ÍL-sjóður
1 2 ›
Stál í stál: Fáir að biðja um að allir borgi segir Bjarni um lífeyrissjóðina Það kemur ekki til greina að lífeyrissjóðirnir slái af kröfum sínum á ÍL-sjóð, segir framkvæmdastjóri Landsambands lífeyrissjóða. Á sama tíma segir Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra lífeyrissjóðina ekki munu komast upp með það að stilla ríkissjóði upp við vegg. Innlent 27.10.2022 14:37
Fjármálaráðherra skilur ekki skilmála íbúðabréfanna Undanfarna viku hefur fjármálaráðherra farið mikinn í fjölmiðlum og í ræðusal Alþingis um íbúðabréfin og ábyrgð ríkissjóðs á þeim. Hann hefur ítrekað rætt um að vegna þess að ábyrgðin sé einföld ábyrgð en ekki sjálfskuldaábyrgð geti ríkið keyrt ÍL-sjóð í þrot og komist hjá því að greiða ógjaldfallna vexti og verðbætur af íbúðabréfunum. Skoðun 27.10.2022 13:00
Áform ráðherra gætu haft „jákvæð áhrif á vaxtaumhverfið,“ segir bankastjóri Arion Bankastjóri Arion banka telur að áform fjármálaráðherra um að slíta ÍL-sjóði með sérstakri lagasetningu, náist ekki samkomulag við kröfuhafa, eigi ekki að valda þrýstingi á fjármálamarkaði heldur geti þau haft „jákvæð áhrif“ á vaxtaumhverfið. Arion hefur fært niður virði íbúðabréfa útgefnum af gamla Íbúðalánasjóðnum í bókum sínum fyrir um 250 milljónir króna. Innherji 27.10.2022 12:07
Blaðamannafundurinn sem þurrkaði upp milljarða Eftir lokun markaða á fimmtudag hélt fjármálaráðherra blaðamannafund þar sem hann kynnti að Íbúðalánasjóður færi að óbreyttu í þrot eftir 12 ár og að þá myndi reyna á ríkisábyrgð. Samkvæmt þessari sviðsmynd liggur líka fyrir að næstu 12 árin á sjóðurinn fyrir skuldbindingum sínum. Skoðun 27.10.2022 09:30
Kristrún og Bjarni saka hvort annað um fáfræði um efnahagsmál Fjármálaráðherra er með frumvarp í undirbúningi þannig að hægt verði að slíta ÍL sjóði á næsta ári en segist helst vilja semja við kröfuhafa þannig að ekki þurfi að leggja frumvarpið fram. Stjórnarandstöðuþingmenn saka ráðherra um að ætla að varpa skuld sjóðsins yfir á lífeyrissjóðina. Innlent 26.10.2022 19:20
Skuldabréfasjóðir færa niður eignir um milljarða vegna áforma um slit á ÍL-sjóði Stærstu skuldabréfasjóðir landsins, sem eru opnir öllum fjárfestum og margir hverjir með stórt hlutfall eignasafnsins bundið í íbúðabréfum útgefnum af gamla Íbúðalánasjóðnum, hafa nú þegar fært niður virði eigna sinna um marga milljarða króna eftir að fjármálaráðherra boðaði aðgerðir til að slíta ÍL-sjóði, samkvæmt greiningu Innherja. Mestu munar um tæplega fimm prósenta gengislækkun 20 milljarða ríkisskuldabréfasjóðs í stýringu Íslandssjóða í einu vetfangi sem þýddi niðurfærslu á virði eigna hans um meira en 900 milljónir. Innherji 26.10.2022 08:15
Alltof stór orð notuð og hafa verði í huga hver láti þau falla Fjármálaráðherra segir mikilvægt að halda því til haga að þeir sem hafi gagnrýnt fyrirhuguð skipti á ÍL-sjóðinum séu aðeins þeir sem hafi beina hagsmuni í málinu - lífeyrissjóðirnir. Stór orð þeirra um greiðslufall ríkissjóðs og laskað lánstraust minnir hann á umræðuna í uppgjörinu við föllnu bankana. Viðskipti innlent 25.10.2022 14:01
Ráðherra „mótmælir harðlega“ að slit á ÍL-sjóði líkist greiðslufalli ríkissjóðs Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, segist „mótmæla harðlega“ þeirri skoðun sem stjórnarmaður í lífeyrissjóði hefur sett fram að ef ÍL-sjóður, áður gamli Íbúðalánasjóðurinn, verði settur í slitameðferð jafngildi það greiðslufalli ríkissjóðs sem er í ríkisábyrgð fyrir skuldbindingum sjóðsins. Innherji 25.10.2022 08:36
Verðið á íbúðabréfum fellur um 16 prósent vegna áforma um slit á ÍL-sjóði Verðið á íbúðabréfum útgefnum af gamla Íbúðalánasjóðnum lækkaði verulega á markaði í morgun í fyrstu viðskiptum sem hafa átt sér stað með bréfin, sem eru á sérstökum athugunarlista Kauphallarinnar, eftir að fjármálaráðherra boðaði tillögur um hvernig megi leysa upp ÍL-sjóð síðasta fimmtudag. Miðað við verð bréfanna í viðskiptunum, sem voru aðeins upp á samtals 300 þúsund krónur, má áætla að markaðsvirði útistandandi íbúðabréfa hafi lækkað um samtals meira en 100 milljarða króna. Innherji 24.10.2022 11:49
