Meistaradeildin
254 255 256 257 258 259 260 261 262 … 273 ›
Þetta var baráttusigur Frank Rijkaard sagðist í gær hafa verið stoltur af sínum mönnum þegar þeir tryggðu sér sætið í úrslitaleiknum í meistaradeildinni með markalausu jafntefli við AC Milan á heimavelli sínum. "Þetta var baráttusigur hjá okkur og ég er mjög stoltur af strákunum, því það var mjög erfitt að spila gegn sterku liði Milan. Við ætluðum okkur í úrslitin og það tókst," sagði Rijkaard. Sport 27.4.2006 05:01
Barcelona og Arsenal leika til úrslita Það verða Barcelona og Arsenal sem leika til úrslita í meistaradeild Evrópu í ár, en Barcelona tryggði sér farseðilinn í úrslitaleikinn með því að gera markalaust jafntefli við AC Milan á heimavelli sínum Nou Camp í kvöld. Heimamenn fengu fleiri marktækifæri í leik kvöldsins en eru komnir áfram þrátt fyrir markalaust jafntefli eftir 1-0 sigur á útivelli í fyrri leiknum. Sport 26.4.2006 20:36
Jafnt á Nou Camp í hálfleik Nú er kominn hálfleikur í síðari leik Barcelona og AC Milan í undanúrslitum meistaradeildarinnar og hefur hvorugu liðinu tekist að skora. Ítalska liðið þarf að skora mark til að knýja fram framlengingu en heimamönnum nægir jafntefli eftir sigur í fyrri leiknum. Sport 26.4.2006 19:48
Deco í byrjunarliði Barcelona Leikur Barcelona og AC Milan í undanúrslitum meistaradeildarinnar er nú að hefjast og er hann í beinni útsendingu á Sýn. Deco kemur aftur inn í byrjunarlið Barcelona eftir leikbann, en gamla brýnið Costacurta tekur stöðu Nesta í byrjunarliði AC Milan, en Nesta er meiddur. Hér fyrir neðan má sjá hvaða leikmenn eru í byrjunarliðum. Sport 26.4.2006 18:37
Barcelona gæti orðið stórveldi Brasilíski snillingurinn Ronaldinho hjá Barcelona segir að ef liðið nær að slá AC Milan út úr meistaradeildinni í kvöld, gæti sigurinn markað þáttaskil í sögu félagsins og orðið til þess að gera Barcelona að nýju stjórveldi í Evrópuboltanum - líkt og lið AC Milan á árunum í kring um 1990. Sport 26.4.2006 14:59
Lætur gagnrýnendur heyra það Arsene Wenger segir að lið sitt hafi endanlega þaggað niður í hörðum gagnrýnendum þess á undanförnum árum með vasklegri framgöngu sinni í meistaradeildinni í vetur og segist hafa fulla trú á því að sínir menn geti klárað dæmið í úrslitaleiknum. Sport 26.4.2006 14:30
Við vorum heppnir Arsene Wenger viðurkenndi að hans menn hefðu verið heppnir að sleppa með jafntefli gegn Villarreal í meistaradeildinni í kvöld, en var yfir sig ánægður með baráttuna í liði sínu - ekki síst í manni leiksins Jens Lehmann sem varði vítaspyrnu á síðustu mínútunni. Sport 25.4.2006 21:42
Jimmy Jump í essinu sínu Knattspyrnufyrirbærið Jimmy Jump lét sig ekki vanta á leik Villarreal og Arsenal í kvöld og í síðari hálfleik náði hann að brjótast inn á völlinn og kastaði Barcelona-treyju yfir öxlina á Thierry Henry, leikmanni Arsenal. Henry hefur lengi verið orðaður við Barcelona-liðið og telja margir að hann muni ganga til liðs við Katalóníuliðið í sumar. Atvik sem þetta eru nokkuð algeng og illa virðist ganga að koma í veg fyrir að ævintýramenn á borð við hinn geðþekka Jimmy setji svip sinn á leikinn. Sport 25.4.2006 21:17
Arsenal í úrslit - Lehmann hetja dagsins Arsenal er komið í úrslitaleikinn í meistaradeild Evrópu eftir að liðið gerði markalaust jafntefli við spænska liðið Villarreal á útivelli í kvöld. Arsenal getur þakkað markverði sínum Jens Lehmann að hafa komist áfram, því hann varði vítaspyrnu frá Juan Riquelme á lokamínútu leiksins. Vítaspyrnudómurinn var mjög loðinn og því má segja að réttlætinu hafi verið fullnægt að þessu sinni. Sport 25.4.2006 20:38
Jafnt í hálfleik á Madrigal Staðan í hálfleik hjá Villarreal og Arsenal í síðari leik liðanna í undanúrslitum meistaradeildarinnar er 0-0. Heimamenn hafa ráðið ferðinni í fyrri hálfleik en ekki tekist að skora markið nauðsynlega. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn. Sport 25.4.2006 19:34
Við gleymumst fljótt ef við náum ekki í úrslit Argentínski leikstjórnandinn Juan Roman Riquelme hjá Villarreal segir að sínir menn verði að leggja Arsenal að velli í kvöld og komast í úrslitaleik meistaradeildarinnar ef þeir ætli sér að láta muna eftir árangri sínum í keppninni. Hann segir að knattspyrnuheimurinn verði fljótur að gleyma afrekum liðsins í vetur ef því tekst ekki að vinna sér sæti í úrslitaleiknum. Sport 25.4.2006 16:25
Við erum klárir í slaginn Diego Forlan, framherji Villarreal, segir sína menn eiga nóg inni fyrir síðari leikinn gegn Arsenal annað kvöld en viðurkennir að Arsenal hafi verið í bílstjórasætinu í þeim fyrri. Hann segir að allt annað verði uppi á teningnum á El Madrigal annað kvöld. Sport 24.4.2006 16:06
Campbell inn, Senderos út Arsenal hefur staðfest að miðvörðurinn Sol Campbell verði í byrjunarliðinu í síðari leiknum gegn Villarreal annað kvöld, en á móti kemur að Philippe Senderos verður líklega frá í þrjár vikur eftir að hann meiddist á hné í grannaslagnum við Tottenham á laugardaginn. Sport 24.4.2006 15:52
Senderos ekki með gegn Villareal Svissneski miðvörðurinn Philippe Senderos verður líklega ekki með í seinni undanúrslitaleik Arsenal og Villareal í Meistaradeild Evrópu. Senderos fór meiddur af velli í jafnteflisleikk Arsenal og Tottenham í gær. Líklega verður Sol Campbell kallaður til að fylla skarð Senderos. Arsenal leiðir einvígið 1-0 eftir sigur á heimavelli en eiga erfitt verkefni fyrir höndum. Sport 23.4.2006 14:50
Mikið eftir af þessu einvígi Arsene Wenger var sáttur við sigurinn á Villarreal í Meistaradeildinni í kvöld, en sagði sína menn hafa verið of stressaða til að ná að bæta við öðru marki í leiknum - það hefði verið óskastaða fyrir síðari leikinn á Spáni í næstu viku. Sport 19.4.2006 21:47
Arsenal lagði Villarreal Arsenal lagði Villarreal 1-0 í fyrri undanúrslitaviðureign liðanna í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Það var varnarmaðurinn Kolo Toure sem skoraði mark heimamanna á 41. mínútu í síðasta Evrópuleik Arsenal á Highbury. Það er því ljóst að allt getur gerst í síðari leiknum sem fram fer á Spáni í næstu viku. Sport 19.4.2006 20:41
Arsenal hefur forystu gegn Villarreal Arsenal hefur yfir 1-0 þegar flautað hefur verið til hálfleiks í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu. Það var varnarmaðurinn Kolo Toure sem skoraði markið á 41. mínútu. Leikurinn er fjörugur og skemmtilegur og hafa bæði lið fengið fjölda færa til að skora. Sport 19.4.2006 19:37
Toure kemur Arsenal yfir Varnarmaðurinn Kolo Toure hefur komið Arsenal yfir gegn Villareal á Highbury á 41. mínútu leiksins eftir góðan undirbúning hjá Alexandr Hleb. Leikurinn hefur verið mjög fjörugur og hafa bæði lið fengið ágæt marktækifæri. Hann er sýndur beint á Sýn. Sport 19.4.2006 19:26
Leikur Arsenal og Villareal að hefjast Nú styttist í að flautað verði til leiks á Highbury í leik Arsenal og Villareal í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu, en þetta er fyrri viðureign liðanna. Arsenal teflir fram sínu hefðbundna liði en Freddy Ljungberg kemur þó inn fyrir Jose Antonio Reyes sem er í leikbanni. Tvo fastamenn vantar í vörnina hjá spænska liðinu, markvörðurinn Mariano Barbosa kemur inn fyrir Sebastien Viera og Cesar Arco kemur inn fyrir Juan Manuel Pena. Leikurinn er í beinni á Sýn. Sport 19.4.2006 18:22
Barcelona lagði AC Milan Barcelona vann gríðarlega mikilvægan 1-0 útisigur á AC Milan á San Siro í kvöld í fyrri leik liðanna í undanúrslitum meistaradeildarinnar. Það var Ludovic Giuly sem skoraði sigurmarkið með frábærum hætti eftir góðan undirbúning frá brasilíska snillingnum Ronaldinho. Barcelona er því með pálmann í höndunum fyrir síðari leikinn sem verður á heimavelli liðsins í Katalóníu á Spáni. Sport 18.4.2006 20:47
