Íslenski handboltinn

Valur vann auðveldan sigur á ÍBV
Valsmenn unnu góðan sigur á ÍBV í Olís-deilda kvenna en leikurinn fór 27-20.

Umfjöllun, viðtöl og tölfræði: ÍR - ÍBV 22-30 | Ótrúlegur seinni hálfleikur hjá nýliðunum.
Nýliðar ÍBV skelltu bikarmeisturum ÍR 30-22 í Breiðholtinu í síðasta leik fyrstu umferðar Olís deildar karla í handbolta í kvöld eftir að ÍR var 15-11 yfir í hálfleik.

Hanna Guðrún: Við erum með rosalega gott lið
"Við bjuggumst alveg við þessari spá,“ segir Hanna Guðrún Stefánsdóttir, fyrirliði Stjörnunnar, í samtali við Vísi í dag. Stjörnunni er spáð efsta sætinu í Olís-deild kvenna í handknattleik tímabilið 2013-14.

Einar Andri: Þessi spá kemur manni lítið á óvart
"Þessi spá er kannski svipuð og maður bjóst við,“ segir Einar Andri Einarsson, þjálfari FH, í samtali við Vísi í dag. FH er spáð öðru sætinu í Olís-deild karla í handknattleik tímabilið 2013-14.

Val og Stjörnunni spáð Íslandsmeistaratitlinum
Á blaðamannafundi HSÍ, sem haldinn var á Grand Hótel í dag, var spá formanna, þjálfara og fyrirliða deildanna fyrir tímabilið 2013-2014 í handknattleik kynnt.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Fram - ÍR 25-30 | Björgvin með stórleik
Björgvin Hólmgeirsson skoraði ellefu mörk fyrir bikarmeistara ÍR sem unnu nokkuð sannfærandi sigur á Fram 30-25 í Meistarakeppni HSÍ í Safamýri í kvöld.

Umfjöllun,viðtöl og myndir: Fram - Valur 26-27 | Dramatík í Safamýri
Kristín Guðmundsdóttir skoraði sigurmark Vals í 27-26 sigri á Fram í Meistarakeppni HSÍ í Safamýri í dag.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - OCI Lions 30-18 | Öruggt hjá Haukum
Haukar tóku OCI Lions frá Hollandi í kennslustund í síðari leik liðanna í forkeppni EHF-bikarsins í Hafnarfirði í dag. Haukar unnu tólf marka sigur og samanlagt með fimmtán mörkum í leikjunum tveimur.

Annar titill Valsmanna með Óla Stef í brúnni
Valur varð í gærkvöldi Reykjavíkurmeistari karla í handbolta eftir öruggan 37-28 sigur á Víkingum í lokaleik mótsins. Leikið var í Víkinni.

Íslandsmótið í handbolta mun nú heita Olís-deildin
Handknattleikssamband Íslands og Olís hafa gert með sér samning um að Olís verði aðalstyrktaraðili í úrvalsdeildum karla og kvenna í Íslandsmótinu í handbolta næstu þrjú árin. Deildin mun því heita Olís-deildin en hefur undanfarin ár borið nafnið N1-deildin.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - OCI Lions 36-33
Haukar unnu nauman 36-33 sigur á OCI-Lions í fyrri leik liðanna í undankeppni EHF-bikars karla. Eftir að hafa leitt með sex mörkum þegar mest var í seinni hálfleik kom ágætis rispa gestanna á lokametrunum sem opnaði allt fyrir seinni leikinn á morgun.

Framarar með eins marks sigur á Víkingum
Fram bar sigur, 25-24, úr býtum gegn Víkingi á Reykjavíkurmóti karla í handknattleik en leikurinn fór fram í Víkinni.

Fram Reykavikurmeistari kvenna
Fram varð í gær Reykjavíkurmeistari kvenna í handknattleik eftir sigur, 28-26, á Fylki í lokaleik sínum í mótinu í Árbæ.

Valsmenn unnu Framara á Reyjavíkurmótinu
Valur bar sigur úr býtum gegn Fram, 25-22, í Reykjavíkurmóti karla í handknattleik en leikurinn fór fram í Safamýrinni.

