
Fréttir

Vegalokanir líklegar í Öræfasveit á morgun
Hringvegurinn í Öræfasveit verður settur á óvissustig milli Skaftafells að vestan og Hnappavalla að austan klukkan 8 í fyrramálið vegna slæmrar veðurspár.

Segir miklar líkur á að Tiktok banni verði frestað
Donald Trump, sem verður forseti Bandaríkjanna á nýjan leik mánudaginn næstkomandi, segir mjög líklegt að gildistöku laga sem þvinga kínverska eigendur Tiktok til að selja starfsemi fyrirtækisins í Bandaríkjunum eða loka miðlinum verði frestað um 90 daga. Lögin taka gildi á morgun sunnudag, en Biden fráfarandi forseti hefur sagst ekki munu fylgja þeim eftir.

Drepin í árás daginn fyrir vopnahlé
Fjögurra manna fjölskylda var drepin í loftárásum Ísraelsmanna á Gasasvæðið í nótt, sólarhring áður en umsamið vopnahlé tekur þar gildi.

Umfangsmikil æfing á rofi á sæstrengjum og kveðjustund í Hafnarfirði
Gangverk samfélagsins myndi hætta að virka ef mikilvægir sæstrengir til landsins rofna og því er mikilvægt þjóðaröryggismál að tryggja varnir þeirra. Þetta segir yfirmaður netöryggissveitar CERT-IS. Um tvö hundruð sérfræðingar koma saman síðar í þessum mánuði og æfa viðbrögð við rofi á sæstrengjum.

Hvalir spókuðu sig í Hafnarfjarðarhöfn
Hafnarfjarðarhöfn iðaði af lífi fyrr í dag þegar hvalir spókuðu sig þar um og léku listir sínar.

Prófessorar íhuga verkfall: „40% akademísks starfsfólks í kulnun eða komin langt á leið“
Prófessorar í ríkisháskólum hafa verið án kjarasamnings í tíu mánuði. Mikill vilji fyrir verkfallsaðgerðum er meðal félagsmanna. Formaður útilokar ekki aðgerðir en mikið starfsálag og lítil nýliðun veldur miklum áhyggjum.

E. coli fannst í neysluvatni
E. coli fannst í neysluvatni á Hornafirði. Íbúar í Nesjum og á Höfn eru beðnir um að sjóða allt neysluvatn.

Ærslabelgur og aparóla óskast á Hvolsvöll
Ærslabelgur og aparóla eru efst á óskalista hjá börnum og unglingum á Hvolsvelli en það mál og fleiri munu þau ræða á Barna- og ungmennaþingi, sem haldið verður á morgun sunnudag.

Grímuklæddi maðurinn kúkaði aftur á bílinn
Grímuklæddur maður kúkaði á húdd bíls á Álfhólsvegi. Það er ekki í fyrsta skipti sem maðurinn, sem oftast er í búning, kúkar á sama bílinn.

Snarpur skjálfti við Trölladyngju
Snarpur jarðskjálfti mældist við Trölladyngju á Reykjanesskaga í dag. Skjálftinn var 3,3 að stærð og greindinst hann á mælum klukkan 13:45 í dag. Þá hafa nokkrir eftirskjálftar fylgt honum.

Undirbúa verkföll: „Þetta er ömurleg staða að svona skuli standa“
Algjör pattstaða er uppi í kjaraviðræðum framhaldskólakennara við ríkið að sögn formanns Félags framhaldsskólakennara. Félagið hefur hafið undirbúning að verkfallsaðgerðum sem formaðurinn vonar þó að ekki þurfi að grípa til. Að svo stöddu fæst ekki gefið upp í hvaða framhaldsskólum verkföll koma til greina. Þeir verða þó fleiri en í síðustu aðgerðum og ná til nokkur hundruð kennara.

Margir alvarlega slasaðir á skíðasvæði á Spáni
Tugir eru slasaðir og þar af minnst sautján alvarlega eftir að stólalyfta féll á skíðasvæði á Spáni. Í einhverjum tilfellum er fólk sagt hafa hrapað fimmtán metra til jarðar en engar fregnir hafa borist af dauðsföllum.

Sagði nei við sölu Íslandsbanka en treystir ráðherra fullkomlega nú
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins segist treysta fjármála- og efnahagsráðherra fullkomlega til að ganga frá sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Flokkurinn hefur til þessa lýst harðri andstöðu gegn sölu bankans en formaðurinn segist nú vona að farsæl lausn finnist sem allir geti sætt sig við.

Breytt afstaða til sölu á Íslandsbanka og samgöngutruflanir
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins segist treysta fjármála- og efnahagsráðherra fullkomlega til að ganga frá sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Flokkurinn hefur til þessa lýst harðri andstöðu gegn sölu bankans en formaðurinn segist nú vona að farsæl lausn finnist sem allir geti sætt sig við.

Þrír látnir eftir loftárás Rússa
Þrír eru látnir eftir að Rússar gerðu loftárás á höfuðborg Úkraínu. Ekki er vitað hvert skotmark Rússa var.

Hæstaréttardómarar skotnir til bana í Tehran
Tveir Hæstaréttardómarar voru skotnir til bana og sá þriðji særður í banatilræði í eða við byggingu Hæstaréttar í Tehran í Íran í morgun. Árásarmaðurinn er sagður hafa svipt sig lífi eftir árásina.

