Sjávarútvegur
4 5 6 7 8 9 10 11 12 … 68 ›
Kauphöllin kallar eftir nýrri umgjörð utan um erlent eignarhald í sjávarútvegi Forsvarsmenn íslensku Kauphallarinnar mæla fyrir breytingum á umgjörð utan um erlenda fjárfestingu í sjávarútvegsfyrirtækjum, sem núna dregur úr gagnsæi og girðir í reynd nánast fyrir aðkomu slíkra fjárfesta, og vilja að regluverkið um erlent eignarhald verði svipað og gildir um flugrekstur hér á landi. Núverandi fyrirkomulag hefur meðal annars valdið því að íslensku sjávarútvegsfélögin eru ekki gjaldgeng í alþjóðlegar hlutabréfavísitölur ólíkt öðrum stórum skráðum félögum. Innherji 11.1.2024 10:55
Ólöf tekur við kynningarmálum hjá Hampiðjunni Hampiðjan hefur ráðið Ólöfu Snæhólm Baldursdóttur í starf samskipta- og kynningarfulltrúa. Ólöf var ein 63 umsækjenda um starfið og hefur hún hafið störf. Viðskipti innlent 11.1.2024 09:35
Blendnar tilfinningar fylgja opnun fiskvinnslunnar í Grindavík Hjól atvinnulífsins eru smám saman farin að snúast í Grindavík, þrátt fyrir yfirvofandi hættu á eldgosi nálægt bæjarmörkunum. Framkvæmdastjóri fiskvinnslufyrirtækis, sem opnaði í dag í fyrsta sinn frá rýmingu, segir tilfinningarnar blendnar. Innlent 9.1.2024 21:00
Ráðin samskiptastjóri Hafró Dóra Magnúsdóttir hefur verið ráðin í nýtt starf samskiptastjóra Hafrannsóknastofnunar, rannsókna- og ráðgjafarstofnunar hafs og vatna. Innlent 9.1.2024 12:51
Flökunarvélarnar settar í gang á morgun í fyrsta sinn í tvo mánuði Afli af grindvísku bátunum Gísla Súrssyni GK og Vésteini GK var slægður í morgun en á morgun verða flökunarvélar Einhamars Seafood í Grindavík svo settar af stað í fyrsta sinn í tvo mánuði. Innlent 8.1.2024 14:45
Segir frumvarp Svandísar svik við þjóðina Sigurjón Þórðarson, líffræðingur og varaþingmaður Flokks fólksins, er ómyrkur í máli um nýtt frumvarp Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra um sjávarútveg. Innlent 8.1.2024 13:26
Lífeyrissjóðir stækka við hlut sinn í Ísfélaginu eftir skráningu á markað Tveir lífeyrissjóðir, sem voru meðal umsvifamestu þátttakenda í almennu hlutafjárútboði Ísfélagsins undir lok síðasta árs, hafa stækkað talsvert við stöðu sína í fyrirtækinu með kaupum á eftirmarkaði síðustu vikur fyrir samtals vel á annan milljarð króna. Hlutabréfaverð Ísfélagsins hefur haldist nánast óbreytt frá fyrsta degi viðskipta þegar félagið var skráð á markað fyrir einum mánuði. Innherji 8.1.2024 10:47
Telur einsýnt að Svandís eigi að víkja Forsætisráðherra telur ekki ástæðu fyrir matvælaráðherra til að segja af sér í ljósi álits Umboðsmanns alþingis um hvalveiðibann í sumar. Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir afsögn Bjarna Benediktssonar hafa skapað fordæmi og Svandís eigi að víkja. Innlent 6.1.2024 19:08
Katrín segir álit Umboðsmanns ekki tilefni til afsagnar Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir álit Umboðsmanns ekki tilefni til afsagnar Svandísar Svavardóttur matvælaráðherra. Hún segir að mikilvægt sé að taka niðurstöðu Umboðsmanns alvarlega og draga af henni lærdóm en að hún gefi ekki tilefni til róttækra aðgerða. Innlent 6.1.2024 17:13
Álit umboðsmanns nákvæmlega það sem varað hafi verið við Formaður atvinnuveganefndar Alþingis segir sláandi að hvalveiðibann hafi ekki átt sér lagastoð. Varað hafi verið við því síðan í sumar. Ráðherra verði að gera upp við sig sjálfur hvernig hann hyggist axla ábyrgð á málinu, sem eigi ekki að hafa úrslitaáhrif á framhald ríkisstjórnarsamstarfsins. Innlent 6.1.2024 11:55
Kristján segir Hval ætla að krefjast skaðabóta Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals hf. segir fyrirtækið ætla að sækja bætur vegna þess stórfellda tjóns sem ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur um tímabundna stöðvun hvalveiða síðasta sumar hafi valdið félaginu og starfsmönnum þess, í ljósi álits Umboðsmanns Alþingis. Innlent 6.1.2024 07:20
Svandís eigi það við eigin samvisku hverjar afleiðingarnar verði Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, segir álit Umboðsmanns Alþingis um ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra að banna hvalveiðar í sumar vera skýrt og afdráttarlaus. Innlent 5.1.2024 16:37
Tekur álitið alvarlega en hyggst ekki segja af sér Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra segir að hún hafi ekki átt annan kost en að bregðast við með því að fresta upphafi hvalveiða við upphaf vertíðar. Hún segist taka álit umboðsmanns Alþingis alvarlega og að hún muni áfram berjast fyrir breytingum á „úreltum“ hvalveiðilögum. Innlent 5.1.2024 14:08
Frestun hvalveiða átti sér ekki nægilega skýra stoð í lögum Álit Umboðsmanns Alþingis er að reglugerð um frestun upphafs hvalveiða í sumar hafi ekki átt sér nægilega skýra stoð í lögum um hvalveiðar. Innlent 5.1.2024 13:59
Skip Samherja fékk heimsstyrjaldarsprengju í trollið Ísfisktogarinn Björg EA 7, sem er gerður út af Samherja, fékk í gær hluta úr breskri sprengju í veiðafæri sín þegar skipið var á veiðum á Rifsbanka, norður af Melrakkasléttu. Innlent 4.1.2024 15:51
Rúnar frá Marel til Aquatiq Rúnar Birgisson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Aquatiq á Íslandi. Rúnar hefur starfað fyrir Marel í kvartöld. Viðskipti innlent 4.1.2024 13:46
Segir skipstjórana tvo hafa vanrækt skyldur sínar Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar segir tvo skipstjórnarmenn á Huginn VE hafa vanrækt skyldur sínar í tengslum við það þegar akkeri féll frá borði og setti neysluvatnskerfi Vestmannaeyinga í uppnám. Innlent 28.12.2023 15:32
Samherji finnur not fyrir gamla Landsbankahúsið Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, og Kristján Vilhelmsson, framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja, hafa stofnað frumkvöðla- og nýsköpunarfyrirtæki sem verður til húsa í gamla Landsbankahúsinu við Ráðhústorg á Akureyri. Fyrirtækið mun bera nafnið Drift EA. Viðskipti innlent 21.12.2023 10:10
Smábátur lenti í vandræðum við Álftanes Skipverji smábáts, sem var skammt undan Álftanesi, gaf út hjálparbeiðni í gærkvöldi vegna vélarvandræða. Vél bátsins hafði ofhitnað við áreynslu, og taldi skipverji ekki óhætt að halda áfram fyrir eigin vélarafli. Innlent 18.12.2023 10:52
Sjáðu norska kofann sem Þorsteinn Már keypti á 260 milljónir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, hefur fest kaup á 254 fermetra fjallakofa fyrir utan Lillehammer í Noregi. Fyrir kofann greiddi Þorsteinn 260 milljónir króna. Lífið 14.12.2023 15:19
Vöktuðu bryggjuna í Grindavík í nótt Starfsmenn Grindavíkurhafnar og Vísis vöktuðu Grindavíkurhöfn í nótt vegna hættu á flóðum af völdum lægðarinnar sem gekk yfir landið. Leyfi fékkst frá almannavörnum til þess að mæta fyrr í bæinn í nótt. Innlent 14.12.2023 13:05
Töf á viðgerð á vatnslögninni vegna veðurs Slæmt veður hefur hamlað viðgerðarvinnu á vatnslögn til Vestmannaeyja. Það kemur fram í tilkynningu frá Slökkviliði Vestmannaeyja. Þar kemur fram að mikil vinna hafi verið lögð í að festa vatnslögnina. Vinnan hafi gengið vel en ekki eins hratt og áætlanir hafi gert ráð fyrir, vegna veðurs. Innlent 8.12.2023 16:15
