Innlent
95 96 97 98 99 100 101 102 103 … 334 ›
Lögregla stöðvaði 400 bíla Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók tólf ökumenn úr umferð í gærkvöldi eftir að hafa stöðvað tæplega fjögur hundruð bíla og kannað ástand ökumanna. Sex voru látnir hætta akstri þar sem ögn af vínanda mældist í þeim, fjórir voru kærðir fyrir ölvunarakstur og tveir fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Innlent 30.3.2007 07:19
Niðurrif á húsum á Laugavegi 33, 35 og Vatnsstíg 4 heimilað Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Samfylkingar samþykktu á borgarstjórnarfundi nú í kvöld að heimila niðurrif á húsunum Laugavegur 33, 35 og Vatnsstígur 4. Innlent 29.3.2007 22:38
Stafar meiri hætta af hvalveiðum en stóriðju Íslenskri ferðaþjónustu stafar mun meiri hætta af hvalveiðum en stóriðjuuppbyggingu, segir forstjóri Icelandair. Ríkisstjórnir víða um heim mótmæla enn hvalveiðum Íslendinga. Innlent 29.3.2007 19:38
Nú get ég andað léttar Formaður MND-félagsins á Íslandi fagnaði í dag áfangasigri í baráttunni fyrir vali fatlaðra til að lifa með hjálp öndunarvélar heima. Þeir sem þurfa á hjálp öndunarvélar að halda eiga nú kost á því að fá slíka þjónustu. Um tilraunaverkefni er að ræða sem nær til sex einstaklinga næstu tvö árin. Rúmlega fimm starfsmenn þarf til að sinna hverjum sjúklingi og kostnaður á ári er um 20 milljónir króna. Innlent 29.3.2007 19:32
Vilja landnýtingaráætlun fyrir ferðaþjónustuna Á aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar, sem haldinn var í dag, var samþykkt áskorun á stjórnvöld um að vinna að landnýtingaráætlun með þarfir ferðaþjónustunnar í huga. Lagt var til að hún yrði með sama hætti og fyrirliggjandi tillaga á Alþingi um nýtingaráætlun og verndaráætlun fyrir auðlindir landsins til lands og sjávar. Jafnframt var sagt að nýting náttúruauðlinda til ferðaþjónustu sé mikilvæg og að undibúa þurfi fjárfestingu í innviðum og markaðsstarfi. Innlent 29.3.2007 19:24
Íhuga að stefna ríki vegna reykingabanns Eigandi Ölstofunnar í miðbæ Reykjavíkur óskar eftir fundi með heilbrigðisráðherra til að leita úrræða fyrir þá viðskiptavini ríkissjóðs sem krárnar þjónusta. Það er að segja - reykingamenn. Reykingabann gengur í gildi eftir tvo mánuði og eigendur Ölstofunnar íhuga að stefna ríkinu fyrir skerðingu á atvinnuréttindum. Innlent 29.3.2007 18:41
Krónikan hættir og seld til DV Útgáfu Krónikunnar hefur verið hætt og var útgáfufélag hennar selt DV í dag. Ritstjóri og framkvæmdastjóri Krónikunnar hafa ráðið sig til DV. Tólf manns störfuðu hjá Krónikunni og hefur öllum starfsmönnum verið boðið starf hjá DV, en óvíst hve margir þiggja það. Innlent 29.3.2007 18:39
10 gagnageymslur skapa 200 hátæknistörf Tíu gagnavistunarbú verða komin upp innan tveggja ára ef áætlanir Data Íslandía ganga eftir og tvö hundruð störf verða til. Áhugi stórfyrirtækja á borð við British Telecom á gagnavistun á hinu friðsæla Íslandi hefur tvíeflst eftir að upp komst um áætlanir Al Kaída um að lama internetið í Bretlandi. Innlent 29.3.2007 18:36
Hugmyndakeppni um skipulagningu Vatnsmýrar hafin Í dag hófst hugmyndakeppni um skipulag Vatnsmýrar. Keppnin er á vegum Reykjavíkurborgar. Hún er jafnframt alþjóðleg og fer fram í tveimur þrepum. Úrslit verða ljós í nóvember á þessu ári og gert er ráð fyrir því að Reykjavíkurborg semji við einn eða fleiri vinningshafa um skipulagningu hluta af Vatnsmýrarsvæðinu. Innlent 29.3.2007 18:07
Félag Atorku Group með meirihluta í Romag Renewable Energy Resources, félag í eigu Atorku Group, hefur eignast 22,1% í fyrirtækinu Romag, sem er leiðandi framleiðanda á sérhæfðum glerlausnum sem nýta birtu til rafmagnsframleiðslu og framleiðir auk þess skotheld öryggisgler fyrir byggingar og farartæki. Viðskipti innlent 29.3.2007 15:42
Rafmagnstruflanir á Austurlandi Rafmagnsnotendur á Austurlandi mega búast við tímabundnum spennubreytingum vegna spennusetningar og prófana á rafbúnaði í Fljótsdalsstöð og hjá Fjarðaráli. Afleiðingarnar geta verið blikk í ljósum notenda en þær eiga hvorki að valda tjóni á búnaði né straumleysi. Einungis er um tímabundið ástand að ræða þar til rekstur Fljótsdalsstöðvar og Fjarðaráls hefst. Innlent 29.3.2007 14:36
Missti ökuskírteinið á fyrsta degi Sautján ára piltur var tekinn fyrir hraðakstur í Ártúnsbrekku í gærkvöldi á 136 km hraða. Skírteinið var gefið út í gær en pilturinn er nýorðinn 17 ára. Hann má búast við að fá 75 þúsund króna sekt og missa ökuleyfið í einn mánuð. Hinn nýbakaði bílstjóri fær því að hugsa ráð sitt í um mánaðartíma áður en hann snýr aftur út í umferðina. Innlent 29.3.2007 14:25
Tyrkir bjóða í BTC Tyrkneska farsímafélagið Turkcell hefur lagt fram tilboð í kaup á 65 prósenta hlut í búlgarska símafyrirtækinu Bulgarian Telecommunications Company, BTC. Hluturinn er í eigu Novators, félags í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar. Nokkrir af stærstu fjárfestingasjóðum í heimi eru sagðir hafa áhuga á kaupum á hlutnum. Gert er ráð fyrir að verðmæti hlutar Novators í BTC nemi um 99 milljörðum íslenskra króna. Viðskipti innlent 29.3.2007 11:49
Seðlabankinn heldur stýrivöxtum óbreyttum Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtum bankans óbreyttum í 14,25 prósentum. Þetta er í takt við spár greiningardeilda viðskiptabankanna þriggja og erlendra greinenda. Seðlabankinn hækkaði stýrivexti sína síðast um fjórðung úr prósenti á aukavaxtaákvörðunardegi 21. desember síðastliðinn. Viðskipti innlent 28.3.2007 15:56
Tekinn á 148 kílómetra hraða Ökumaður var tekinn á 148 kílómetra hraða í Ártúnsbrekkunni um klukkan tíu í kvöld. Maðurinn var á leið upp brekkuna og út úr bænum. Lögregla segir að hann megi búast við 90 þúsund króna sekt og tveggja mánaða sviptingu á ökuréttindum en hámarkshraði í Ártúnsbrekkunni er 80 kílómetrar á klukkustund. Annar ökumaður var síðan tekinn í kvöld á 113 kílómetra hraða á 70 kílómetra svæði. Hann má búast við sektum. Innlent 28.3.2007 22:17
Spánverjar báru sigurorð af Íslendingum Íslenska landsliðið tapaði 1-0 fyrir því spænska í leik liðanna á Mallorca í undankeppni EM í kvöld. Sigur Spánverja var fyllilega verðskuldaður og hefði orðið miklu stærri ef ekki hefði verið fyrir stórleik Árna Gauts Arasonar í íslenska markinu. Það var miðjumaðurinn Andres Iniesta sem skoraði sigurmark spænska liðsins þegar tíu mínútur voru til leiksloka. Innlent 28.3.2007 22:02
Markalaust eftir rúmlega hálftíma leik Enn er ekkert mark komið í leik Spánverja og Íslendinga sem fram fer við mjög erfiðar aðstæður á Mallorca. Heimamenn hafa ráðið ferðinni í leiknum, en á 26. mínútu átti Ólafur Örn Bjarnason besta færi íslenska liðsins en skot hans eftir hornspyrnu fór framhjá spænska markinu. Vallaraðstæður eru skelfilegar vegna bleytu og á boltinn það til að stoppa í pollum sem myndast hafa á vellinum. Innlent 28.3.2007 20:34
Verður einn besti golfvöllur á landinu Miklar framkvæmdir eru að hefjast við golfvöllinn á Akureyri. Hann verður einn sá besti á landinu að loknum endurbótum, segja forráðamenn vallarins. Innlent 28.3.2007 19:50
Íslenskir karlmenn þeir fjölskylduvænstu í Evrópu Íslenskir karlmenn eru þeir fjölskylduvænstu í Evrópu, samkvæmt nýrri könnun. Fimmtungur kvenna er nú með hærri tekjur en eiginmenn þeirra. Innlent 28.3.2007 19:48
3000 miðar seldust á fyrstu klukkustundunum Þrjú þúsund miðar seldust á nokkrum klukkustundum á fyrstu tónleika Bjarkar á Íslandi í sex ár. Miðasalan hófst á hádegi og fór gífurlega vel af stað, segja tónleikahaldarar. Alls verða 5500 miðar seldir á tónleikana sem verða mánudaginn níunda apríl í Laugardalshöll. Innlent 28.3.2007 19:39
