Innlent
81 82 83 84 85 86 87 88 89 … 334 ›
Versta lagið fer í úrslit Eurovision Eiríkur Hauksson stígur á svið í Helsinki í kvöld og flytur framlag Íslands Valentine Lost í undankeppni Eurovision. „Í fyrsta sinn er ég með lag sem mig langar virkilega að kynna fyrir Evrópu," segir hann. "Þegar ég fór í Gleðibankann var ég bara ráðinn í starfið." Íslenska lagið er best, en að mati Eiríks fer versta lagið, framlag Úkraínu, beint í úrslit . Innlent 10.5.2007 14:20
365 lýkur sölu á Hands Holding 365 hf. hefur selt allan hlut sinn, 30,7 prósent, í Hands Holding hf. til Arena Holding óstofnaðs félags Baugs Group hf., Fons Eignarhaldsfélags hf. og Icon ehf. Salan nemur 1.620 milljónum króna. Stærstur hluti verðsins, 1,5 milljarðar króna, verður greiddur 28. júní næstkomandi. Viðskipti innlent 10.5.2007 11:45
Novator gerir yfirtökutilboð í Actavis Novator, fjárfestingafélag Björgólfs Thors Björgólfssonar, hefur ákveðið að leggja fram frjálst yfirtökutilboð í allt hlutafé Actavis Group. Tilboðið hljóðar upp á 0,98 evrur á hlut, jafnvirði 85,23 króna. Gengið stendur nú í 78,2 krónum á hlut. Markmið Novator er að eignast allt hlutafé félagsins og afskrá það. Actavis er metið á um 287 milljarða krónur. Viðskipti innlent 10.5.2007 11:12
Landsbankinn gefur út 43,5 milljarða króna skuldabréf Landsbankinn gekk í dag frá útgáfu á 500 milljóna evra skuldabréfi til fimm ára með breytilegum vöxtum. Þetta jafngildir 43,5 milljörðum króna og er fyrsta útgáfa Landsbankans á skuldabréfum í evrum síðan í október fyrir einu og hálfi ári. Útgáfan er liður í endurfjármögnun bankans á þessu ári. Viðskipti innlent 10.5.2007 09:42
Næstbesta uppgjör SPRON á einum fjórðungi Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis (SPRON) hagnaðist um 4,7 milljarða krónur á fyrstu þremur mánuðum ársins samanborið við rúman 1,1 milljarð króna á sama tíma í fyrra. Þetta er 318 prósenta aukning á milli ára.Guðmundur Hauksson, sparisjóðsstjóri, segir afkomuna góða enda þetta næstbesta uppgjörið á einum fjórðungi í 75 ára sögu sparisjóðsins. Viðskipti innlent 9.5.2007 16:31
Veggjakrotarar staðnir að verki Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greip þrjá unglingspilta glóðvolga við að krota á veggi í miðborginni eftir hádegi í gær. Drengirnir eru tólf ára og var gert að þrífa krotið af veggjunum. Forráðamönnum þeirra var tilkynnt um málavexti. Tíu ára drengur var tekinn við sömu iðju í Breiðholti skömmu síðar og var ekið heim. Hann iðraðist sáran. Innlent 9.5.2007 14:27
Nýr dósent viðskiptadeildar á Bifröst Ásta Dís Óladóttir hefur verið ráðin dósent við viðskiptadeild Háskólans á Bifröst. Ásta hefur undanfarin ár starfað við Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn auk þess að sinna doktorsrannsóknum í alþjóðaviðskiptum. Þær beinast meðal annars að erlendum fjárfestingafyrirtækjum frá smáum hagkerfum. Innlent 9.5.2007 14:17
Niðurfelling vörugjalda stuðlar að orkusparnaði Samtök verslunar og þjónustu hvetja stjórnvöld til að fella niður vörugjöld á raftæki. Það myndi örva neytendur til að endurnýja orkufrek raftæki eins og ísskápa og eldavélar. Í Evrópu eru í notkun um 188 milljónir slíkra tækja eldri en 10 ára. Ef þeim væri öllum skipt út minnkaði orkunotkun þeirra um 40 prósent. Innlent 9.5.2007 13:59
Aðgengi að áfengi yrði auðvelt fyrir ungmenni Ungmenni undir tóbakskaupaaldri eiga auðvelt með að kaupa sér sígarettur samkvæmt könnun. Í ljósi þessa er varhugavert að leyfa sölu á áfengi í matvöruverslunum, segir prófessor í félagsfræði. Innlent 9.5.2007 12:26
Fjölskyldunefnd í þrettán mánaða fríi Fjölskyldunefnd ríkisstjórnarinnar hefur ekki komið saman í þrettán mánuði. Síðasti fundur nefndarinnar var sjötta apríl árið 2006. Björk Vilhelmsdóttir fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur skrifað Birni Inga Hrafnssyni formanni nefndarinnar bréf og óskað eftir því að nefndin verði kölluð saman. Innlent 9.5.2007 12:17
