Meistaradeildin
267 268 269 270 271 272 273 … 273 ›
Garcia kemur Liverpool í 2-0 Luis Garcia var að koma Liverpool í 2-0 með hreint út sagt ótrúlegu mari. Garcia tók boltann á lofti af um 25 metra færi og þrumaði honum yfir Buffon og í bláhornið. Klárlega eitt af mörkum keppninnar hingað til. Sport 13.10.2005 19:00
Vinátta yfirskrift leiksins Hver einasti stuðningsmaður Juventus sem kemur á Anfield í kvöld fær armband sem er í litum Liverpool og Juventus með áletruninni „vinátta“, bæði á ensku og ítölsku. Þá ætla stuðningsmenn Liverpool að búa til mósaíkmynd í stúkunni með áletruninni „vinátta“. Sport 13.10.2005 19:00
Mourinho treystir leikmönnum sínum Jose Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea, segist hafa fulla trú á að leikmenn sínir geti spjarað sig án hans gegn Bayern Munchen annað kvöld, en stjórinn tekur út bann í leiknum og má því eiga lítil sem engin afskipti af liðinu meðan á leik stendur. Sport 13.10.2005 19:00
Liverpool sigraði Juventus Liverpool sigraði Juventus í fyrri leik liðana í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu á Anfield í kvöld með tveimur mörkum gegn einu. Leikurinn var mjög kaflaskiptur en Liverpool sýndi allar bestu hliðar fótboltans í fyrri hálfleik, en Juventus sýndi hvers vegna þeir eru eitt af bestu liðum álfunar í þeim seinni. Sport 13.10.2005 19:00
Lehmann fær tveggja leikja bann Þýski markvörðurinn Jens Lehmann hjá Arsenal hefur verið úrskurðaður í tveggja leikja bann í Evrópukeppni fyrir hegðun sína eftir tapið gegn löndum sínum í Bayern Munchen á dögunum. Sport 13.10.2005 19:00
Carson og Le Tallec byrja Markvörðurinn ungi, Scott Carson, og Frakkinn efnilegi Anthony Le Tallec eru báðir í byrjunarliði Liverpool sem mætir Juventus í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu á Anfield í kvöld. Þá er Xabi Alonso í hópnum Sport 13.10.2005 19:00
Lyon og PSV skyldu jöfn Lyon og PSV Eindhoven skyldu jöfn í fyrri leik liðana í Meistaradeild Evrópu í kvöld með einu marki gegn einu. Florent Malouda kom heimamönnum yfir á þrettándu mínútu en fyrrum Barcelona leikmaðurinn, Phillip Cocu, jafnaði ellefu mínútum fyrir leikslok. Liðin mætast að nýju, þá í Hollandi, eftir rúma viku. Sport 13.10.2005 19:00
Lyon komið yfir gegn PSV Lyon frá Frakklandi er komið yfir gegn PSV á heimavelli sínum Stade de Gerland í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Það var Florent Malouda sem gerði markið á þrettándu mínútu. Sport 13.10.2005 19:00
Samhugur á Anfield Mikil viðhöfn verður á leik Liverpool og Juventus í Meistaradeildinni í kvöld, til að minnast fórnarlambanna á Heysel leikvangnum fyrir réttum 20 árum, þegar veggur hrundi á úrslitaleik liðanna í keppninni og varð 39 manns að bana. Sport 13.10.2005 19:00
Juventus búið að minnka muninn Fabio Cannavaro var rétt í þessu að minnka muninn í 2-1 með skallamarki á 64. mínútu. Spurningamerki verður þó að setja við markvörðinn unga Scott Carson sem hefði átt að gera betur. Juventus hafa verið mun sterkari í síðari hálfleik eftir frábæran fyrri hálfleik hjá Liverpool. Sport 13.10.2005 19:00
Mourinho verður víðs fjarri Baltemar Brito, aðstoðarmaður Jose Mourinho hjá Chelsea, hefur staðfest að Mourinho verði hvergi nærri Stamford Bridge þegar Chelsea mætir Bayern Munchen í Meistaradeildinni annað kvöld. Sport 13.10.2005 19:00
Del Piero vill gleyma Heysel Alessandro del Piero vill nota Meistaradeildarleikinn gegn Liverpool annað kvöld til að ,,loka kafla" á mjög slæmri minningu. Eins og flestir vita mættust liðin tvö í úrslitum Evrópukeppninnar árið 1985 á Heysel leikvanginum þar sem 39 stuðningsmenn létust. Sport 13.10.2005 19:00
Slagur sem vekur upp minningar Átta liða úrslit meistaradeildarinnar hefjast með tveimur leikjum í kvöld. Franska liðið Lyon, sem tók Werder Bremen í bakaríið í sextán liða úrslitum, tekur á móti PSV frá Hollandi og Juventus sækir Liverpool heim á Anfield. Sport 13.10.2005 19:00
Benitez vill halda hreinu Rafa Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, segir það algjört lykilatriði fyrir lið sitt að halda hreinu á heimavelli sínum í fyrri leik sínum við Juventus í vikunni. Sport 13.10.2005 19:00
Chelsea ætlar ekki að áfrýja Chelsea ætlar ekki að áfrýja banni Jose Mourinho, en UEFA sektaði Chelsea um 33 þúsund pund og setti Mourinho í tveggja leikja bann eftir atvik sem upp kom í leik Chelsea gegn Barcelona í 16-liða úrslitunum. Sport 13.10.2005 19:00