Veðurviðvaranir og vegalokanir
Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular veðurviðvaranir víðs vegar um landið. Margir vegir eru á óvissustigi og gæti þeim verið lokað með stuttum fyrirvara.

Samþykktu vopnahlé en framtíðin óljós
Ríkisstjórn Ísrael samþykkti seint í gærkvöldi vopnahléstillögu við Hamas-samtökin á Gasaströndinni. Útlit er því fyrir að vopnahléið muni taka gildi á sunnudaginn og að fyrstu gíslunum verði sleppt úr haldi strax þann dag.

Sjálfstæðisflokkurinn þurfi að breikka faðminn og vera hlýrri
Töluverðar líkur verða að teljast á að Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins gefi kost á sér í embætti formanns flokksins á landsfundi eftir sex vikur. Hún segir flokkinn standa á tímamótum í stjórnarandstöðu eftir tæplega tólf ára samfellda stjórnarsetu. Flokkurinn þurfi að breikka faðminn og vera hlýrri í nálgun sinni til mála.

Reyndi að stinga af á bíl og svo á hlaupum
Sex gistu í fangageymslu lögreglunnar í nótt og var talsverður erill hjá lögregluþjónum. Einn ökumaður reyndi að stinga lögregluþjóna af í miðbænum og hófst eftirför. Þegar hann hafði verið króaður af reyndi ökumaðurinn að hlaupa undan lögregluþjónum en var stöðvaður.

Fengu tæpar fimm og sex milljónir króna í tvöföldum launagreiðslum
Tveir bæjarstjórar fengu um og yfir fimm milljónir króna í tvöföldum launagreiðslum sem þeir fengu eftir að þeir náðu kjöri sem Alþingismenn. Annar þeirra, Rósa Guðbjartsdóttir, situr áfram sem formaður bæjarráðs í Hafnarfirði.

Viðbúin því að fylgjendum fækki í kjölfar TikTok-banns
Bann við samfélagsmiðlinum TikTok tekur að óbreyttu gildi í Bandaríkjunum á sunnudaginn. Íslenskur áhrifavaldur býr sig undir að tapa fjölda fylgjenda en gerir ráð fyrir að notendur streymi inn á aðra miðla í staðinn.

Finnst of langt gengið í glæpavæðingu í umfjöllun um Carbfix
Andra Snæ Magnasyni rithöfundi finnst of langt gengið í að hneykslis- og glæpavæða áform Carbfix um að dæla niður koltvísýringi í Straumsvík. Honum finnst umræðan komin út fyrir gagnrýni og komin í eyðileggingarstarf og niðurrif.

Kviknaði í gámi í byggingarsvæði við gamla Orkuhúsið
Eldur kviknaði í stórum gámi á byggingarsvæði við gamla Orkuhúsið á Suðurlandsbraut. Slökkvilið er á vettvangi og engin hætta er á ferðum.

Undrast sinnuleysi forvera sinna og vill lagabreytingar
Ekki er unnt að reisa vatnsaflsvirkjanir og óvissa ríkir um viðamiklar innviðaframkvæmdir. Þetta er mat Umhverfisstofnunar eftir að virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar var ógilt. Stjórnvöld voru á fimm ára tímabili upplýst í þrígang í minnisblöðum að eyða þyrfti óvissunni. Umhverfisráðherra undrast sinnuleysi forvera sinna og vill lagabreytingu.

Starfsmaður frá Filippseyjum syngur og syngur á Selfossi
Þeir sextíu heimilismenn á hjúkrunarheimilinu Móbergi á Selfossi eru heppnir því þar er starfsmaður frá Filippseyjum, sem syngur fyrir þá við umönnunarstörfin sín og stundum heldur starfsmaðurinn tónleika fyrir allt fólkið og þá er sungið og dansað af mikilli innlifun.

Ungmenni nota tálbeituaðferðir til að ráðast á meinta níðinga
Myndbönd af hópi ungmenna ganga í skrokk á meintum barnaníðingum ganga á milli manna á samfélagsmiðlum. Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir tálbeituaðgerðir stórhættulegar og að dæmi séu um að þær fari á versta veg.

Þórður Snær verður framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar
Þórður Snær Júlíusson hefur hafið störf sem framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar. Hann mun formlega taka við stöðunni þegar þing kemur saman 4. febrúar næstkomandi.

Innsetningarathöfnin verður innandyra í fyrsta sinn í fjörutíu ár
Innsetningarathöfn Donalds Trump næstkomandi mánudag verður haldin innandyra í hringhvelfingu þinghússins í Washington vegna slæmrar veðurspár. Fjörutíu ár eru síðan athöfnin var síðast haldin innandyra þegar Ronald Reagan var svarinn í embættið 1985, þá einnig vegna veðurs.

Stórhættulegar tálbeituaðgerðir ungmenna á samfélagsmiðlum
Myndbönd af hópi ungmenna ganga í skrokk á meintum barnaníðingum ganga á milli manna á samfélagsmiðlum. Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir tálbeituaðgerðir stórhættulegar og að dæmi séu um að þær fari á versta veg.