Refresco kaupir franskt fyrirtæki Hollenska drykkjarvörufyrirtækið Refresco, sem FL Group, Vífillfell og Kaupþing eiga meirihluta í, hefur eignast franska fyrirtækið Nuits Saint-Georges Production SAS en félagið er með aðsetur í Dijon héraði í Frakklandi. Þetta er fjórða fyrirtækið sem Refresco hefur keypt á síðastliðnum þremur mánuðum og rúmlega tvöfaldað veltu sína. Viðskipti innlent 9.5.2007 11:05
Hagnaður Sampo jókst um 820 prósent Finnska fjármálafyrirtækið Sampo Group hagnaðist um 3,1 milljarð evra, jafnvirði 272 milljarða íslenskra króna, fyrir skatta á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þetta er 820 prósentum meiri hagnaður en á sama tíma í fyrra. Níutíu prósent af hagnaðinum er tilkominn vegna sölu á bankastarfsemi fyrirtækisins til Danske Bank. Uppgjörið er undir væntingum og hefur gengi bréfa í Sampo lækkað í OMX-kauphöllinni í Helsinki í dag. Viðskipti innlent 9.5.2007 10:28
Fasteignamarkaðurinn tekur við sér Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu tæpum 5,3 milljörðum króna í apríl, samkvæmt mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs. Þar af voru ríflega 600 milljónir króna vegna leiguíbúðalána en almenn útlán námu tæpum 4,7 milljörðum króna. Meðallán almennra útlána nam tæpum 9,3 milljónum króna. Sjóðurinn segir að svo virðist sem fasteignamarkaðurinn sé að taka við sér á ný. Viðskipti innlent 9.5.2007 10:27
Seinagangur samgönguráðherra kostar okkur 5 milljarða Seinagangur samgönguráðherra við að láta hefja veðurfarsathuganir á Hólmsheiði hefur kostað samfélagið fimm milljarða króna, segir stjórnarmaður í Samtökum um betri byggð. Innlent 8.5.2007 18:55
Hálfsextugar konur geta orðið ófrískar Konur á sextugsaldri geta orðið ófrískar upp á hefðbundin máta en konur eldri en 46 ára fá ekki frjósemismeðferð á Íslandi. Hálfsextug íslensk kona á von á sér eftir tæpa tvo mánuði. Innlent 8.5.2007 18:55
Furðar sig á lóðaúthlutun Forstjóri Náttúrufræðistofnunar Íslands furðar sig á að borgin hafi úthlutað Listaháskóla Íslands lóð í Vatnsmýri sem hefur í átta ár verið merkt Náttúrufræðistofnun á deiliskipulagi. Innlent 8.5.2007 18:50
Rúmenum gert að yfirgefa landið Níu rúmenskum karlmönnum sem haldið hafa til á Akureyri síðustu daga verður gert að yfirgefa landið. Þeir eru frá sama svæði og hópurinn sem þegar hefur verið vísað úr landi. Innlent 8.5.2007 18:24
Ágóði ævisögu Hannesar Hólmsteins til Mæðrastyrksnefndar Útgáguforlagið Nýhil mun afhenda mæðrastyrksnefnd allan ágóða af sölu metsölubókarinnar Hannes - Nóttin er blá, mamma. Bókin er fyrsta bindi í ævisögu Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar og kom út fyrir síðustu jól. Höfundur hennar er Óttar M. Norðfjörð. Ágóðinn af sölunni reyndist 300 þúsund krónur og verður afhentur við athöfn á fimmtudag. Innlent 8.5.2007 16:40
Lögreglan útilokar ekki íkveikju í miðbænum Rannsókn lögreglu á eldsupptökum vegna bruna húsanna á horni Lækjargötu og Austurstrætis 18. apríl stendur enn yfir. Lögregla getur því ekki útilokað að um íkveikju af mannavöldum hafi verið að ræða, né heldur hvort um hafi verið að ræða bruna út frá rafmagni. Of snemmt er að fullyrða um nokkuð í þessum efnum segir í yfirlýsingu frá lögreglunni. Innlent 8.5.2007 15:58
Hagnaður TM eykst Tryggingamiðstöðin skilaði hagnaði upp á 886 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi samanborið við 626 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Rekstrartap af vátryggingastarfsemi nam fimm milljónum króna sem er talsverður viðsnúningur frá síðasta ári þegar tapið nam 215 milljónum króna. Forstjóri Tryggingamiðstöðvarinnar segir tjónaþróun hér á landi áhyggjuefni. Viðskipti innlent 8.5.2007 15:56
