Ástin á götunni

Fréttamynd

Leikur Íslands og Póllands hafinn

Vináttuleikur Íslendinga og Pólverja í Varsjá er nú hafinn og er hann í beinni útsendingu á Sýn. Fylgst verður með gangi mála í leiknum hér á Vísi.

Sport
Fréttamynd

Tími hefnda runninn upp

Enska landsliðið í knattspyrnu tekur í dag á móti því austurríska í undankeppni HM 2006. Leikurinn er sá fyrsti hjá landsliði Englands síðan það tapaði heldur óvænt fyrir Norður-Írum í Belfast í síðasta mánuði. Leikurinn skiptir miklu máli fyrir Englendinga sem heyja harða baráttu við Pólverja um toppsæti riðilsins en þessi lið mætast í næstu viku í lokaumferð riðilsins.

Sport
Fréttamynd

Pamarot klár í slaginn með Spurs

Franski bakvörðurinn Noe Pamarot er nú farinn að æfa á fullu með liði Tottenham Hotspurs, eftir að hafa verið meiddur á hné síðan í apríl í vor. "Ég er búinn að vera lengi frá og því var það sérstaklega ánægjulegt að ná að fara í gegn um heila æfingu," sagði Pamarot.

Sport
Fréttamynd

Valur mætir Potsdam í dag

Valsstúlkur mæta í dag þýska liðinu Potsdam í átta liða úrslitum Evrópukeppninnar í knattspyrnu en leikurinn fer fram Laugardalsvelli. Ljóst er að lið Vals þarf að eiga góðan leik til þess að leggja þýska liðið að velli þar sem það er án efa eitt það sterkasta í Evrópu um þessar mundir.

Sport
Fréttamynd

Pólverjar komnir yfir

Pólverjar eru komnir yfir í fyrsta sinn í leiknum við Íslendinga í Varsjá. Það var Smolarek sem skoraði markið á 64. mínútu eftir að hann fékk laglega sendingu innfyrir vörn íslenska liðsins og átti ekki í vandræðum með að skora framhjá Kristáni Finnbogasyni í markinu. Þetta var annað mark Pólverja á aðeins átta mínútum.

Sport
Fréttamynd

Arsenal íhugar kaup á miðjumanni

Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, er á höttunum eftir miðjumanninum Hossam Ghaly hjá Feyenoord í Hollandi. Hossam er 23 ára gamall Egypti og hefur hann viðurkennt að það væri draumur fyrir sig að ganga í raðir enska liðsins.

Sport
Fréttamynd

Pólverjar jafna

Það tók Pólverja aðeins tíu mínútur að jafna leikinn gegn íslenska liðinu í vináttulandsleik þjóðanna í Varsjá. Þar var að verki Krzynowek, eftir snarpa sókn heimamanna.

Sport
Fréttamynd

Værukær varnarleikur í Varsjá

Það vantaði fjölmarga lykilmenn í íslenska landsliðið í gær og því kjörið tækifæri fyrir aðra til að sanna sig. Sumir nýttu það tækifæri ágætlega en aðrir miður vel. Pólska liðið er að gera frábæra hluti í undankeppni HM og það er enginn skömm að því að tapa naumlega fyrir þessu liði. Leikur íslenska liðsins gekk upp að mörgu leyti en eins og venjulega varð ömurlegur varnarleikur liðinu að falli.

Sport
Fréttamynd

Enn tapar Notts County

Notts County, lið Guðjóns Þórðarsonar í ensku annari deildinni, tapaði enn einum leiknum í kvöld þegar það tók á móti Boston United á heimavelli sínu. Boston hafði sigur 2-1.

Sport
Fréttamynd

Bent ætlar á HM

Framherjinn knái hjá Charlton, Darren Bent, segist gera sér grein fyrir að hann verði að halda áfram að skora grimmt ef hann ætli sér að komast í enska landsliðshópinn fyrir HM í Þýskalandi næsta sumar, en mikil samkeppni er meðal framherjanna sem koma til greina í liðið.