Lífeyrissjóður verslunarmanna umsvifamesti fjárfestirinn í útboði Ísfélagsins Lífeyrissjóður verslunarmanna keypti tæplega fimmtung allra þeirra bréfa sem voru seld í nýafstöðnu hlutafjárútboði Ísfélagsins fyrir samtals um 3,5 milljarða. Þrír af stærstu lífeyrissjóðum landsins fengu hins vegar ekki úthlutað neinum bréfum en hlutabréfaverð Ísfélagsins, sem var skráð í Kauphöllina í morgun, hefur rokið upp um meira en tuttugu prósent miðað við útboðsgengið til almennra fjárfesta. Innherji 8.12.2023 12:07
Guðbjörg hringdi bjöllunni Viðskipti með hlutabréf Ísfélags hf. á aðalmarkaði Nasdaq Iceland hófust í morgun. Guðbjörg Matthíasdóttir, eigandi Ísfélags, hringdi af því tilefni Kauphallarbjöllunni um borð í Sigurði VE í Vestmannaeyjahöfn í morgun og naut hún þar aðstoð barnabarna sinna, þeim Magnúsi og Sigurði. Viðskipti innlent 8.12.2023 11:50
Afríka bíður meðan Eyjamenn fá búnað sem tryggir drykkjarvatn Vinnslustöðin hefur fest kaup á þremur gámum með hollenskum tæknibúnaði sem breytir sjó í drykkjarvatn og má reikna með að fyrsti gámurinn komi til landsins milli jóla og nýárs og hinir tveir í upphafi næsta árs. Þar sem félagið þarf bara einn gám til að fullnægja eigin þörfum hefur Ísfélaginu og Vestmannaeyjabæ verið boðið að kaupa hina tvo. Innlent 8.12.2023 07:34
Söluandvirði útboðs Ísfélagsins átján milljarðar Almennu hlutafjárútboði Ísfélags hf. lauk klukkan tvö í gær, en alls bárust um 6.500 áskriftir að andvirði um 58 milljarða króna. Það samsvarar tæplega fjórfaldri eftirspurn. Viðskipti innlent 2.12.2023 09:37
Verður Ísland útibúaland eða land höfuðstöðva blárrar nýsköpunar? Á skömmum tíma hafa mörg af mest hraðvaxandi fyrirtækjum hérlendis verið seld erlendum fjárfestum. Við fögnum þessum aukna áhuga erlendra fjárfesta á íslenskri nýsköpun og auðlindum henni tengdri. En þessi þróun kallar þó á að við metum hvaða áhrif hún getur haft á íslenska nýsköpun og athafnalíf. Eins er mikilvægt að rekstrarskilyrði þessara fyrirtækja séu sem best þannig að höfuðstöðvar þeirra haldist hér áfram. Sjávarklasinn hefur ekki hingað til talið skipta máli hvaða litur er á vegabréfum eigenda íslenskra fyrirtækja en þegar erlendir aðilar taka að fullu yfir okkar framsæknustu fyrirtæki er ástæða til að skoða áhrifin af því. Í þessari greiningu Sjávarklasans er fjallað um erlenda fjárfestingu og möguleg áhrif hennar á bláa hagkerfið hérlendis. Skoðun 30.11.2023 17:00
IFS verðmetur Ísfélagið um nítján prósentum hærra en útboðsgengi IFS greining verðmetur Ísfélagið 18,5 prósent yfir útboðsgengi í áskriftarbók til almennra fjárfesta og mælir með kaupum í útgerðinni. „Samanburður á verðkennitölum Ísfélagsins við verðkennitölur Brim og Síldarvinnslunnar gefa til kynna að virði Ísfélagsins sé nokkuð sanngjarnt metið í útboðinu.“ Innherji 30.11.2023 12:31
Matvælaráðherra dulur um mögulega endurnýjun leyfis Hvals „Ráðuneytinu hefur ekki borist umsókn um nýtt leyfi.“ Innlent 30.11.2023 07:01
Grindavíkurhöfn dýpri og mikill hugur í hafnarstjóranum Grindavíkurhöfn hefur dýpkað eftir jarðhræringar undanfarinna vikna. Bryggjurnar hafa sigið um tuttugu til þrjátíu sentímetra. Hafnarstjóri segir höfnina geta verið viðkvæmari fyrir flóðum en segir dýpkunina líka hafa ýmsa kosti í för með sér. Tekið verður á móti fyrsta skipi til löndunar síðan að bærinn var rýmdur á morgun. Viðskipti innlent 29.11.2023 22:27