Golf

Risa af­rek Gunn­laugs og saman­burður við þá bestu áhuga­verður

Gunn­laugur Árni Sveins­son tryggði sér í fyrradag, fyrstur Ís­lendinga, sæti á U.S. Open risamótinu í golfi í karla­flokki eftir bráða­bana á úrtökumóti í Ohio í Bandaríkjunum. Risastór tíðindi sem koma þó ekki einum helsta golfsér­fræðingi landsins á óvart. Þetta sé ekki endastöð hjá Gunn­laugi, bara byrjunin.

Golf

Komst á US Open-mótið með son Tiger Woods sem kylfusvein

Íslenski kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson var í góðum hópi kylfinga sem tókst að tryggja sér þátttökurétt á US Open með góðum leik á lokaúrtökumótinu. Í þeim hópi sem náði að tryggja sér farseðilinn á annað risamót ársins var líka hinn sautján ára gamli Miles Russell.

Golf

„Hlakka mikið til að ná fleiri á­föngum fyrir Ís­land“

Kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson var gripinn í viðtal við Golf Channel nokkrum sekúndum eftir að hann tryggði sig, fyrstur íslenskra karla, inn á Opna bandaríska meistaramótið í golfi í gærkvöld. Þar kvaðst hann afar stoltur af því að vera brautryðjandi fyrir íslenskt golf.

Golf

Andrea og Ragn­hildur enduðu jafnar

Andrea Bergsdóttir og Ragnhildur Kristinsdóttir enduðu jafnar í ellefta sæti á Arkea Montauban Ladies Open mótinu í Frakklandi, á einu höggi undir pari.

Golf

Þrjár frá Ís­landi jafnar í þriðja sæti

Íslensku kylfingarnir á LET Access mótaröðinni áttu frábæran fyrsta hring á Allegria Ladies Open mótinu í Austurríki. Hulda Clara Gestsdóttir, Ragnhildur Kristinsdóttir og Andrea Bergsdóttir eru jafnar í þriðja sæti. Þær komu allar í hús á 68 höggum, tveimur undir pari vallarins.

Golf

Aron fagnaði sigri eftir bráða­bana

Aron Snær Júlíusson fagnaði sigri á fyrsta móti GSÍ-mótaraðarinnar í golfi sem fram fór um helgina eftir mikla spennu. Perla Sól Sigurbrandsdóttir fagnaði sigri í kvennaflokki.

Golf

„Þá hefði ég tekið því og hlaupið í burtu“

„Þetta er lífið í ferðatösku, eins og hjá atvinnumönnum. En maður velur þetta og þetta er það skemmtilegasta sem maður gerir. Ég myndi ekki skipta þessu út fyrir neitt,“ segir Ragnhildur Kristinsdóttir, einn fremsti kylfingur landsins, sem verður að vanda á faraldsfæti í sumar.

Golf

Svíinn sjóð­heitur í lokin og McIlroy stimplaði sig inn

Hinn 26 ára gamli Svíi Ludvig Åberg var sjóðheitur á seinni níu holunum í dag og stimplaði sig inn í toppbaráttuna á PGA-meistaramótinu í golfi. Norður-Írinn Rory McIlroy kom sér sömuleiðis í gang eftir skelfilegan fyrsta hring en það eru tveir Bandaríkjamenn sem leiða.

Golf

„Ég er búin að bíða eftir þessu lengi“

„Ég er mjög spennt fyrir sumrinu. Fimm mót á dagskrá heima og svo þrjú til fjögur erlendis, svo það verður nóg að gera í sumar,“ segir kylfingurinn Perla Sól Sigurbrandsdóttir brosmild. Hún er sérstaklega spennt fyrir að spila um Íslandsmeistaratitil á sínum heimavelli.

Golf

„Við erum alltaf að gefa í“

Íslenska golfsumarið hófst formlega í dag með Reykjanesmótinu, fyrsta móti GSÍ-mótaraðarinnar, og framundan eru spennandi mánuðir hjá íslenskum áhuga- og atvinnukylfingum sem sjaldan hafa myndað eins breiða sveit.

Golf

McIlroy klár þrátt fyrir sárs­auka

Rory McIlroy segist hafa farið upp um skónúmer vegna verkja í hægri fæti fyrir PGA-meistaramótið í golfi sem hefst í dag. Honum tókst að spila níu holur í upphitun í gær.

Golf