Sport
Fréttamynd

Hremmingar í Póllandi

Landsliðsframherjinn Heiðar Helguson, leikmaður Fulham, boðaði forföll af persónulegum ástæðum í vináttulandsleikinn gegn Pólverjum annað kvöld en hann verður hins vegar með gegn Svíum á miðvikudaginn. Hannes Þ. Sigurðsson, leikmaður Stoke, var kallaður inn í hópinn í hans stað.

Sport
Fréttamynd

Gunnar heiðar metinn á 250 millur

Verðmiði Gunnars Heiðars Þorvaldssonar, framherja Halmstad, sem slegið hefur í gegn í sænsku úrvalsdeildinni, er á bilinu 125 til 250 milljónir íslenskra króna. Þetta kemur fram í sænska blaðinu Aftonbladet í gær.

Sport
Fréttamynd

Rooney segist hafa þroskast

Hinn ungi en skapheiti framherji Wayne Rooney hjá Manchester United, heldur því fram að hann hafi þroskast mikið síðan hann gekk í raðir liðsins og segir að aukin ábyrgð sem fylgi því að spila fyrir stórliðið muni verða til þess að flýta fyrir þroska sínum.

Sport
Fréttamynd

Nistelrooy í áflogum

Það var heitt í kolunum á landsliðsæfingu hjá Hollendingum í dag, því Ruud van Nistelrooy var tekinn á teppið af Marco van Basten þjálfara og látinn biðjast afsökunar á því að hafa sparkað í landa sinn Ron Vlaar, varnarmann AZ Alkmaar.

Sport
Fréttamynd

Okocha að hætta með Nígeríu

Miðjumaðurinn Jay-Jay Okocha hjá Bolton hefur gefið það út að hann muni líklega hætta að spila með landsliði Nígeríu eftir HM í Þýskalandi næsta sumar, ef liðið kemst þá á mótið.

Sport
Fréttamynd

Warnock stjóri mánaðarins

Neil Warnock hjá Sheffield United hefur verið kjörinn knattspyrnustjóri septembermánaðar í ensku fyrstu deildinni. United hefur þriggja stiga forskot á toppi deildarinnar og liðið vann m.a. fimm leiki í röð í mánuðinum.

Sport
Fréttamynd

Nýtt lið sem hleypur inn á völlinn

"Undirbúningurinn hefur ekki verið upp á það besta. Það vantar marga lykilmenn og nánast nýtt lið sem hleypur inn á völlinn. Flestir leikmannanna eru ungir að árum og að stíga sín fyrstu skref og oft ná þeir að spila upp fyrir sig í svona leikjum," sagði Ásgeir Sigurvinsson, landsliðsþjálfari Íslands, við Fréttablaðið

Sport
Fréttamynd

Guðni hundfúll

"Ég fer ekki leynt með að ég er hundfúll með að koma þessu stórefnilega liði ekki í milliriðil," sagði Guðni Kjartansson, þjálfari U19 ára landslið Íslands í knattspyrnu sem tapaði fyrir Króatíu 3-2 í undankeppni Evrópumóts landsliða þegar liðin mættust í Sarajevo í Bosníu í gær og er þar með úr leik.

Sport
Fréttamynd

Ziege að hugsa um að hætta

Þýski varnarmaðurinn Christian Ziege óttast að þrálát ökklameiðsli sem hann hefur átt við að stríða lengi séu að neyða hann til að leggja skóna á hilluna. Ziege leikur með Gladbach í þýsku úrvalsdeildinni, en lék áður á Englandi, meðal annars með Liverpool og Tottenham.

Sport
Fréttamynd

Ferdinand heldur líklega sæti sínu

Varnarmaðurinn Rio Ferdinand mun að öllum líkindum halda sæti sínu í vörn enska landsliðsins þegar það mætir Austurríki á laugardaginn, en miklar vangaveltur hafa verið um það hvort Sol Campbell myndi taka sæti hans, eftir að Ferdinand hefur verið nokkuð frá sínu besta að undanförnu.

