjúpaði til þess að fagna sextíu ára afmæli stofnunarinnar í dag. Stöpullinn er hluti af stærra svæði sem ungar út nýjum stjörnum. Erlent 10.11.2022 13:01
„Óvinurinn færir okkur ekki gjafir eða gerir okkur greiða“ Ráðamenn í Úkraínu og í Bandaríkjunum hafa miklar efasemdir um yfirlýsingar forsvarsmanna rússneska hersins um undanhald frá vesturbakka Dniproár og Kherson-borg í suðurhluta landsins. Úkraínumenn óttast gildru og segja Rússa stefna á að leggja borgina í rúst. Erlent 10.11.2022 11:53
„Repúblikanar hafa fylgt Donald Trump fram af klettabrún“ Áhrifamiklir Repúblikanar hafa ráðlagt Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, að fresta yfirlýsingu um nýtt forsetaframboð vegna slæms gengis flokksins í þingkosningunum á þriðjudaginn. Margir innan flokksins beina spjótum sínum að honum og þeim frambjóðendum sem hann studdi í kosningunum. Erlent 10.11.2022 10:30
Repúblikanar þokast nær meirihluta í fulltrúadeildinni Meirihluti í fulltrúadeild Bandaríkjaþings er nú innan seilingar fyrir repúblikana. Talningu er enn ólokið í fleiri en þrjátíu kjördæmum en repúblikana vantar aðeins sjö sæti til viðbótar. Ekki er búist við að úrslit í öldungadeildinni liggi fyrir fyrr en í fyrsta lagi eftir nokkra daga. Erlent 10.11.2022 08:37
Listaverkasafn stofnanda Microsoft selt fyrir metfé í þágu góðgerðarmála Listaverkaverkasafn í eigu Paul Allens heitins, annars stofnanda Microsoft, er nú í söluferli hjá uppboðshaldaranum Christies. Erlent 10.11.2022 08:25
Mikil fjölgun hagsmunavarða jarðefnaeldsneytisfyrirtækja á COP27 Áætlað er að um sex hundruð hagsmunaverðir jarðefnaeldsneytisiðnaðarins séu viðstaddir COP27-loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Egyptalandi, um fjórðungi fleiri en tóku þátt í síðustu ráðstefnu í Glasgow. Erlent 10.11.2022 07:45
Talið að 200 þúsund hermenn hafi fallið eða særst í Úkraínu Æðsti herforingi Bandaríkjamanna, Mark Milley, áætlar að rúmlega 100 þúsund rússneskir hermenn hafi nú fallið eða særst í Úkraínu síðan Rússar hófu innrás sína í landið. Erlent 10.11.2022 07:22
„Mér líður ekki vel yfir því sem er að gerast“ Þorvaldur Gylfason prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands segir marga telja að Bandaríkin rambi beinlínis á barmi nýrrar borgarastyrjaldar, en að engu að síður virðist demókrötum hafa tekist að afstýra stórsigri repúblikana í þingkosningum þar vestra. Erlent 9.11.2022 23:01
Biden hrósaði varnarsigri Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hrósaði varnarsigri Demókrata, er hann kom fyrst fram opinberlega eftir þingkosningar þar í landi í gær. Hann segir ekkert annað í kortunum en að hann bjóði sig aftur fram í forsetakosningunum 2024. Erlent 9.11.2022 22:44
Þrjú ríki munu ráða úrslitum Niðurstöður öldungadeildarkosninganna í Arisóna, Nevada og Georgíu-ríkjum í Bandaríkjunum munu skera úr um hvort Demókratar eða Repúblikanar ná meirihluta í efri deild Bandaríkjaþing. Erlent 9.11.2022 21:45
Fáheyrt að stjórnarandstaðan nái ekki tökum á báðum þingdeildum Bandaríska þjóðin bíður nú í ofvæni eftir niðurstöðum þingkosninganna sem fóru fram í gær. Ljóst er að einhver bið getur verið eftir endanlegum niðurstöðum. Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði og sérfræðingur í bandarískum stjórnmálum segir fáheyrt að stjórnarandstaðan nái ekki tökum á báðum deildum þingsins. Erlent 9.11.2022 19:49
Boða til kosninga í Færeyjum eftir útgöngu Miðflokksins Bárður á Steig Nielsen, lögmaður Færeyja, hefur boðað til þingkosninga þann 8. desember næstkomandi. Miðflokkurinn sagði sig úr ríkisstjórnarsamstarfi í gær eftir að Jenis av Rana var vikið úr embætti utanríkis- og menntamálaráðherra. Erlent 9.11.2022 16:08
Rússar segjast ætla að hörfa frá Kherson Sergei Surovkin, herforingi sem er yfir innrás Rússa í Kherson, lýsti því yfir í dag að hann ætli að flytja alla rússneska hermenn frá vesturbakka Dniproár. Rússar munu þar með yfirgefa Kherson-borg, sem er eina héraðshöfuðborgin sem þeir hafa hernumið frá því innrásin hófst í febrúar. Erlent 9.11.2022 15:19
Reyndi að kasta eggjum í konunginn Karlmaður var í dag handtekinn fyrir að kasta eggjum í átt að Karli III Bretlandskonungi í borginni York. Maðurinn náði ekki að hitta konunginn í þremur köstum. Erlent 9.11.2022 14:22
Kann að enda með að boðað verði til þingkosninga Færeyski Miðflokkurinn hefur sagt skilið við ríkisstjórn landsins eftir að Bárður á Steig Nielsen, lögmaður Færeyja, ákvað að reka formann Miðflokksins, Jenis av Rana, úr embætti utanríkis- og menntamálaráðherra í gær. Miklar líkur eru á að boðað verði til þingkosninga í Færeyjum til að leysa úr þeirri stöðu sem upp er komin í færeyskum stjórnmálum. Erlent 9.11.2022 13:51
Sviss útvistar loftslagsmarkmiðum til snauðari þjóða Stjórnvöld í Sviss hafa gert samninga við nokkur fátækari ríki um að þau dragi úr losun gróðurhúsalofttegunda en að Sviss fái heiðurinn af samdrættinum. Sérfræðingar vara við því að samningar af þessu tagi gætu tafið loftslagsaðgerðir í auðugri ríkjum heims. Erlent 9.11.2022 13:49
Penn lánar Selenskí Óskarsverðlaunin Leikarinn og leikstjórinn Sean Penn er staddur í Úkraínu, þar sem hann fundaði meðal annars með Vólódímír Selenskí Úkraínuforseta og lánaði honum annan af tveimur Óskarsverðlaungripum sínum. Bað hann Selenskí að skila styttunni til Malibu þegar Úkraínumenn hefðu haft sigur af Rússum. Erlent 9.11.2022 12:25
Meiri líkur á að demókratar geti stöðvað Trump-málin Prófessor í sagnfræði segir varnarsigur demókrata í nýafstöðnum þingkosningum í Bandaríkjunum hafa komið sér talsvert á óvart. Demókratar gætu vel haldið meirihluta í öldungadeildinni, einkum í ljósi mikilvægs sigurs í Pennsylvaníu, en repúblikanar taka líklegast yfir fulltrúadeildina, sem verður Biden þungur baggi. Erlent 9.11.2022 12:12
Sagðir sækja fram úr nokkrum áttum í Kherson Hersveitir Úkraínu hafa náð árangri gegn Rússum í Kherson-héraði í dag og í gær. Rússar eru sagðir hafa verið sigraðir í nokkrum þorpum á vesturbakka Dniproár og hafa sprengt upp nokkrar brýr til að gera Úkraínumönnum erfitt um vik. Erlent 9.11.2022 11:48