
Hnífaárás við Hofsvallagötu

Sakamálin sem skóku þjóðina
Gríðarlega mörg sakamál voru til umfjöllunar hér á landi árið 2024. Sjö manndrápsmál komu upp á árinu, þar sem samanlagt átta létu lífið. Af þessum átta voru þrjú mál þar sem barn lést.

Örn í sex ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps
Örn Geirdal Steinólfsson, 48 ára karlmaður, hefur verið dæmdur í sex ára fangelsi fyrir manndrápstilraun í vesturbæ Reykjavíkur í janúar síðastliðnum. Þá þarf hann að greiða karlmanni sem hlaut hættulega áverka 2,2 milljónir króna í miskabætur.

Bréf sálfræðings dugði ekki til að Erni yrði gert að víkja
Brotaþoli hnífaárásar í Vesturbæ Reykjavíkur krafðist þess að Erni Geirdal Steinólfssyni, sem ákærður er fyrir manndrápstilraun í málinu, yrði gert að víkja úr dómsal á meðan hann gæfi skýrslu. Landsréttur staðfesti úrskurð héraðsdóms þar sem beiðni brotaþola er hafnað.

Telur röð tilviljana hafa orðið til þess að árásin átti sér stað
Þrír geðlæknar sem gáfu skýrslu í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær varðandi stunguárás sem átti sér stað í Vesturbænum í janúar voru á sama máli um að karlmaður sem er ákærður í málinu væri sakhæfur. Það er þrátt fyrir að hann hafi verið í erfiðu andlegu ástandi þegar atvikin sem málið varða áttu sér stað.

Vildi skutla farþega heim á undan blóðugum manni
Skólafélagar á þrítugsaldri, karlmaður og kona, sem voru að labba heim úr bekkjarpartýi aðfaranótt 20. janúar síðastliðinn segjast hafa ætlað að hjálpa manni sem var úti á miðri götu. Sá hafi hins vegar endað á stinga karlmanninn sem hlaut lífshættulega áverka. Fólkið náði að stoppa leigubílstjóra á vakt sem vildi þó skutla farþega á Seltjarnarnes áður en hann færi með blóðugan karlmann á sjúkrahús.

„Fyrir mér virðist ég vera mjög auðvelt fórnarlamb“
Tæplega fimmtugur karlmaður sem er grunaður um að hafa stungið karlmann að tilefnislausu á gatnamótum Hofsvallagötu og Hringbrautar í Reykjavík um nótt í janúar lýsir sjálfum sér sem venjulegum fjölskylduföður. Hann segist vera fórnarlamb í málinu. Brotaþoli hlaut lífshættulega áverka.

Hnífstungumaður talinn sakhæfur og fer fyrir dóm
Aðalmeðferð í máli karlmanns á fimmtugsaldri sem er ákærður fyrir tilraun til manndráps í Vesturbæ Reykjavíkur í vetur á að hefjast á mánudag. Maðurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því í janúar. Hann er talinn sakhæfur.

Maður grunaður um tilefnislausa stunguárás í varðhaldi síðan í janúar
Landsréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur á hendur karlmanni á fimmtugsaldri sem er grunaður um tilraun til manndráps í janúar á þessu ári. Hann hefur verið ákærður fyrir að stinga annan mann af tilefnislausu á gatnamótum Hofsvallagötu og Hringbrautar í Reykjavík.

Blóðugur hnífur fannst á heimili hins grunaða
Blóðugur hnífur fannst á heimili karlmanns á fimmtugsaldri sem hefur verið ákærður fyrir tilefnislausa stunguárás í janúar á þessu ári. Maðurinn neitar sök, en samkvæmt niðurstöðum sérfræðinga er hann talinn sakhæfur.

Ákærður fyrir stunguárás á akbraut
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps með því að stinga annan mann tvisvar sinnum um nótt á þessu ári, en dagsetning atviksins kemur ekki fram í nafnhreinsaðri ákæru sem fréttastofa hefur undir höndum.

Úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir tilefnislausa stunguárás
Karlmaður á fimmtugsaldri, sem var handtekinn í gærmorgun grunaður um að hafa stungið karlmann á þrítugsaldri í vesturbæ Reykjavíkur í síðuna, var úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald í gærkvöldi.

Í lífshættu eftir tilefnislausa stunguárás
Karlmaður á þrítugsaldri er mjög alvarlega særður eftir að hann var stunginn í vesturbæ Reykjavíkur í nótt. Karlmaður á fimmtugsaldri var handtekinn grunaður um árásina. Tildrög árásarinnar eru óljós.