Óliver Elí vann Opna breska áhugamannamót pilta Stefán Árni Pálsson skrifar 15. ágúst 2026 16:14 Óliver Elí Björnsson fagnar hér sigri sínum á Opna breska áhugamannamóti pilta með íslenska fánann og bikarinn. Getty/Oisin Keniry Óliver Elí Björnsson, landsliðskylfingur úr Golfklúbbnum Keili, vann í dag magnaðan sigur á Opna breska áhugamannamóti pilta þegar hann hafði betur gegn Svíanum Ludwig Libera í 37 holu úrslitaleik í Skotlandi.
Úrslitaleikurinn var jafn og spennandi frá fyrstu holu. Óliver byrjaði af krafti og vann fyrstu holuna með fugli en Libera jafnaði leikinn á fimmtu holu. Óliver komst aftur eina holu upp með pari á áttundu holu en Svíinn svaraði á tíundu og elleftu holu og náði sjálfur forystunni. Óliver lét það ekki slá sig út af laginu. Hann vann tólftu holuna og jafnaði leikinn áður en fugl á þeirri þrettándu kom honum aftur eina holu upp. Libera vann sextándu holuna og staðan var því jöfn eftir fyrri 18 holur úrslitaleiksins. Hvorugur kylfingur hafði komist meira en eina holu yfir og ljóst var að úrslitin myndu ráðast á síðari 18 holunum. Eftir hlé hélt spennan áfram og lítið skildi kylfingana að. Óliver sýndi enn á ný þá miklu yfirvegun og baráttu sem hefur einkennt frammistöðu hans alla vikuna. Eftir tólf holur seinni hringsins var Svíinn þrjár holur upp. Þegar mest reyndi hélt okkar maður haus, jafnaði leikinn á 17. holunni og sigraði á fyrstu holu bráðabanans. Óliver hóf mótið í 36 holu höggleik þar sem keppt var um 64 sæti í holukeppninni. Hann lék hringina á 76 og 66 höggum og tryggði sér sæti í útsláttarkeppninni með frábærum lokahring. Í 64 manna úrslitum vann hann Skotann Aidan Lawson 3/2 og lagði síðan Írann Adam Fahey í 32 manna úrslitum. Í 16 manna úrslitum vann Óliver eftir ótrúlegan leik gegn Frakkanum Jayson Piermont. Hann var þrjár holur upp eftir sex holur en tveimur holum undir þegar aðeins tvær voru eftir. Óliver setti þá niður um 13 metra pútt á átjándu holunni til að jafna leikinn og tryggði sér sigur á tuttugustu holu. Í átta manna úrslitum hafði hann betur gegn Dananum Christian Photin Hansen og í undanúrslitunum vann hann Tao Pemerika frá Frakklandi, Evrópumeistara unglinga, og tryggði sér þar með sæti í úrslitaleiknum gegn Libera. Sögulegur sigur og stór tækifæri fram undan The Boys’ Amateur Championship er eitt sterkasta unglingamót Evrópu og eitt elsta golfmót heims, en það var nú haldið í 106. sinn. Á meðal fyrrverandi sigurvegara eru stórstjörnur á borð við José María Olazábal, Sergio García og Matthew Fitzpatrick. Með sigrinum öðlast Óliver þátttökurétt á Opna breska áhugamannamótinu í karlaflokki og í lokaúrtökumótinu fyrir Opna breska meistaramótið, The Open, á næsta ári. Sigurinn mun einnig skila honum miklu stökki á heimslista áhugamanna þegar nýr listi verður birtur á miðvikudag. Magnaðri viku í Skotlandi lýkur því með sögulegum íslenskum sigri og besta árangri íslensks kylfings í flokki 18 ára og yngri frá upphafi.
Golf Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Ipswich - Liverpool | Kemur fyrsti sigurinn? Enski boltinn Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Sjáðu rauða spjaldið sem Gísli fiskaði og fékk svo sjálfur Handbolti Fleiri fréttir Tryggðu sig í efstu deild Evrópumótsins með öruggum sigri Scheffler tryggði sér 1.200 milljónir og toppaði Tiger Umdeild auglýsing heldur áfram að draga dilk á eftir sér Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar „Auðvitað var auka hjartsláttur“ Óliver heldur áfram að slá í gegn Kylfingarnir „kjöt á hlaðborði“ í Kanada Geta Scheffler og McIlroy ekki spilað vel á sama tíma? LIV-mótaröðin í uppnámi en Rory Mcllroy ekki spenntur að fá kylfinga þaðan Algjört risastökk Ólivers á heimslistanum Sigurinn sögulegi breytt miklu fyrir Óliver: „Mjög mikill heiður“ Valinn í stærstu liðakeppni heims dögum eftir sigurinn McIlroy áhyggjufullur eftir erfiða reynslu Óliver var með funheitan pútter Táningur sló 470 metra högg á DP World Tour Óliver Elí vann Opna breska áhugamannamót pilta Óliver Elí vann Evrópumeistarann og komst í úrslit Aflýsa síðustu keppninni og framtíð mótaraðarinnar í uppnámi Óliver kominn í undanúrslit á sterku móti Efnilegur ástralskur kylfingur lést aðeins átján ára Draumur Bolvíkinga rætist gegn risunum í íslensku golfi Hlynur byrjaði betur en Íslandsmeistarinn Gunnlaugur Árni setti heilsuna í fyrsta sæti „Þegar ég var yngri var bara gert grín að mér að ég væri í golfi“ Gunnlaugur Árni hætti keppni á miðjum hræðilegum fyrsta hring Gunnlaugur Árni hefur leik á U.S. Amateur Vann LIV-mótaröðina annað árið í röð Íslandsmeistari annað árið í röð eftir algjöra yfirburði Guðrún Brá Íslandsmeistari og föðurbetrungur Gífurleg spenna á Íslandsmótinu í golfi Sjá meira