Barcelona komið yfir Barcelona er komið í mjög vænlega stöðu í einvíginu við AC Milan, en Ludovic Giuly var rétt í þessu að koma Barcelona yfir á San Siro eftir glæsilega sendingu frá Ronaldinho. Markið er Börsungum gríðarlega mikilvægt, en þeir eiga síðari leikinn eftir á heimavelli. Markið kom á á 57. mínútu og var einstaklega vel að því staðið hjá Barcelona. Sport 18.4.2006 20:00
Markalaust á San Siro í hálfleik Nú er kominn hálfleikur í fyrri viðureign AC Milan og Barcelona á San Siro í Mílanó í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu en hvorugu liðinu hefur tekist að skora. Það var Gilardino hjá Milan sem komst næst því að skora þegar hann átti skot í stöngina á marki Barcelona. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn. Sport 18.4.2006 19:39
Byrjunarliðin klár Nú styttist í að flautað verði til leiks í fyrri undanúrslitaleik AC Milan og Barcelona í Meistaradeildinni, en leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á Sýn. AC Milan hefur unnið keppnina sex sinnum en Barcelona aðeins einu sinni. Milan hefur aldrei fallið úr keppni í undanúrslitunum. Búið er að tilkynna byrjunarliðin og hér fyrir neðan má sjá hvaða leikmenn hefja leikinn mikilvæga á San Siro. Sport 18.4.2006 18:26
Orðinn hundleiður á spurningum um framtíð sína Thierry Henry brást hinn versti við á blaðamannafundi í dag þegar hann var enn eina ferðina spurður út í framtíð sína hjá Arsenal. Blaðamannafundurinn var hugsaður fyrir viðureign Villarreal og Arsenal í Meistaradeildinni, en þegar blaðamenn spurðu Henry út í framtíð hans hjá Arsenal, lét sá franski þá heyra það. Sport 18.4.2006 17:37
Ætlar ekki að taka Ronaldinho úr umferð Carlo Ancelotti er mjög bjartsýnn á að hans menn í AC Milan nái að slá Barcelona út úr undanúrslitum Meistaradeildarinnar, en liðið er nú í þriðja sinn í undanúrslitum á síðustu fjórum árum. Ancelotti ætlar ekki að setja sérstakan mann til höfuðs brasilíska snillingsins Ronaldinho og segir varnarmenn sína fullfæra um að halda aftur af honum. Sport 18.4.2006 14:06
Nú þurfum við að sanna okkur Frank Rijkaard segir að öll lið gangi í gegn um það að þurfa að komast fram úr sér sterkari og reyndari liðum til að verða Evrópumeistarar og segir að nú sé kominn tími til fyrir sína menn í Barcelona að gera einmitt það gegn AC Milan í fyrri leik liðanna í Meistaradeildinni í kvöld. Leikur liðanna verður í beinni útsendingu á Sýn og hefst útsending klukkan 18:30 í kvöld. Sport 18.4.2006 13:49
Hungrið í hámarki Fyrri leikur stórliðanna AC Milan og Barcelona í undanúrslitum meistaradeildar Evrópu fer fram á Ítalíu í kvöld en leiksins er beðið af mikilli eftirvæntingu. Meiðsli eru í sóknarlínum beggja liða en Henrik Larsson fór meiddur af velli í leik Barcelona gegn Villareal í spænska boltanum á föstudag og getur ekki leikið í kvöld. Sport 17.4.2006 15:36
Rangers sleppur vel Knattspyrnufélagið Glasgow Rangers sleppur með aðeins 9.000 punda sekt eftir ólæti stuðningsmanna félagsins fyrir síðari leikinn gegn Villareal í Meistaradeildinni á dögunum. Stuðningsmenn skoska liðsins köstuðu grjóti í liðsrútu spænska liðsins og voru sakaðir um kynþáttafordóma í garð leikmanna Villareal. Þeir voru hinsvegar sýknaðir af þeim ákærum þar sem ekki fundust nægilegar sannanir fyrir þeim. Sport 12.4.2006 18:36
Hrósar Arsenal í hástert Landsliðsþjálfari Ítala, Marcello Lippi, á var til orð til að lýsa hrifningu sinni á framgöngu Arsenal í Meistaradeildinni eftir að liðið sló Juventus úr keppni á dögunum. Lippi segir að ítölsku liðin geti lært mikið af Arsenal og dirfsku Arsene Wenger, sem hefur þorað að treysta á unga leikmenn liðsins í vetur. Sport 7.4.2006 19:41
Við förum í úrslitaleikinn Hinn ungi Cesc Fabregas hjá Arsenal segist þess viss að liðið muni fara alla leið í úrslitaleikinn í Meistaradeildinni, en Arsenal mætir löndum hans í Villareal frá Spáni í undanúrslitinum. Fabregas hefur farið á kostum með Arsenal í Meistaradeildinni en vill ekki vera borinn saman við Patrick Vieira, fyrrum leikmann liðsins. Sport 6.4.2006 18:54