Fréttir
293 294 295 296 297 298 299 300 301 … 334 ›
Kristrún kallar eftir opinskárri umræðu um aðstoð við Grindvíkinga Það sem skiptir máli þegar kemur að því hvernig stjórnvöld hyggjast mæta Grindvíkingum sem nú sjá fram á að þurfa að finna sér nýtt húsnæði til lengri tíma og jafnvel langframa, er ekki hvaðan fjármagnið kemur heldur áhrif aðgerðanna á efnahagslífið. Innlent 29.1.2024 09:04
Ástarsamband við lækni talið rýra framburð Karlmaður var á dögunum sýknaður af ákæru þess efnis að hafa tekið dreng hálstaki. Dómari í málinu leit til þess við ákvörðun sína að læknirinn hefði skrifað upp á áverkavottorð eftir mynd af áverkum sem ósannreynt var hvenær var tekin. Þá yrði ekki litið fram hjá því að réttargæslumaður drengsins og læknirinn ættu í ástarsambandi. Réttargæslumaðurinn er auk þess mjög góð vinkona móður drengsins til langs tíma. Innlent 29.1.2024 09:00
Stubb sigraði fyrri umferð finnsku forsetakosninganna Finnsku forsetaframbjóðendurnir Alexander Stubb og Pekka Haavisto voru atkvæðamestir í forsetakosningunum sem fram fóru í landinu í gær. Erlent 29.1.2024 07:32
Þorvaldur segir brýnt að ráðast strax í fyrirbyggjandi aðgerðir Tveir skjálftar komu eftir hádegi í gær í grennd við Bláfjallaskála og var sá fyrri 2,9 stig og seinni 2,8. Innlent 29.1.2024 07:16
Æðstu ráðamenn Ísrael ítreka áköll um brottflutning Palestínumanna Ráðherrar í ríkisstjórn Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, voru meðal þúsunda gesta á ráðstefnu sem fram fór í Jerúsalem í gær, þar sem fjallað var um nauðsyn þess að „endurnema“ Gasa og mögulegar leiðir til þess. Erlent 29.1.2024 07:13
Von á allhvössum vindi víða um land Útlit er fyrir sunnanátt á landinu í dag og má búast við að stinningskaldi eða allhvass vindur verði algengur vindstyrkur. Veður 29.1.2024 07:13
Segir geranda sinn hafa fengið myndir frá lögreglu af nöktum líkama sínum „Ég kærði kynferðisofbeldið sem ég var beitt til lögreglu vegna þess að ég hélt að lögin myndu vernda mig. Mér datt ekki í hug að kerfið myndi sjálfkrafa brjóta á mér líka.“ Innlent 29.1.2024 07:00
Vinnueftirlitið rannsakar slysið í Grindavík og vill lögregluskýrslu Vinnueftirlitið rannsakar nú vinnuslysið í Grindavík, þar sem maður féll ofan í sprungu. Hefur eftirlitið óskað eftir lögregluskýrslu um málið. Innlent 29.1.2024 06:51
Íranir segjast ekki hafa átt aðkomu að árásinni á Bandaríkjamenn Stjórnvöld í Íran hafa neitað að hafa átt aðkomu að drónaárásinni sem varð þremur hermönnum Bandaríkjanna að bana á herstöð í Jórdaníu um helgina. Erlent 29.1.2024 06:33
Lenti á Mars í síðasta sinn Marsþyrlan Ingenuity hefur sungið sitt síðasta og mun ekki fljúga aftur. Þyrlan átti eingöngu að fljúga fimm sinnum og virka í einn mánuð en hún fór langt fram úr væntingum vísindamanna og hefur haldist á lofti í þrjú ár og flogið 72 ferðir. Erlent 28.1.2024 23:32
Ánægja með að komast heim þó margir séu ósáttir við yfirvöld Grindvíkingur segir ánægjulegt að fólk fái loksins að fara inn í bæinn eftir „ævintýralega efiða“ mánuði. Mörgum Grindvíkingum líði þó eins og yfirvöld hafi komið illa fram við íbúa og forgangsraðað undarlega aðgengi að bænum. Innlent 28.1.2024 23:18
Boða til skólaverkfalls til stuðnings Palestínu Nemendur í Hagaskóla hafa boðað til skólaverkfalls þann 6. febrúar næstkomandi til stuðnings Palestínu. Nemendurnir hyggjast yfirgefa tíma til að mæta á Austurvöll. Innlent 28.1.2024 21:54
Formaður og ritari Félags leiðsögumanna segja af sér Formaður og ritari Leiðsagnar - Félags Leiðsögumanna, Jóna Fanney Friðriksdóttir og Dóra Magnúsdóttir, hafa sagt af sér vegna þeirrar ólgu sem hefur geisað innan stjórnar félagsins frá því í október þegar stjórnarmeðlimir kröfðust afsagnar formanns. Innlent 28.1.2024 21:14
Gætu bjargað nashyrningum með hjálp staðgöngumóður Vel gæti verið að vísindamönnum takist að bjarga tegund hvítra nashyrninga ef tæknifrjóvgunartilraunir með aðstoð staðgöngumóður takast. Aðeins tvö kvendýr eru eftir í heiminum og því brýnt að koma tegundinni til bjargar. Erlent 28.1.2024 21:00
