Fréttir
300 301 302 303 304 305 306 307 308 … 334 ›
Börn geti ekki leikið sér nógu mikið úti Börn og ungmenni í Bretlandi verða fyrir mikilli heilsufarsskerðingu þar sem þeim stendur ekki til boða að leika sér úti í sama mæli og áður í landinu. Hagsmunasamtök segja bresk stjórnvöld ekki horfa til mikilvægi þessa þegar kemur að skipulagsmálum. Erlent 23.1.2024 10:47
Ákærður fyrir 240 kynferðisleg skilaboð og 156 símhringingar Karlmaður hefur verið ákærður fyrir umsáturseinelti og kynferðislega áreitni með því að setja sig margítrekað í samband við konu gegn hennar vilja. Meint brot mannsins áttu sér stað árið 2022, nánar tiltekið frá aprílmánuði til desembermánaðar þess árs. Innlent 23.1.2024 10:44
Enn rís Miðflokkurinn Samfylkingin mælist með tæplega 26 prósenta fylgi og er enn stærsti stjórnmálaflokkurinn samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Fylgi Miðflokksins eykst þriðju mælinguna í röð og mælist flokkurinn nú með tólf prósenta fylgi. Innlent 23.1.2024 10:42
Sjúkraþjálfarar geti metið sjálfir hvenær fólk þurfi að koma Kári Árnason sjúkraþjálfari telur ljóst að það þurfi að breyta kerfinu þegar kemur að beiðnum frá heilsugæslu til sjúkraþjálfara. Hann sagði í Bítinu í morgun tregðu einhvers staðar í kerfinu við að breyta þessu og um væri að ræða óþarfa flækju. Innlent 23.1.2024 10:23
Felldu tuttugu og einn hermann í umsátri Ráðamenn í Ísrael segja 24 ísraelska hermenn hafa fallið í átökum við Hamas-liða á Gasaströndinni í gær. Þar af féllu 21 þeirra í sömu árás Hamas en gærdagurinn var sá mannskæðasti fyrir ísraelska herinn frá 7. október. Erlent 23.1.2024 10:15
Segir sameiningar háskóla efla háskólastarf um land allt Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra háskólamála, ræddi sameiningu háskóla í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hún sagðist skilja ótta við breytingar og að það væri eðlilegt að margar spurningar vöknuðu við stórar sameiningar. Innlent 23.1.2024 08:46
Aðstæður í Grindavík geti haft áhrif á kjaraviðræður Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra, segir pakkann sem ríkisstjórn tilkynnti um í gær fyrir Grindvíkinga geta haft áhrif á kjaraviðræður. Mögulega verði ekki hægt að verða við öllum kröfum verkalýðshreyfingarinnar. Innlent 23.1.2024 07:45
Haley tryggði sér öll atkvæðin í Dixville Notch Bandaríski forsetaframbjóðandinn Nikki Haley tryggði sér öll atkvæði í forvali Repúblikana í bænum Dixville Notch í New Hampshire í nótt. Forvali flokksins í New Hampshire fer fram í dag. Erlent 23.1.2024 07:42
Allhvass vindur við suðurströndina og víða él Veðurstofan gerir ráð fyrir fremur hægri, austlægri eða breytilegri átt en austan strekkingi eða allhvössum vindi við suðurströndina. Veður 23.1.2024 07:17
Björn ekki á leið í forsetaframboð Björn Zoëga, forstjóri Karolinska-sjúkrahússins í Svíþjóð, segist ekki á leið aftur til Íslands eða í forsetaframboð. Greint var frá því í gær að hann hefði ákveðið að láta af störfum sem forstjóri spítalans en hann hefur gegnt þeirri stöðu frá árinu 2019. Innlent 23.1.2024 07:16