Afkoma Marel yfir væntingum Marel skilað hagnaði upp á eina milljón evra, jafnvirði 86,5 milljóna íslenskra króna, á fyrsta fjórðungi ársins. Þetta er tæplega tvöfalt betri afkoma en á sama tíma í fyrra þegar hagnaðurinn nam 551 þúsund evrum, tæpum 47 milljónum íslenskra króna. Þetta er talsvert betri afkoma en greiningardeildir viðskiptabankanna spáðu. Viðskipti innlent 8.5.2007 15:40
Smyglaði sveppum og eiturlyfjum á Litla Hraun Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Suðurlands fyrir að reyna að smygla sveppum og fíkniefnum til fanga á Litla Hrauni. Fíkniefnahundur „merkti“ ákærða í fangelsinu og kom þá í ljós að maðurinn hafði ólöglega sveppi og fíkniefni í úlpuvasa sínum. Maðurinn játaði brot sitt fyrir dómi. Innlent 8.5.2007 15:31
Áhyggjur af próflausum ökumönnum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu telur það umhugsunarefni að ökumenn skuli halda áfram akstri þrátt fyrir að hafa verið sviptir ökuleyfi. Um síðustu helgi var 19 ára piltur stöðvarður fyrir hraðakstur. Hann virti ekki stöðvunarmerki lögreglumanna og reyndi auk þess að komast undan. Að sögn lögreglu er það nánast á hverjum degi sem afskipti eru höfð af slíkum ökumönnum. Innlent 8.5.2007 14:24
Götumyndin verður aldrei eins, segir borgarstjóri Götumyndin verður aldrei eins í Austurstræti eftir brunann í miðborginni, segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri í blaðagrein í dag. Áður hafði hann lagt áherslu á að halda í þá sögufrægu götumynd sem varð eldi að bráð um miðjan apríl. Innlent 8.5.2007 12:11
Vinnuálag foreldra orsök eyrnavandamála Að meðaltali eru tvö til fimm börn lögð inn á spítala í hverjum mánuði til að fá sýklalyf í æð, þar sem venjuleg sýklalyf virka ekki lengur á þau. Doktor í læknisfræði segir mikla notkun hjá börnum aðallega tilkomna vegna miðeyrnabólgu, en við henni er sýklalyfjameðferð óþörf. Hins vegar geti sýklalyfjanotkunin skapað endurtekin eyrnavandamál. Innlent 8.5.2007 12:10
900 milljóna króna gjöf Lóðin sem Listaháskóli Íslands fékk að gjöf frá Reykjavíkurborg í gær er varlega áætlað níu hundruð milljóna króna virði, að mati Sverris Kristinssonar fasteignasala hjá Eignamiðlun. Innlent 8.5.2007 12:06
Einstaklingsherbergi efst á óskalista sjúklinga Einstaklingsherbergi með baði eru efst á óskalista sjúklinga, lækna og annarra heilbrigðisstarfsmanna við hönnun nýs háskólasjúkrahúss. Góður og fjölbreyttur matur þykir einnig mikilvægur. Þetta eru meðal annars niðurstöður bandaríska ráðgjafafyrirtækisins Planetree sem kynntar voru framkvæmdanefnd Landsspítala - háskólasjúkrahúss í gær. Innlent 8.5.2007 10:10
Raunfærnimat þróað hér á landi Raunfærnimat er nýtt hugtak yfir mat á færni einstaklinga óháð því hvernig hennar var aflað. Nýverið voru 19 bankastarfsmenn útskrifaðir eftir að hafa farið í gegnum raunfærnimat tilraunaverkefnisins „The Value of Work“. Um er að ræða samstarfsverkefni á vegum Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins sem vinnur að því að þróa aðferð til að meta raunfærni einstaklinga í atvinnulífinu. Innlent 8.5.2007 09:46
Listaháskólinn fær lóð í Vatnsmýri Borgin hefur afhent Listaháskóla Íslands ellefuþúsund fermetra lóð í Vatnsmýrinni. Menntamálaráðherra segir þetta mikinn gleðidag og rektor listaháskólans ætlar að fagna áfanganum með klippingu á morgun. Innlent 7.5.2007 18:58
Ólafur Ragnar útskrifaður af sjúkrahúsi Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands hefur verið útskrifaður eftir að hafa gengist undir fjölda rannsókna á Landsspítala - háskólasjúkrahúsi. Hann er nú kominn heim á Bessastaði og mun hvíla sig næstu daga samkvæmt læknisráði. Ekkert athugavert kom í ljós við rannsóknir að sögn Örnólfs Thorssonar forsetaritara. Innlent 7.5.2007 16:12
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent