Ástin á götunni

Blikastúlkur bikarmeistarar
Kvennalið Breiðabliks er bikarmeistari í kvennaflokki eftir sannfærandi 4-1 sigur á KR á Laugardalsvellinum, en leiknum lauk nú fyrir stundu. Breiðablik vann því tvöfalt í ár og gleðin er allsráðandi í Kópavogi í dag, því skömmu áður fengu karlarnir afhentann bikarinn fyrir sigurinn í fyrstu deild.

Þrír leikir á Sýn í dag
Þrír leikir verða sýndir beint á Sýn í dag og í kvöld. Klukkan 16 hefst leikur Palermo og Internazionale í ítölsku úrvalsdeildinni. Strax á eftir klukkan 18 verður skipt yfir til Madrídar á Spáni en þá hefst leikur Real Madríd og Celta Vigo.

Leikjum lokið í ensku
Leikjunum sem hófust klukkan 14 í ensku úrvalsdeildinni er nú lokið. Meistarar Chelsea unnu Sunderland nokkuð auðveldlega 2-0 og Manchester liðin skildu jöfn 1-1,í æsilegum grannaslag, eins og reyndar Tottenham og Liverpool í London.

Teitur Þórðarson næsti þjálfari KR
Teitur Þórðarson verður næsti þjálfari meistaraflokks karla hjá KR. Teitur tekur við liðinu í haust af þeim Sigursteini Gíslasyni og Einari Þór Daníelssyni sem stýrt hafa KR frá því Magnúusi Gylfasyni var vikið frá störfum í lok júlí. Teitur Þórðarson var væntanlegur til landsins í kvöld en fyrirhugað er að skrifa undir samkomulag við hann í fyrramálið um þjálfun KR. Þá er blaðamannafundur fyrirhugaður fyrir hádegi þar sem ráðning hans verður kynnt.

Merkur áfangi hjá Rooney
Táningurinn Wayne Rooney náði þeim merkilega áfanga um helgina að verða yngsti leikmaðurinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar til að spila 100 leiki.

Maccarone kemur Boro í 2-0
Massimo Maccarone hefur komið Middlesbrough í 2-0 gegn Arsenal í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni og því er útlitið orðið svart hjá bikarmeisturunum. Aðeins um stundarfjórðungur er eftir af leiknum.

Wenger slær á létta strengi
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, er ekki vanur að vera mikill háðfugl, en þegar hann var spurður út í ráðningu grannaliðsins Tottenham á Damien Comolli á dögunum, sá hann ástæðu til að slá á létta strengi.

Middlesbrough lagði Arsenal 2-1
Middlesbrough vann frækinn sigur á Arsenal í síðasta leiknum í ensku úrvalsdeildinni í dag. Það voru þeir Yakubu og Massimo Maccarone sem komu heimamönnum í 2-0, en Spánverjinn Jose Antonio Reyes minnkaði muninn í uppbótartíma fyrir Arsenal, sem hefur nú tapað tveimur af fyrstu fjórum leikjum sínum í deildinni.

Breiðablik komið yfir
Blikastúlkur voru rétt í þessu að komast yfir 2-1 gegn KR í bikarúrslitaleik kvenna á Laugardalsvelli. KR stúlkur komust í 1-0 eftir aðeins fimm mínútna leik, en Blikastúlkur komust yfir 2-1 í blálokin á hálfleiknum.

Jol hrósar Michael Carrick
Martin Jol, knattspyrnustjóri Tottenham Hotspurs, hrósaði miðjumanni sínum Michael Carrick í hástert eftir leikinn við Liverpool í dag og sagði hann hafa átt miðjuna í leiknum. Jol segist ekki skilja af hverju Carrick er ekki valinn í enska landsliðið.

Meistaradeildin er betri en HM
Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að Meistaradeild Evrópu sé sterkari og skemmtilegri keppni en sjálft Heimsmeistaramótið í knattspyrnu.
Yakubu kemur Boro yfir
Framherjinn sterki Yakubu hjá Middlesbrough var nú rétt í þessu að koma Boro yfir 1-0 á móti Arsenal, í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Arsenal óð í færum framan af leik en nú hafa heimamenn tekið forystuna á 40. mínútu. Thierry Henry leikur ekki með Arsenal í dag vegna meiðsla.

Við áttum að vinna þennan leik
Arsene Wenger var ekki par kátur með frammistöðu sinna manna í Arsenal þegar liðið lá fyrir Middlesbrough í dag. Wenger sagði sína menn hafa verið betri allan leikinn og þótti þá eiga skilið að vinna hann.
Reynir meistari í þriðju deild
Reynir frá Sandgerði varð í dag 3. deildar meistari, þegar liðið lagði Sindra frá Höfn í Hornafirði 4-1. Í leiknum um þriðja sætið sigruðu Gróttumenn Leikni frá Fáskrúðsfirði 5-4 í hörkuleik.

