Táningur sló 470 metra högg á DP World Tour Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. ágúst 2026 22:16 Hinn átján ára gamli Yanhan Zhou getur heldur betur slegið boltann og hann er að gera frábæra hluti á danska meistaramótinu í golfi um helgina. Getty/Luke Walker Átján ára kínverskur undrakylfingur hefur verið á kortinu hjá harðkjarna golfáhugamönnum en nú eru mun fleiri farnir að heyra af þessari vonarstjörnu heimsgolfsins, ekki síst eftir frammistöðu hans um helgina.
Yanhan Zhou hefur gengið undir gælunafninu „Smábarnið“ meðal þeirra sem fylgjast vel með en þeir áhugasömustu hafa vitað lengi af honum. Nú er sérstaklega eitt högg hans um helgina að fara á methraða um netmiðla. Miðlar DP World Tour vöktu nefnilega athygli á högglengd stráksins en hann er að keppa á danska meistaramótinu um helgina. DP World Tour er sterkasta atvinnumótaröð karla í golfi í Evrópu, áður þekkt sem Evrópumótaröðin. Yanhan Zhou lék annan hringinn á fimm höggum undir pari og var átta höggum undir pari eftir tvo hringi sem skilaði honum í níunda sætið. Hann fylgdi því eftir með þriðja góða hringnum í röð með því að spila á fimm höggum undir pari á degi þrjú. Það skilar stráknum upp í annað sæti á mótinu á þrettán höggum undir pari. Hann fékk meðal annars fugl á þremur holum í röð á fyrri níu. Þegar hann náði þriðja og síðasta fugli sínum af þessum þremur var hann að spila á fimmtu holunni sem er par fimm hola. Það var einkum upphafshögg Zhou á þessari fimmtu holu sem vakti athygli því strákurinn sló þá boltann 514 jarda eða 470 metra. Hann var þá bara 105 jördum, 96 metrum, frá par fimm holu eftir aðeins eitt högg. View this post on Instagram A post shared by DP World Tour (@dpworldtour) View this post on Instagram A post shared by DP World Tour (@dpworldtour)
Golf Mest lesið Bo Johansson er látinn Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Fótbolti Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Körfubolti „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Fótbolti Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Körfubolti Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Fótbolti Dagskráin í dag: Orri í Belgíu og fjórir leikir í Bónus-deildinni Sport Fleiri fréttir Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Sleppir verðlaunaafhendingu til að losna við herskyldu Tryggði sig á PGA-mótaröðinna þrátt fyrir að meiðsli enduðu næstum feril hans Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Stendur ekki til að hleypa LIV-kylfingum að Evrópa hafði betur gegn Bandaríkjunum Horfðu á golfmót í körfubíl Dagbjartur í góðum málum á úrtökumóti DP World Tour Aron Snær fékk albatross á úrtökumóti DP World Tour Ragnar bestur allra á úrtökumóti DP World Tour í dag Gunnlaugur Árni í samstarf með Nike: „Hefur mikla þýðingu fyrir mig“ Skulda Rahm og DeChambeau milljónir dollara Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Átta Íslendingar mætast í Þýskalandi Enduðu tíu ára sigurgöngu Bandaríkjanna Tryggðu sig í efstu deild Evrópumótsins með öruggum sigri Sjá meira