„Hæpið“ að eignaréttindi kröfuhafa séu skert verði ÍL-sjóður settur í þrot Sérstök lög sem hefðu það að markmiði að knýja fram skiptameðferð á ÍL-sjóði, þar sem í engu væri samt haggað ríkisábyrgð á eftirstöðvum skulda sjóðsins, er mun „vægari“ aðgerð en það svigrúm sem löggjafanum hefur verið heimilað af dómstólum til að setja notkun og ráðstöfun eiga skorður vegna almannahagsmuna. Innherji 24.10.2022 06:00
Fjármálaráðherra hafi „kallað fram óþarfa óvissu á markaði“ Framkvæmdastjóri eins stærsta lífeyrissjóðs landsins, sem eru langsamlega stærstu eigendur krafna á hendur ÍL-sjóði, gagnrýnir harðlega tímasetningu Bjarna Benediktssonar fjármála- og efnahagsráðherra þegar hann kynnti tillögur sínar um hvernig gera megi upp eignir og skuldir sjóðsins eftir lokun markaða í gær. Ávinningur ríkissjóðs af aðgerðunum muni jafnframt á móti þýða tap fyrir lífeyrissjóði. Innherji 21.10.2022 16:04
Óvissa um uppgjör ÍL-sjóðs setur „allan skuldabréfamarkaðinn í uppnám“ Tillögur fjármálaráðherra um hvernig leysa megi upp ÍL-sjóð voru „nokkuð óvænt útspil“ en verði það gert á grundvelli svonefndrar einfaldrar ábyrgðar ríkissjóðs, þar sem tæknilega er hægt að greiða upp skuldabréf sjóðs á pari í dag frekar en yfir líftíma þeirra allt til ársins 2044, mun það þýða „umtalsvert“ tap fyrir þá sem halda á bréfunum, að sögn sérfræðings á skuldabréfamarkaði. Langsamlega stærstu eigendur skuldabréfanna eru lífeyrissjóðir. Innherji 21.10.2022 13:31
Lífeyrissjóðir þurfa að „taka á sig högg“ vegna slita á ÍL-sjóði Fá sjónarhóli ríkisins er skiljanlegt að vilja leysa upp ÍL-sjóð og stöðva þá blæðingu úr ríkisfjármálunum vegna hans sem annars er fyrirsjáanleg næstu tvo áratugina. Lánardrottnar ÍL-sjóðs, að langstærstum hluta lífeyrissjóðir en einnig verðbréfasjóðir, fjármálafyrirtæki og einstaklingar, munu þurfa að taka á sig högg hvort sem gengið verður til samninga um uppgjör skuldanna eða sjóðnum slitið einhliða af ríkinu í kjölfar lagasetningar. Þetta segir aðalhagfræðingur Íslandsbanka. Innherji 21.10.2022 12:04
Ríkið sparar 150 milljarða með því að slíta gamla Íbúðalánasjóði Til að reka ÍL-sjóð, sem áður hét Íbúðalánasjóður, út líftíma þyrfti ríkissjóður að leggja honum til 450 milljarða króna eftir tólf ár. Aftur á móti ef honum yrði slitið nú og eignir seldar til að greiða skuldir væri staðan neikvæð um 47 milljarða króna. Þetta er niðurstaða skýrslu fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Innherji 20.10.2022 16:03
Bein útsending: Bjarni ræðir stöðu og framtíð ÍL-sjóðs Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur boðað til blaðamannafundar um stöðu ÍL-sjóðs og næstu skref í tengslum við hann. Fundurinn verður í beinni útsendingu hér að neðan. Innlent 20.10.2022 15:01
ÍL-sjóður „stór óvissuþáttur“ í efnahag ríkissjóðs Þróun efnahags ÍL-sjóðs, sem áður hét Íbúðalánasjóður, er „stór óvissuþáttur“ í langtímaþróun skulda ríkissjóðs í ljósi þess að efnahagur sjóðsins er bæði umfangsmikill og næmur fyrir breytingum á markaðsaðstæðum. Þetta kemur fram í fjárlagafrumvarpi ársins 2023 sem fjármála- og efnahagsráðherra kynnti í dag. Innherji 12.9.2022 15:11
SÍ segir ráðuneytinu að vanda betur til verka með ÍL-sjóð Seðlabanki Íslands segir óheppilegt hversu lengi hefur dregist að setja reglugerð um úrvinnslu eigna og skulda ÍL-sjóðs og bankinn telur að reglugerðardrögin sem nú liggja fyrir séu óviðunandi. Þetta kemur fram í umsögn Seðlabankans. Innherji 30.6.2022 16:00
ÍL-sjóður tapaði nærri 14 milljörðum króna í fyrra ÍL-sjóður tapaði 13,9 milljörðum króna á síðasta ári samkvæmt nýbirtum ársreikningi sjóðsins og eigið féð var í árslok neikvætt um 196,6 milljarða króna. Innherji 30.4.2022 14:00