Skaut átta til bana í Illinois Byssumaður sem grunaður er um að hafa skotið átta til bana í borginni Joliet í Illinois í Bandaríkjunum í nótt er látinn eftir átök við lögreglu í Texas ríki, í tvöþúsund kílómetra fjarlægð. Erlent 23.1.2024 07:05
Eitt mála Depardieu um kynferðisbrot fyrnt og fellt niður Saksóknari í Frakklandi hefur látið falla niður kæru um kynferðisbrot gegn leikaranum Gérard Depardieu vegna þess að málið var fyrnt. Erlent 23.1.2024 06:58
Réðust aftur gegn Hútum í Jemen í nótt Bandaríkjamenn og Bretar skutu aftur á skotmörk í Jemen sem þeir telja tengjast Hútum. Í tilkynningu frá varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna í Pentagon í gær kom fram að skotið hefði verið á átta skotmörk. Erlent 23.1.2024 06:23
Róleg nótt hjá lögreglu Nóttin var róleg hjá lögreglunni samkvæmt dagbók lögreglu. Alls voru 29 mál skráð í LÖKE, skráningarkerfi lögreglunnar, frá því klukkan fimm síðdegis í gær og þar til klukkan fimm í nótt. Innlent 23.1.2024 06:02
Ruddust inn í ísraelska þingið meðan árásir á Gasa héldu áfram Aðstandendur gísla í haldi Hamas ruddust inn í ísraelska þingið til að mótmæla aðgerðarleysi stjórnvalda. Þrýstingur eykst á Netanjahú innan- sem utanlands. Utanríkismálastjóri ESB segir að núverandi leið Ísraela til að útrýma Hamas muni ekki virka og það þurfi að koma á friði. Nú þegar hafi um 25 þúsund manns fallið á Gasa. Erlent 23.1.2024 00:14
Hver dagur eins og vika fyrir Grindvíkinga og því þurfi að vinna hratt Ríkisstjórnin hyggst koma Grindvíkingum í skjól með aðgerðum sem voru kynntar í dag en nánari útfærsla liggur þó ekki fyrir. Grindvíkingur segir mikilvægt að íbúar fái val um hvort þeir fari heim til Grindavíkur eða ekki. Íbúar séu vongóðir en lifi enn í óvissu og því þurfi ríkisstjórnin að vinna hratt og örugglega. Innlent 22.1.2024 23:42
Rafmagn komið á Grindavík um loftlínu í kvöld Búið er að koma rafmagni til Grindavíkur um loftlínu sem reist var yfir hraunið sem rann yfir Grindavíkurveg og olli því að stofnstrengir Grindavíkur skemmdust. Rafmagn var komið á línuna klukkan átta í kvöld og í kjölfarið var slökkt á varavélum Landsnets. Innlent 22.1.2024 22:35
Ekki refsað fyrir að stinga ungan mann við Breiðholtslaug Ungur karlmaður var í lok síðasta árs sakfelldur fyrir sérlega hættulega líkamsárás, með því að hafa stungið annan ungan mann við Breiðholtslaug árið 2021. Maðurinn krafðist sýknu á grundvelli neyðarvarnar en hvorki var fallist á að neyðarvörn hefði réttlætt stunguna né að hann hefði farið út fyrir leyfileg mörk neyðarvarnar vegna skelfingar eða hræðslu. Honum var þó ekki gerð refsing fyrir líkamsárásina. Innlent 22.1.2024 22:01
Tíðindin breyti ekki afstöðu þingmanna til málsins Formaður Flokks fólksins segir ekkert annað hafa komið til greina en að draga til baka vantraust en hvalveiðimálið vofi þó enn yfir. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir flokkinn ekki hafa verið búinn að komast að afstöðu til vantrausts þegar tíðindi af veikindum ráðherra bárust. Tíðindin breyti þó ekki óánægju flokksins með málið. Innlent 22.1.2024 21:40