Fyrsti súrálsfarmurinn til Reyðarfjarðar í dag Fyrsti súrálsfarmurinn til nýs álvers á Reyðarfirði barst þangað í dag. Flutningaskipið, Pine Arrow, kom með þrjátíu og níu þúsund tonn af súráli frá Ástralíu. Tæp tvö tonn af súráli þarf til að framleiða tonn af áli, þannig að farmurinn í dag á eftir að verða að um tuttugu þúsund tonnum af áli. Innlent 28.3.2007 19:43
Mokveiði hjá línubátum í Grindavík Mokveiði hefur verið hjá línubátum í Grindavík og hefur rúmum fimm hundruð tonnum af fiski verið landað síðustu tvo daga. Mest veiðist af þorski og segjast menn aldrei hafa veitt svona vel. Hafnarstjórinn í Grindavík segir þessa miklu veiði heldur óvenjulega miðað við fyrri ár. Innlent 28.3.2007 19:40
Sögðu ákæruvaldið ekki fylgja settum reglum Verjendur þeirra Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, forstjóra Baugs, og Tryggva Jónssonar, fyrrverandi aðstoðarforstjóra fyrirtækisins, sögðu í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag að ákæruvaldið hefði ekki fylgt reglum um sjálfstæði, hlutleysi og rannsóknarskyldu við rannsókn Baugsmálsins. Innlent 28.3.2007 19:38
Samkomulag næst á milli ríkisins og eigenda Wilson Muuga Samkomulag hefur tekist milli eigenda Wilson Muuga og ríkisins um að gerð verði tilraun til að koma skipinu af strandstað. Umhverfisráðherra segir að skoða þurfi siglingalög en er ánægður með lyktir málsins. Innlent 28.3.2007 19:32
Rektor HR hafnar ásökunum um spillingu Háskólinn í Reykjavík samdi án útboðs um byggingu, fjármögnun og eignarhald á nýju húsnæði í Öskjuhlíð, við fyrirtæki sem formaður háskólaráðs á sterk ítök í. Stjórnarformaður Nýsis segir þetta siðferðilega óverjandi, en rektor segir samninginn faglega ákvörðun. Innlent 28.3.2007 17:35
Yfir 3000 tilkynningar til Barnaverndar Reykjavíkur Rúmlega þrjú þúsund tilkynningar, um ofbeldi eða vanhirðu á börnum, bárust til Barnaverndar Reykjavíkur í fyrra, sem er töluverð aukning frá árinu á undan. Það færist í vöxt að ítrekað berist tilkynningar vegna sömu barnanna. Dæmi eru um að erfitt sé að ná sambandi við Barnavernd sökum álags. Innlent 28.3.2007 18:15
Auglýsir ekki eftir fleiri sakarefnum Jakob Möller sagði við málflutning í Baugsmálinu í Héraðsdómi Reykajvíkur í dag að hann teldi uppbyggingu ákæra um bókhaldsbrot óþægilega og átaksilla. Skrítið væri að ákæra fyrir bókhaldsbrot, en ekki brot á ársreikningum um leið. Hann væri þó ekki að auglýsa eftir fleiri sakarefnum, en saksóknari hefði ekki gefið skýringar á þessu. Innlent 28.3.2007 16:24
Mokveiði í Grindavík Mokveiði hefur verið hjá línubátum í Grindavík og hefur rúmum fimm hundruð tonnum af fiski verið landað síðustu tvo daga. Mest veiðist af þorski og segjast menn aldrei hafa veitt svona vel. Innlent 28.3.2007 13:15
Glitnir hækkar verðmat á Actavis Greiningardeild Glitnis telur kaup í Actavis góðan fjárfestingakost og mælir með kaupum á bréfum í félaginu í nýju verðmati á félaginu. Glitnir hefur hækkað verðmatsgengið á Actavis úr 68,1 krónu á hlut í 87,7 krónur og verðmatsgengið til næstu sex mánaða úr 72, krónum í 95 krónum á hlut. Viðskipti innlent 28.3.2007 10:56
Viðgerð lokið á heitavatnsæð í Hafnarfirði Viðgerð er lokið á heitavatnsæð við Öldugötu í Hafnarfirði, en þar varð vart við mikinn leka um kl. 16:00 í dag. Loka þurfti fyrir rennsli til byggða í Áslandshverfi, á Völlum og á Hvaleyrarholti á meðan unnið var að viðgerð. Hún gekk vel og var lokið um kl. 20:00. Fullur þrýstingur var kominn á núna fyrir stundu. Innlent 27.3.2007 22:42
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent