Fréttir
15 16 17 18 19 20 21 22 23 … 334 ›
Ýkt umræða um olíufund, netárás á flugvelli og bakgarðshlaup í beinni Litlar líkur eru á því að olíuleit á Drekasvæðinu beri árangur, segir jarðfræðingur. Staðhæfingar Viðskiptaráðs og umræðan byggi á úreldum gögnum. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Sýnar. Innlent 20.9.2025 18:00
Sænskur sjúkraflutningamaður myrtur í útkalli 25 ára maður er grunaður um að hafa myrt sjúkraflutningamann í Svíþjóð í dag. Sjúkraflutningamaðurinn var að sinna útkalli þegar ráðist var á hana. Erlent 20.9.2025 16:33
Nýjar framkvæmdir beina fólki að umdeildum gatnamótum Vegna framkvæmda hafa Veitur lokað annari akrein Hálsabrautar við Hestháls. Þar með fækkar útgönguleiðum úr Árbænum næstu fjórar vikurnar, og fleiri þurfa að aka um gatnamót Höfðabakka þar sem umdeildar framkvæmdir fóru fram í sumar. Innlent 20.9.2025 16:22
Netárásin gæti haft áhrif á ferðir Icelandair Netárás á erlent innritunarkerfi gæti komið til með hafa áhrif á flugferðir Icelandair. Forstöðumaður samskipta segir að allir ferðalangar verða látnir vita verði breytingar á ferðum þeirra. Innlent 20.9.2025 15:54
Ráðherra til í umræðu um sumarfrí barna Borgarfulltrúar Viðreisnar lögðu fram tillögu í vikunni um að kanna hvort stytta ætti sumarfrí grunnskólabarna um allt að tvær vikur. Guðmundur Ingi Kristinsson mennta- og barnamálaráðherra segist til í að taka umræðuna um málið. Innlent 20.9.2025 14:49
„Ísland á heima í hjarta Evrópu“ Formaður Viðreisnar fór um víðan völl í ræðu sinni á landsþingi Viðreisnar sem er um helgina. Á milli þess sem hún hvatti flokksmennina áfram fór hún yfir mikilvægi frelsis, störf hennar sem utanríkisráðherra og fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um Evrópusambandið. Innlent 20.9.2025 14:45
Sniðgangan friðsæl leið til að mótmæla og sýna samstöðu Sniðgangan 2025 verður gengin í dag á bæði höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Sniðgangan fer fram í annað sinn en tilgangur hennar er að vekja athygli á sniðgönguhreyfingunni og til að sýna samstöðu með Palestínu. Skipuleggjandi segir þetta friðsæla leið til að sýna samstöðu og taka afstöðu gegn Ísrael. Innlent 20.9.2025 13:46
Trump og Selenskí funda á ný Forseti Úkraínu og forseti Bandaríkjanna koma til með að funda á ný í næstu viku á þingi Sameinuðu þjóðanna. Úkraínuforseti segist ætla ræða viðskiptaþvinganir Bandaríkjanna gagnvart Rússum. Erlent 20.9.2025 13:16
„Skiljanlegt að mörgum blöskri að vita að hann gangi laus“ Afbrotafræðingur segir skiljanlegt að fólki blöskri að maður gangi laus sem sé grunaður um kynferðisbrot gegn barni á grunnskólaaldri. Maðurinn var látinn laus að loknu þriggja daga gæsluvarðhaldi og fór lögregla ekki fram á lengra varðhald yfir honum. Hún segist ekki muna eftir samskonar máli og að brot gerist ekki alvarlegri. Innlent 20.9.2025 12:03
Fordæmalaust kynferðisbrotamál og viðbragð NATO við brölti Rússa Afbrotafræðingur segir skiljanlegt að fólki blöskri að maður gangi laus sem sé grunaður um kynferðisbrot gegn barni á grunnskólaaldri. Maðurinn var látinn laus að loknu þriggja daga gæsluvarðhaldi og fór lögregla ekki fram á lengra varhald yfir honum. Innlent 20.9.2025 11:56
Vill breyta nafni Viðreisnar Þingmaður Viðreisnar hefur lagt fram tillögu um að breyta heiti flokksins á landsþingi. Hann telur nýja nafnið skerpa ímynd og skýra grunngildi flokksins um frelsi og lýðræði. Innlent 20.9.2025 11:41
Ýmsar leiðir fyrir lögreglu til að tryggja að endurkomubann virki Margrét Kristín Pálsdóttir, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segir það hafa gerst að fólk með endurkomubann hafi komist til landsins. Reynt sé að fylgja þeim úr landi eins fljótt og hægt er. Hún segir það muna skipta sköpum fyrir löggæslu á Suðurnesjum að fá móttöku- og brottfararstöð. Innlent 20.9.2025 11:18
Landsþing Viðreisnar hafið Landsþing Viðreisnar hófst í morgun og stendur yfir um helgina á Grand hótel. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður flokksins, er sjálfkjörin formaður, Daði Már Kristófersson sjálfkjörinn varaformaður og Sigmar Guðmundsson sjálfkjörinn ritari. Innlent 20.9.2025 10:04
Miklar tafir á fjölda flugvalla vegna netárásar Stórir alþjóðaflugvellir í Evrópu geta ekki innritað farþega rafrænt vegna netárásar. Árásin hefur leitt til mikilla tafa á flugferðum vítt og breitt um álfuna. Erlent 20.9.2025 09:44
Peningakassa stolið af hóteli í miðbæ Reykjavíkur Peningakassa var stolið af hóteli í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi eða nótt. Í dagbók lögreglunnar kemur fram að atvikið hafi náðst á upptökuvél og að annar gerandinn sé þekktur af lögreglu. Þar kemur einnig fram að málið sé í rannsókn. Innlent 20.9.2025 09:31
Cruz sagði hótanir Carr líkt og frá mafíósa í Goodfellas Öldungadeildaþingmaðurinn Ted Cruz, Repúblikani frá Texas, líkti hótunum Brendan Carr, forstjóra Fjarskiptastofnunar Bandaríkjanna (FCC), um að afturkalla útvarpsleyfi ABC-stöðva vegna ummæla spjallþáttastjórnandans Jimmy Kimmel, við taktík skipulagðra glæpaforingja, mafíósa, í kvikmyndinni Goodfellas frá árinu 1990. Erlent 20.9.2025 08:46
Eistar óska eftir samráði NATO eftir að Rússar rufu lofthelgi þeirra Eistar hafa óskað eftir því að virkja 4. grein Atlantshafssáttmálans sem kveður á um að ríki geti óskað eftir því að bandalagsríkin ráði ráðum sínum ef eitthvert þeirra telur öryggi sínu ógnað. Eista segja Rússa hafa flogið þremur herþotum inni í flughelgi sína í gær. Þeim var að enda fylgt út af ítölskum flugmönnum F-35 þota á vegum Atlantshafsbandalagsins Erlent 20.9.2025 07:50
Víða kaldi og allhvasst en lægir smám saman í dag Í dag er norðanáttin gengin niður á Vesturlandi, en annars staðar er víða kaldi og sums staðar allhvassir eða hvassir vindstrengir. Til dæmis undir Vatnajökli og á sunnanverðum Austfjörðum. Veður 20.9.2025 07:13
Breyta Hlöðunni í fræðslusetur fyrir 88 milljónir Borgarráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt tillögu um að hefja innkaupaferli og framkvæmdir við hina svokölluðu Hlöðu í Fjölskyldu og Húsdýragarðinum og breyta henni í sérstakt fræðslurými. Eftir „rýni í framkvæmdaáætlun“ er heildarkostnaður við verkið nú áætlaður 88 milljónir í stað 115 milljóna. Borgarfulltrúar meirihlutans fagna framkvæmdinni á meðan borgarfulltrúar í minnihluta telji hana vart geta talist forgangsverkefni í núverandi árferði. Innlent 20.9.2025 07:00
Gary Busey dæmdur fyrir kynferðisbrot Bandaríski stórleikarinn Gary Busey hefur verið dæmdur í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðislega áreitni. Hann játaði að hafa gripið í og káfað á aðdáanda árið 2022, á svokallaðri hryllingssamkomu, fyrir aðdáendur hryllingsmynda og þess háttar. Erlent 20.9.2025 00:10