Hestar eru með 36 til 44 tennur Tannheilsa íslenskra hesta er afar mikilvæg og því eru starfandi sérstakir hestatannlæknar hér á landi, sem hafa meira en nóg að gera. Innlent 28.1.2024 20:31
Saklausir borgarar líði fyrir ákvörðun Íslands Fyrrverandi starfsmaður Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna segir ákvörðun Íslands um að frysta fjármagn til stofnunarinna ómannúðlega og hún muni bitna á saklausum borgurum. Innlent 28.1.2024 20:06
„Það fá allir tíma og það er nægur tími fram undan“ Frá og með morgundeginum verður Grindvíkingum hleypt inn á heimili sín í hollum. Ekkert kalt vatn er á bænum og hitaveita verulegua löskuð, þannig að kalt er í húsum. Grindvíkingar fá þrjá klukkutíma til að vera í bænum í fyrstu lotu. Innlent 28.1.2024 18:40
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Frá og með morgundeginum verður Grindvíkingum hleypt inn á heimili sín í hollum. Ekkert kalt vatn er á bænum og hitaveita verulega löskuð, þannig að kalt er í húsum. Við sýnum frá upplýsingafundi almannavarna og ræðum við Grindvíking í beinni útsendingu. Innlent 28.1.2024 18:00
Bandarískir hermenn féllu í drónaárás í Jórdaníu Þrír bandarískir hermenn féllu og 25 særðust í drónaárás á herstöð Bandaríkjanna í Jórdaníu við landamærin að Sýrlandi í nótt. Erlent 28.1.2024 17:44
Fimmtán og sextán ára drengir létust í stunguárás í Bristol Tveir drengir, fimmtán og sextán ára, voru stungnir til bana í borginni Bristol í Bretlandi í gærkvöldi. Erlent 28.1.2024 17:02
Sammála um að umræðan hafi harðnað Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, þingmaður Pírata, eru sammála um að umræðan um innflytjendamál hafi harðnað undanfarið. Þær ræddu um málaflokkinn í Sprengisandi á Bylgjunni í dag. Innlent 28.1.2024 16:00
Finnar kjósa sér forseta í dag Forsetakosningar Finna fara fram í dag. Baráttan um embættið stendur milli níu frambjóðenda. Ef enginn þeirra hlýtur yfir fimmtíu prósent atkvæða fer fram önnur umferð eftir tvær vikur. Erlent 28.1.2024 15:14
Innviðirnir góðir hjá Borgarbyggð Þrátt fyrir mikla uppbyggingu í Borgarbyggð og íbúafjölgun í sveitarfélaginu, þá ráða innviðir sveitarfélagsins vel við ástandið. Innlent 28.1.2024 14:31
Vara við fentanýl-menguðu Oxycontin: „Látnar líta alveg eins út og Oxy“ Fyrirtækinu Varlega, sem flytur inn vímuefnapróf, hefur borist ábendingar um að fentanýlblandaðar Oxycontin-töflur gætu verið í umferð hérlendis. Innlent 28.1.2024 13:44
Nefndin verði upplýst um grundvöll ákvörðunarinnar Formaður Viðreisnar segir mikilvægt að utanríkismálanefnd verði upplýst um á hvaða grundvelli ákvörðun var tekin um að fresta greiðslum Íslands til Palestínuaðstoðar Sameinuðu Þjóðanna. Yfirmaður stofnunarinnar hefur kallað eftir því að slíkar ákvarðanir verði dregnar til baka. Innlent 28.1.2024 13:43
Heimsækja þrjúhundruð heimili í þrjár klukkustundir Víðir Reynisson, sviðsstjóri Almannavarna, kynnti í dag nýtt skipulag um takmarkaða opnun Grindavíkur á upplýsingafundi. Innlent 28.1.2024 13:40
Upplýsingafundur Almannavarna vegna opnunar Grindavíkur Í dag klukkan eitt fer fram upplýsingafundur Almannavarna í Björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð. Fundurinn verður í beinni útsendingu hér. Innlent 28.1.2024 12:45
Deilt um hvort Eurovision sé utanríkismál: „Reiðin verði meiri ef Lilja og Bjarni skipa ríkisútvarpinu fyrir“ Ummæli Lilju Alfreðsdóttur, menningar og viðskiptamálaráðherra, um að ákvörðun um þátttöku Íslands í Eurovision sé í raun utanríkismál hafa vakið athygli. Stjórnarmaður í RÚV og stjórnarandstöðuþingmaður gagnrýna þau og telja sérstakt ef ákvörðunin sé tekin frá Útvarpsstjóra og færð til utanríkisráðherra. Innlent 28.1.2024 11:56
Hádegisfréttir Bylgjunnar Formaður Viðreisnar segir mikilvægt að utanríkismálanefnd verði upplýst um á hvaða grundvelli ákvörðun var tekin um að fresta greiðslum Íslands til Palestínuaðstoðar Sameinuðu Þjóðanna. Yfirmaður stofnunarinnar hefur kallað eftir því að slíkar ákvarðanir verði dregnar til baka. Innlent 28.1.2024 11:44
Mótmælendur skvettu súpu á Mónu Lísu Mótmælendur skvettu súpu á málverk Leonardo Da Vinci, Mona Lisa, á Louvre-safninu í París í dag. Erlent 28.1.2024 11:18