Mourinho fær bann og sekt Jose Mourinho hefur verið fundinn sekur um lygar af evrópska knattspyrnusambandinu og fær fyrir vikið tveggja leikja bann og tæplega 9000 punda sekt. Sport 13.10.2005 18:59
Oliver Kahn vill ná þrennunni Oliver Kahn, landsliðsmarkvörður Þjóðverja, er sannfærður um að lið sitt, Bayern Munchen, muni vinna þrjá titla á tímabilinu. Sport 13.10.2005 18:58
Mourinho dregur orð sín til baka Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, sem hefur verið ákærður fyrir munnsöfnuð og dylgjur í garð Anders Frisks, dómara frá Svíþjóð, eftir leik Barcelona og Chelsea í Meistaradeildinni í knattspyrnu, hefur dregið orð sín til baka og segist ekki hafa séð Frisk dómara ræða við Frank Rijkaard, þjálfara Barcelona, í leikhléi í fyrri viðureign liðanna. Sport 13.10.2005 18:58
Komu óorði á knattspyrnuna Knattspyrnusamband Evrópu hefur kúvent í afstöðu til Chelsea og ákveðið að ákæra Jose Mourinho, stjóra félagsins, Steven Clarke aðstoðarstjóra og Les Miles, yfirmann öryggismála hjá Chelsea, fyrir að koma „óorði á knattspyrnuna“, eins og það er orðað. Sport 13.10.2005 18:56
Adriano ekki með gegn AC Milan? Ólíkegt þykir að brasilíski sóknarmaðurinn Adriano getir leikið með liði sínu, Inter Milan er það mætir nágrannaliðinu AC Milan í 8-liða úrslita Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu. Sport 13.10.2005 18:56
Seldist upp á 90 mínútum 59 þúsund aðgöngumiðar á leik Bayern Munchen og Chelsea í fjórðungsúrslitum Meistaradeildar Evrópu þann 12. apríl nk. seldust upp á 90 mínútum. Þá hurfu 3000 aðgöngumiðar á fyrri leik liðanna á Stamford Bridge, sem stuðningsmenn Bæjara höfðu aðgang að, eins og dögg fyrir sólu. Sport 13.10.2005 18:56
Liverpool tekst á við Juventus Liverpool mætir Juventus í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu, en dregið var í höfuðstöðvum Knattspyrnusambands Evrópu í Nyon í Sviss í morgun. Þá mætir Chelsea Bayern München og Mílanóliðin AC Milan og Inter berjast um sæti í undanúrslitum. Loks mætir franska liðið Lyon hollenska liðinu PSV Einhoven. Fyrri leikir liðanna fara fram 5. og 6. apríl en þeir síðari viku síðar. Sport 13.10.2005 18:56
Eiður Smári mætir Bæjurum Í gær var dregið í átta liða og undanúrslit meistaradeildarinnar í fótbolta. Sport 13.10.2005 18:56
Dregið í Meistaradeildinni í dag Dregið verður í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í dag en athygli vakti að Arsenal og Manchester United duttu út í 16-liða úrslitum á meðan Chelsea og Liverpool tryggðu sér áframhaldandi þátttökurétt í keppninni. Sport 13.10.2005 18:55
Ronaldo og Tacchinardi dæmdir Miðjumaðurinn sterki hjá Juventus, Alessio Tacchinardi, og Ronaldo hjá Real Madrid voru í dag dæmdir í tveggja leikja bann af Uefa fyrir rauðu spjöldin sem þeir fengu í viðureignum liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í síðustu viku. Sport 13.10.2005 18:55
Inter 2-1 yfir gegn Porto Inter Milan frá Ítalíu er 2-1 yfir gegn Evrópumeisturum Porto í síðari leik liðann í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar í knattspyrnu en leikurinn hófst kl. 19.45. Brasilíumaðurinn Adriano hefur skorað bæði mörk heimamanna. Sport 13.10.2005 18:55
Inter yfir gegn Evrópumeisturunum Inter Milan frá Ítalíu er komið yfir gegn Evrópumeisturum Porto, 1-0, í síðari leik liðann í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar í knattspyrnu en leikurinn hófst kl. 19.45. Markið skoraði Brasilíumaðurinn Adriano strax á 6. mínútu með skoti innan úr vítateig en boltinn hafði viðkomu af Ricardo Costa í vörn gestanna. Sport 13.10.2005 18:55
Inter og Porto eigast við í kvöld Í kvöld mætast Inter Milan og Porto í síðari leik liðanna í 16 liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn en hann hefst klukkan 19.45. Liðin gerðu 1-1 jafntefli í fyrri leiknum í Portúgal 23. febrúar. Sport 13.10.2005 18:55
Adriano með þrennu og Inter áfram Inter Milan frá Ítalíu er komið í 8 liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu eftir 3-1 sigur á Evrópumeisturum Porto í síðari leik liðann í 16 liða úrslitunum. Brasilíumaðurinn Adriano skoraði öll mörk heimamanna. Sport 13.10.2005 18:55
Beckham veðjar á Chelsea David Beckham, leikmaður Real Madrid og enska landsliðsins hallast að því að Chelsea vinni meistaradeildina í ár. Hann segir að liðinu hafi tekist að slípast fyrr saman en nokkur átti von á og hrósar Jose Mourinho öðrum fremur fyrir velgengni liðsins í tímabilinu. Sport 13.10.2005 18:54