Ungverjar til vandræða á Vélodrome: Stukku yfir girðingu og kveiktu í sprengju Tómas Þór Þórðarson skrifar 18. júní 2016 15:08 Stuðningsmennirnir stukku yfir girðinguna í horninu fjær sem sést á myndinni. vísir/esá
Harðkjarna stuðningsmenn Ungverjalands voru til vandræða á Stade Vélodrome nú rétt fyrir skömmu þar sem Ungverjar mæta Íslandi í öðrum leik liðanna á F-riðli EM 2016 í fótbolta klukkan 16.00. Leikurinn er í beinni textalýsingu hérna. Þegar um klukkustund var í leikinn stukku um 100 svartklæddir stuðningsmenn Ungverjalands yfir öryggisgirðingu því þeir vildu komast fyrir aftan annað markið og vera með félögum sínum sem einnig eru svartklæddir. Þessir svartklæddu stuðningsmenn eru helsti stuðningsmannakjarni ungverska landsliðsins. Hann er þó ekki hættulegur að sögn ungverskra blaðamanna hér á staðnum. Þeir hræddu vissulega sjálfboðaliðana sem reyndu að stöðva þá en létu þá annars í friði. Í miðjum látunum sprengdi einhver í ungverska hópnum litla sprengju. Lögreglan var alltof sein á svæðið og náði aðeins að stoppa 10-20 svartklædda stuðningsmenn ungverska liðsins en allir hinir komust fyrir aftan markið þar sem þeir vildu sitja. Ungverjar verða að minnsta kosti 21.000 á leiknum en talið er að þeir geti orðið allt upp í 30.000.
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Littler yngsti heimsmeistari sögunnar Sport Sagt að deyja eftir að Ísland komst ekki í undanúrslit Handbolti Börn Dagnýjar eftir á Íslandi: Blákaldur raunveruleikinn á fyrsta degi Enski boltinn Salah staðfestir að þetta sé hans síðasta tímabil með Liverpool Enski boltinn Glódís Perla íþróttamaður ársins með fullt hús stiga Sport Valdi ekki Salah í lið ársins hingað til Enski boltinn Meistararnir unnu annan leikinn í röð Enski boltinn Arsenal mistókst að setja aukna pressu á Liverpool Enski boltinn Albert ekki með þegar Fiorentina steinlá gegn Napoli Fótbolti Isak með Newcastle áfram á miklu flugi Enski boltinn Fleiri fréttir Pep neitar því að sínir menn séu komnir á beinu brautina Willum Þór skoraði þegar Birmingham tyllti sér á toppinn Arsenal mistókst að setja aukna pressu á Liverpool Albert ekki með þegar Fiorentina steinlá gegn Napoli Skrípamark en Mikael og félagar fengu bara stig „Himinlifandi“ eftir að hafa landað fyrirliða Fylkis Slæmt gengi gestanna heldur áfram Meistararnir unnu annan leikinn í röð Isak með Newcastle áfram á miklu flugi Olmo og Victor í algjörri óvissu eftir að beiðni Barcelona var hafnað Valdi ekki Salah í lið ársins hingað til KA fær lykilmann úr Eyjum Miðvörður Chelsea illa meiddur enn á ný Englandsmeistarar Chelsea meðal liða sem vilja Cecilíu Rán Íslandsmeistarinn Andri Rafn áfram í röðum Breiðabliks Ólafur Guðmundsson til Noregs Líklegast að heimaleikur Víkinga fari fram í Kaupmannahöfn Ótrúlegur sigur lyfti Real á toppinn Brazell ráðinn til Vals Salah staðfestir að þetta sé hans síðasta tímabil með Liverpool Nýttu klásúlu í samningi Maguire Brann einnig rætt við Frey Salah henti Suarez úr toppsætinu Rashford ekki með til Liverpool og sagður lasinn Kahn gæti eignast fallið stórveldi Bjargaði æskufélaginu sínu Slot segir Man. Utd mun betra en taflan sýni „Það er betra að sakna á þennan hátt“ Segir Rashford hafa hafnað þremur tilboðum frá Sádi-Arabíu Börn Dagnýjar eftir á Íslandi: Blákaldur raunveruleikinn á fyrsta degi Sjá meira