Sport
Fréttamynd

Hannes í landsliðið í stað Heiðars

Hannes Þ. Sigurðsson, leikmaður Stoke City, hefur verið kallaður inn í íslenska landsliðshópinn fyrir leikinn við Pólverja á föstudaginn í stað Heiðars Helgusonar hjá Fulham, sem hefur fengið að sleppa leiknum af persónulegum ástæðum.

Sport
Fréttamynd

Eriksson í vandræðum með bakverði

Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englendinga, á í mesta basli með að velja í bakvarðastöðurnar í liðinu fyrir leikinn gegn Austurríkismönnum um helgina, eftir að í ljós kom að Ashley Cole verður frá í nokkrar vikur vegna meiðsla.

Sport
Fréttamynd

Gunnar Heiðar með gegn Svíum

"Póllandsleikurinn á föstudaginn er úr sögunni en ég reikna fastlega með því að verða klár í slaginn gegn Svíum," sagði Gunnar Heiðar Þorvaldsson í samtali við Fréttablaðið eftir að hann kom úr læknisskoðun í gær. Hann meiddist í ökkla gegn Djurgården á mánudaginn og leist ekki á blikuna eftir leikinn.

Sport
Fréttamynd

Valur í vandræðum

Guðbjörg Gunnarsdóttir, markvörður Vals í knattspyrnu hefur átt við erfið veikindi að stríða undanförnu og getur líklega ekki leikið með liðinu á Laugardalsvelli gegn Potsdam í 8 liða úrslitum Evrópukeppninnar í knattspyrnu á sunnudag. Sandra Sigurðardóttir markvörður Stjörnunnar mun líklega standa í marki Vals í fyrri leiknum í það minnsta.

Sport
Fréttamynd

Naumt tap fyrir Króatíu

Íslenska U-19 ára landslið Íslands tapaði 3-2 fyrir Króatíu í undankeppni EM í Sarajevo í dag og því eru möguleikar liðsin á því að komast í milliriðla í keppninni úr sögunni.

Sport
Fréttamynd

Ferdinand ósáttur við sjálfan sig

Varnarmaðurinn Rio Ferdinand segist ekki sáttur við frammistöðu sína það sem af er tímabilinu með Manchester United og enska landsliðinu og viðurkennir að hann hafi ekki staðið sig sem skyldi fram til þessa. Hann segist þó hafa skapgerð til að breyta því og koma sér í toppform á ný.

Sport
Fréttamynd

James framlengir við Man. City

Markvörðurinn David James hefur framlengt samning sinn við úrvalsdeildarlið Manchester City um eitt ár og verður því hjá félaginu til loka keppnistímabilsins 2006-2007. James er dottinn út úr myndinni hjá landsliðsþjálfaranum í bili, en Stuart Pearce hefur fulla trú á honum.

Sport
Fréttamynd

Bætt afkoma hjá Tottenham

Úrvalsdeildarfélagið Tottenham Hotspurs lagði fram ársreikninga sína í morgun og þar sýndi félagið fram á bætta afkomu frá árinu þar á undan. Eftir að 2,7 milljóna punda halli var á rekstri félagsins á árinu 2003-04, hefur það nú sýnt fram á 4,1 milljón punda hagnað á síðasta reikningsári.

Sport
Fréttamynd

Everton vill Gunnar Heiðar

Stuðningsmannasíða enska úrvalsdeildarfélagsins Everton greindi frá því nú skömmu undir hádegið að félagið hafi hug á að fá markamaskínuna Gunnar Heiðar Þorvaldsson. Gunnar Heiðar sem leikur með Halmstad í Svíþjóð hefur skorað alls 23 mörk í 34 leikjum fyrir sænska liðið á tímabilinu og hefur sú frammistaða vakið mikla athygli víðsvegar um Evrópu.

Sport
Fréttamynd

Cissé ósáttur hjá Liverpool

Franski framherjinn Djibril Cisse hjá Liverpool segir að hann muni ekki sætta sig við að vera á varamannabekknum hjá liðinu í allan vetur og segist muni hugsa sér til hreyfings ef ástandið lagast ekki fljótlega.

Sport