Samstarfi HSÍ og N1 lokið
Efstu deildir karla og kvenna í handbolta í vetur munu ekki bera nafn N1 líkt og undanfarin sex ár.

Víkingar mörðu sigur á Þrótti
Þorbergur Aðalsteinsson var mættur á hliðarlínuna á nýjan leik í gærkvöldi þegar Víkingur lagði Þrótt 26-23 í Reykjavíkurmótinu í handbolta.

Steinunn og Sigríður í stuði
HK lagði Fylki 28-26 og Íslandsmeistarar Fram lögðu Gróttu 25-21 í fyrstu umferð Subway-mótsins á Seltjarnarnesi í gærkvöldi.

Afturelding og HK unnu sína leiki á Ragnarsmótinu
Tveir leikir fóru fram á Ragnarsmótinu í handknattleik í kvöld en um er að ræða æfingamót sem fram fer á Selfoss um þessar mundir.

Benedikt Reynir til FH
Handknattleiksdeild FH hefur gengið frá samningi við hornamanninn Benedikt Reyni Kristinsson. Benedikt kemur til liðs við FH frá Aftureldingu þar sem hann lék á síðasta tímabili.

Eiga stundum erfitt með að skilja Óla Stef | Myndband
Ólafur Stefánsson er tekinn við þjálfun karlaliðs Vals í handbolta. Leikmenn liðsins viðurkenna að skilja ekki alltaf skilaboð þjálfarans, a.m.k. ekki í fyrstu tilraun.

Valgerður og Vilhjálmur markahæst og best
Vilhjálmur Hauksson úr Gróttu og Valdís Ýr Þorsteinsdóttir úr HK voru markahæstu og bestu leikmenn á UMSK-mótinu sem lauk um helgina.

Einar Hólmgeirs æfir með Stjörnunni
Handknattleikskappinn Einar Hólmgeirsson æfir þessa daga með 1. deildarliði Stjörnunnar. Hann stefnir á að spila með þeim í vetur.

Jafntefli í fyrsta leik Óla Stef
ÍR og Valur skildu jöfn 29-29 í Reykjavíkurmótinu í kvöld. Geir Guðmundsson fór á kostum í liði Vals.

Íris Björk í samdi við Gróttu til tveggja ára
Íris Björk Símonardóttir leikur með kvennaliði Gróttu í handbolta næstu tvö árin. Íris hefur skrifað undir samning við Seltirninga.

Óskar Bjarni í þjálfarateymi Vals
Óskar Bjarni Óskarsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna í handknattleik hjá Val.

Peningarnir úr kvennaliðinu settir í karlaliðið
Eyjamenn eru stórhuga fyrir komandi vetur í handboltanum og hafa sankað að sér sterkum leikmönnum. Peningar sem hafa farið í kvennaliðið undanfarin ár fara nú í karlaliðið. Reksturinn er ekki mikið dýrari í ár.

Framarar æfa með KR
Guðjón Drengsson, Haraldur Þorvarðarson og Magnús Erlendsson æfa þessa dagana með meistaraflokki KR. Liðið leikur í 1. deild á næstu leiktíð en meistaraflokkurinn var endurvakinn hjá Vesturbæingum á vormánuðum.

Þriðji leikmaðurinn á stuttum tíma til ÍBV
Eyjamenn ætla sér greinlega stóra hluti í N1-deild karla á næsta ári en liðið hefur verið að sanka að sér leikmönnum að undanförnu.

Þorkell Guðbrandsson tekur við kvennaliði Aftureldingar
Þorkell Guðbrandsson tekur við kvennaliði Aftureldingar af Gústafi Björnssyni og mun hann stýra liðinu í N1-deildinni á næsta tímabili.

„Nú vaska ég kannski einu sinni upp“
Róbert Aron Hostert mun leika með karlaliði ÍBV í efstu deildinni í handboltanum á næstu leiktíð. Róbert Aron staðfestir þetta í samtali við Vísi í dag.