Draumur í dós
Við byrjuðum þennan leik reyndar á hælunum en það var fínt að fá á okkur þetta mark. Þetta var eins og gusa framan í okkur og áttu þær ekki möguleika eftir að við byrjuðum að skora okkar mörk," sagði fyrirliði og markvörður Breiðabliks, Þóra Helgadóttir, eftir bikarsigurinn í gær.

Blikar lyftu bikarnum í 1. deild
Breiðablik vann góðan 2-1 sigur á KA í Kópavogi í dag og fengu afhentan bikarinn fyrir sigurinn í fyrstu deildinni eftir leikinn. KA menn þurftu helst að sigra í leiknum, því þeir voru í harðri baráttu við Víking um að komast upp í Landsbankadeild að ári, en þeim varð ekki að ósk sinni.
Blikar í vænlegri stöðu
Íslandsmeistarar Breiðabliks eru komnir í vænlega stöðu í bikarúrslitaleiknum á Laugardalsvelli, en þær leiða sem stendur 4-1 gegn KR. Það var Tesia Ann Kozlowski sem skoraði þriðja mark Blikastúlkna eftir 52 mínútur og Gréta Mjöll bætti við fjórða markinu skömmu síðar.
KS féll í aðra deild
Völsungur á Húsavík vann góðan sigur á KS í sannkölluðum botnslag í fyrstu deild karla í dag, en með tapinu er ljóst að KS er fallið í aðra deild. Með sigrinum eiga Völsungar því enn möguleika á að halda sæti sínu í deildinni og eru sem stendur einu stigi frá fallsvæðinu þegar ein umferð er eftir.

Betra að vera í úrvaldseildinni
Mick McCarthy, stjóri Sunderland, er duglegur að finna ljósu punktana í afleitu gengi hans manna í úrvalsdeildinni og eftir tapið gegn Chelsea í gær, sagði hann að það væri í það minnsta betra að vera staddur í úrvalsdeildinni en í fyrstu deildinni.

Eto´o vill fara að vinna
Framherjinn knái Samuel Eto´o hjá Barcelona hefur sent félögum sínum í liðinu skýr skilaboð fyrir næsta leik í spænsku deildinni, sem er einmitt gegn fyrrum félögum sínum í Mallorca.

Zidane frá í 3 vikur
Nú er ljóst að franski knattspyrnukappinn Zinedine Zidane leikur ekki með Real Madríd næstu þrjár vikurnar. Zidane fór meiddur af velli í leik Frakka og Íra í undankeppni heimsmeistaramótsins á miðvikudag.

Thierry Henry meiddur
Franski markahrókurinn Thierry Henry mun ekki jafna markamet Ian Wright hjá Arsenal á morgun, því hann er meiddur á nára og missir því af leik liðsins við Middlesbrough í ensku úrvalsdeildinni.

Allardyce vill taka við Englandi
"Stóri-Sam" Allardyce, knattspyrnustjóri Bolton, vill ólmur taka við enska landsliðinu þegar Sven-Göran Eriksson hættir með liðið, ef marka má orð umboðsmanns hans.

Henry stefnir á markametið
Franski framherjinn Thierry Henry getur um helgina jafnað markamet Ian Wright hjá Arsenal, sem er 185 mörk en segist lítið hugsa um metið og vill bara skora eins mörg mörk og hann mögulega getur til að vinna leiki.

Dagsformið ræður úrslitum
Breiðablik hefur átt góðu gengi að fagna í sumar og sigraði í Landsbankadeildinni með töluverðum yfirburðum en eini leikurinn sem liðinu hefur ekki tekist að vinna var gegn KR, en þeim leik lauk með 0-0 jafntefli í Frostaskjólinu.

Pearce óttast ekki grannaslaginn
Stuart Pearce, knattspyrnustjóri Manchester City, segist ekki hafa neinar áhyggjur af grannaslagnum við United á Old Trafford á morgun, en þar hefur City ekki sigrað í meira en þrjá áratugi.

Ætlum að vinna tvöfalt
Þóra Helgadóttir, fyrirliði og markvörður Breiðabliks, kom til Breiðabliks fyrir tímabilið en hún hóf feril sinn hjá félaginu. "Þetta sumar er búið að vera virkilega skemmtilegt og það er líka gaman fyrir mig að snúa aftur í mitt gamla félag á uppgangstímum."

Mourinho heldur tryggð við Lampard
Jose Mourinho segist ekki láta gagnrýni Sven-Göran Eriksson á Frank Lampard á sig fá og bendir á að það sem Lampard geri með enska landsliðinu komi sér ekki við.

Ferdinand sáttur við stutt frí
Rio Ferdinand segist vera sáttur við að hafa verið kallaður snemma úr sumarfríi sínu ásamt öðrum leikmönnum Manchester United, og segir þá hafa átt það skilið eftir lélega frammistöðu í fyrra.
Faria Alam tapaði málsókn sinni
Ritarinn Faria Alam tapaði í dag máli sínu gegn enska knattspyrnusambandinu fyrir rétti, en kærurnar sem hún hafði fram á hendur manna innan sambandsins um ólöglega uppsögn og kynferðislega áreitni, var vísað frá.