„Tökum ekki að okkur að semja um launaskrið hærri launaðra hópa“ Breiðfylking stéttarfélaga á almennum vinnumarkaði og Samtök atvinnulífsins funduðu í Karphúsinu í dag vegna kjaraviðræðna. Formaður Eflingar segir breiðfylkinguna vilja semja um flata krónutöluhækkun og hún taki ekki að sér að semja um launaskrið hærri launaðra hópa. Innlent 22.1.2024 20:27
Katrín mun gegna störfum Svandísar næstu vikurnar Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, mun gegna störfum Svandísar Svavarsdóttur, matvælaráðherra, á meðan hún tekur sér nokkurra vikna veikindaleyfi vegna krabbameinsgreiningar. Innlent 22.1.2024 18:48
Opna þjónustumiðstöð fyrir Grindvíkinga í Reykjanesbæ Ríkislögreglustjóri, í samstarfi við Rauða krossinn og Grindavíkurbæ, mun opna þjónustumiðstöð á morgun, þriðjudaginn 23. janúar klukkan 14. Þjónustumiðstöðin verður til húsa í húsi Rauða krossins að Smiðjuvöllum 9 í Reykjanesbæ. Opnunartími verður á mánudögum, þriðjudögum og föstudögum milli klukkan 14 og 17. Innlent 22.1.2024 18:44
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra tilkynnti óvænt í dag að hún væri komin í veikindaleyfi eftir að hún fékk að vita í morgun að hún væri með krabbamein. Vantrauststillaga sem Flokkur fólksins hafði þá nýlega lagt fram var dregin til baka. Innlent 22.1.2024 18:01
Hlaupi í Grímsvötnum að ljúka Frá því að hlaupið náði hámarki í Gígjukvísl fyrir um það bil viku hefur vatnshæð þar farið lækkandi og er nú orðin svipuð og hún var fyrir hlaup. Talið er að nýr sigketill hafi myndast á svæðinu. Innlent 22.1.2024 16:30
Mikilvægt að íbúar eigi áfram eignir í Grindavík Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur, segir að bæjaryfirvöldum hugnist aðgerðir ríkisstjórnarinnar vel. Mikilvægt sé að íbúar haldi eignatengslum við Grindavík og geti snúið til baka. Innlent 22.1.2024 15:58
Bjarni hellir sér yfir Semu Utanríkisráðherra segir ásakanir Semu Erlu Serdaroglu, aðjúnkts við Háskóla Íslands og stofnanda Solaris, um að hann hefði uppi óhróður um hóp fólks og væri í reynd að hvetja til andúðar og ofbeldis, fráleitar og dæma sig sjálfar. Þá segir hann skemmdarverk hafa verið unnin á utanríkisráðuneytinu í morgun. Innlent 22.1.2024 15:50
Inga dregur vantrauststillöguna til baka Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, var ekki fyrr búin að leggja fram vantraustyfirlýsingu en Svandís Svavarsdóttir greindi frá því að hún væri komin með krabbamein. Hún segir réttast að draga tillöguna til baka. Innlent 22.1.2024 15:29
Myndir: Kröftug mótmæli þegar þing kom saman Mikill fjöldi mótmælenda var samankominn á Austurvelli síðdegis í dag, þegar Alþingi koma saman eftir jólafrí. Krafan var sú sama og undanfarna mánuði; að stjórnvöld beiti sér fyrir tafarlausu vopnahléi fyrir botni Miðjarðarhafs. Innlent 22.1.2024 15:15
Svandís með krabbamein og í veikindaleyfi Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, er farin í veikindaleyfi. Hún greindist með krabbamein í brjósti í morgun. Innlent 22.1.2024 15:09
Aðgerðir upp á tugi milljarða Aðgerðir stjórnvalda fyrir Grindvíkinga nema tugum milljarða króna í útgjöld fyrir ríkissjóð. Forsætisráðherra segir endanlegar línur um framtíð Grindavíkur liggja fyrir í febrúar. Innlent 22.1.2024 15:02