Ísland gegnir formennsku í Norræna blaðamannasambandinu Ísland gegnir formennsku í Norræna blaðamannasambandinu (NJF) í fyrsta sinn frá stofnun sambandsins. Ísland tók við formennsku af Norðmönnum á árlegum fundi forsætisnefndar sambandsins í Osló í dag. Innlent 19.9.2025 23:56
Ísland rampar upp Úkraínu Samningur um 60 milljóna króna stuðning íslenskra stjórnvalda við verkefnið „Römpum upp Úkraínu“ næstu fjögur árin var undirritaður í húsakynnum utanríkisráðuneytisins við Austurhöfn í gær. Innlent 19.9.2025 23:27
Drógu vélarvana togara í land Björgunarskipið Björg á Rifi á Snæfellsnesi var kallað út í morgun vegna togara sem staddur var rétt norður af Snæfellsnesi en hafði misst vélarafl. Fór svo að togarinn var dreginn til hafnar í Grundarfirði og voru skipin komin þangað um þrjúleitið síðdegis. Innlent 19.9.2025 23:16
„Það er mikil reiði í Grafarvoginum út af þessu“ Umdeildar vegaframkvæmdir við Höfðabakka hafa gríðarleg áhrif á Grafarvogsbúa að sögn íbúa hverfisins. Nýjasta breytingin geri það stórhættulegt að aka um fjölfarin gatnamót. Innlent 19.9.2025 23:01
Fékk ekkert símtal frá gömlu vinnufélögunum Helgi Magnús Gunnarsson, fyrrverandi vararíkissaksóknari, segir að fyrrverandi samstarfsmenn sínir hafi flykt sér á bak við Sigríði Friðjónsdóttur ríkissaksóknara og sleikt hana upp eftir að deilurnar hófust þeirra á milli. Hann hefur ekkert heyrt frá þeim eftir að tilkynnt var um starfslok hans eftir þrettán ára samstarf. Innlent 19.9.2025 22:43
Leiðinlegt að óprúttnir aðilar skemmi fyrir heyrnarlausum Formaður Félags heyrnarlausra harmar að glæpahópar reyni að hafa fé af fólki í nafni félagsins. Raunverulegir sjálfboðaliðar séu ávallt einkennisklæddir og vinni eftir ströngum siðareglum. Innlent 19.9.2025 21:20
Gervigreindarvélmenni mætt til starfa til að flokka rusl Þrjú Gervigreindarvélmenni hafa tekið til starfa hjá Íslenska Gámafélaginu en hlutverk þeirra er að flokka sorp á flokkunarlínu félagsins. Vélmennin þekkja, flokka og aðskilja endurvinnanleg efni með mikilli nákvæmni. Innlent 19.9.2025 20:03
Segir lítið til í orðum ráðherra Fyrrverandi sviðstjóri hjá Mannviti segir lítið til í orðum umhverfis og orkuráðherra um að sérleyfum fyrir olíuleit og vinnslu hafi verið skilað vegna þess að litlar líkur hafi verið taldar á olíufundi. Hann segir að aðeins síðasta skrefið hafi verið eftir áður en pólitík í Noregi og fjárhagskraggar hjá kínversku félagi spillti fyrir. Innlent 19.9.2025 20:02
Íslendingur grunaður um morð í Svíþjóð Sænski vefmiðillinn Samnytt heldur því fram að rúmlega fertugur maður sem grunaður er um að hafa skotið 63 ára gamla konu til bana á heimili hennar í október í fyrra, sé Íslendingur. Maðurinn hefur verið ákærður fyrir verknaðinn ásamt tveimur öðrum, manni á sextugsaldri og konu á fertugsaldri. Erlent 19.9.2025 18:40
Gengur laus grunaður um barnaníð og meintar rangfærslur ráðherra Sviðsstjóra hjá lögreglunni segist skilja vel að það komi illa við fólk að maður sem grunaður er um að hafa gengið inn á heimili og brotið á barni skuli ganga laus. Maðurinn var í haldi lögreglu í þrjá daga, en eftir það taldi lögregla sig ekki geta haldið manninum lengur. Innlent 19.9.2025 18:15